Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Flugvellir hannaðir til að veita þér falskt öryggi og ná sem mestu úr veskinu þínu

„Flug­vellir eru lokað umhverfi og þú kemst ekk­ert.“ Segir Valdimar Sig­urðs­son, dós­ent í mark­aðs­fræði, um hönnun flug­valla og neyslu­hegðun „Það er breyta sem skiptir miklu máli þegar þú ætlar að útskýra hegðun í þessu umhverfi.”

Valdimar hefur bæði unnið með Isavia og flug­fé­lögum. Hann hefur fram­kvæmt rann­sóknir á þjón­ustu og mark­að­setn­ingu á þessu sviði. „Það er mik­il­vægt að Leifstöð, eða flug­vellir almennt, gefi til kynna að ferðin í raun­inni byrji hjá þeim”. Valdimar segir flug­velli í raun draumaum­hverfi versl­un­ar­manna. „Þegar þú ert að stjórna umhverf­inu þá ertu nán­ast að stjórna hegð­un­inni. Þú ert að hafa mikil áhrif á hegð­un­ina.”

Flug­vellir eru sér­stak­lega hann­aðir til að stjórna hegðun far­þega og halda þeim rólegum. Á sama tíma þurfa þeir að vekja löngun til að versla. „Upp­bygg­ing flug­valla er unnin eftir skil­grein­ingu Marc Auge, frönskum mann­fræð­ingi, sem kall­aði flug­vall­ar­um­hverfið staðar-leysu (e. non-place) árið 1995.” BBC Future greinir frá.

„Skipulag flug­valla má líkja við versl­unar- og veit­inga­keðjur sem hafa alltaf sama fyr­ir­komu­lag, hvar sem þær eru í heim­inum.“ segir í grein BBC. H&M, Starbucks og McDonalds eru dæmi um slíkar keðjur. „Sál­fræði­leg áhrif flug­valla er í sér­flokki, þess vegna er hver ein­asti flötur úthugs­aður í hönn­un­ar­ferl­inu. Þegar stigið er inn í flug­stöð má segja að far­þegar gefi upp sjálf­stæði sitt þar sem þeir eru leiddir í gegnum óþekkt umhverfi. Ferlið getur valdið óeirð og er það hlut­verk hönn­uða að ná stjórn á bæði með­vit­aðri og ómeð­vit­aðri ferða­streitu far­þega”.

Umhverfi sem ýtir undir hjarðhegðun

Ein aðferð til að minnka streitu er að skapa leið­andi umhverfi. „Hið full­komna flug­vall­ar­um­hverfi leiðir far­þega í gegnum svæðið áreynslu­laust” hefur BBC eftir Alej­andro Puebla, skipu­lags­fræð­ingi flug­valla hjá Jacobs verk­fræði­stofu. Það felur í sér hönnun sem ýtir undir hjarð­hegðun. Skilti geta til dæmis verið mis­mun­andi á lit­inn og ólík í lag­inu milli flug­stöðva á sama flug­velli. Farþegar eru þá lík­legri til að skynja það ef þeir eru á röngum stað. Leiðandi umhverfi smalar far­þegum fljótt og örugg­lega í gegnum við­eig­andi flug­stöð án þess að þeir geri sér grein fyrir því.

Öryggisleitir hannaðar til að veita falskt öryggi

„Hryðju­verk eru sjald­gæf, mikið sjald­gæfari en margir halda” segir Bruce Schneier örygg­is­sér­fræð­ingur í rit­gerð sinni Beyond Security Theater. „Besta vörnin gegn hættum eru rann­sókn­ar­vinna, leyni­þjón­usta og við­bragðs­á­ætl­anir”. Allt eru þetta þættir sem far­þegar verða lítið varir við. Það skiptir máli að hafa sýni­legar örygg­is­ráð­staf­anir til að vinna gegn ferða­streitu og þar kemur örygg­is­leitin inn. Þegar hryðju­verk hafa átt sér stað eru örygg­is­kröfur á flug­völlum hertar, meðal ann­ars til að auka örygg­is­til­finn­ingu far­þega. BBC nefnir sem dæmi reglur um vökva í hand­far­angri. Þær voru settar af stað eftir að hryðju­verka­menn reyndu að flytja sprengjur í vökva­formi um borð í flug­vél árið 2009. Þar kemur fram að þessar aðgerðir hafi verið til þess að fá far­þega til að koma aftur á flug­velli en ekki fæla þá frá flugi.

Eft­ir­lits­menn heima­varn­ar­ráðs í Banda­ríkj­unum hafa sýnt fram á að örygg­is­leit á flug­völlum hefur lítil sem engin áhrif. Í prófum náðu eft­ir­lík­ingar af byssum, sprengi­efnum og hnífum í í gegnum eft­ir­lits­stöðvar TSA í 70% til­vika, án þess að vera stopp­aðar. Til­raunin varð gerð árið 2017. Það eru þó fram­för frá árinu 2015 þegar 95% flug­valla þar í landi féllu á sama prófi. Hertar örygg­is­kröfur síð­ast liðna ára­tugi virð­ast hafa, eins og áður segir, lítið sem ekk­ert að segja.

Löngunin til að versla nær hápunkti eftir öryggisleit

Þegar far­þegar hafa farið í gegnum stærstu streitu­valdana, að inn­rita far­ang­ur­inn sinn og fara í gegnum örygg­is­leit­ina, kom­ast þeir á end­urstill­ing­ar­svæði (e. Recomposure zone). „Svæði með bekkjum eða jafn­vel kaffi­húsi með útsýni yfir versl­anir og veit­inga­staði. Á þessum tíma­punkti breyt­ast far­þeg­arnir úr stressuðum ferða­löngum í dýr­mæta við­skipta­vini,” hefur BBC eftir hönn­un­ar­stof­unni InterVISTAS. „Farþegar eru hinn full­komni við­skipta­vinur. Þeir þurfa drepa tím­ann og kom­ast hvergi, hafa efni á flug­miða og þar af leið­andi tekjur til ráð­stöf­unar.“

„Eftir streit­una sem fylgir inn­ritun og örygg­is­leit eru far­þeg­arnir lík­lega í stuði til að gera vel við sig. Það end­ist yfir­leitt í klukku­stund og hafa hönn­uðir nefnt þann tíma Gullnu stund­ina”. Valdimar segir ýmis­legt vera til í þessu þó hann kann­ist ekki við þetta heiti, enda margar kenn­ingar til í mark­aðs­fræði „[Streitan] hefur vissu­lega áhrif og þá eru þessi til­finn­inga­kaup (e. emotional shopp­ing) kannski svo­lítið sterk­ari.”

Í umfjöllun BBC segir að aðal versl­un­ar­svæðið er alltaf stað­sett á milli örygg­is­leitar og brott­fara­hliða. Margir gang­stígar í flug­stöðum eru látnir sveigja til hægri vegna þess að meiri­hluti far­þega eru rétt­hendir. Fleiri versl­anir eru stað­settar á hægri hlið sem hvetur far­þega ómeð­vitað í búð­ar­ráp. Valdimar er ekki kunn­ugur þess­ari hægri­handar kenn­ingu. „Ég hef ekki heyrt um það eða séð rann­sóknir á því” segir hann og bætir við, „ég myndi giska á að það sé trú­lega ofmetið”. Fríhöfn Kefla­vík­ur­flug­vallar tekur við far­þegum úr örygg­is­leit­inni. Þannig eru þeir skikk­aðir til að ganga í gegnum versl­un­ina sem sveigir til hægri áður en komið er að miðju flug­stöðv­ar­innar.

Fríhöfnin í Leifsstöð á dýrmætu verslunarsvæði

„Þarna er falin for­senda, meiri tími inn í versl­un­ar­um­hverfi leiðir til meiri sölu” segir Valdimar sem hefur fram­kvæmt rann­sókn á þeim sem hann kallar virka við­skipta­vini (e. Active shopp­ers). „Þú getur greint hversu margir eru virkir við­skipta­vinir þegar þú neyðir þá í gegnum versl­un­ina. Hversu margir ganga í gegnum og jafn­vel drífa sig og hversu margir eru virkir. Það þýðir að þeir eru að stoppa, þeir eru að skoða, snerta og jafn­vel kaupa”. Valdimar segir þetta vand­með­farið og hægt að ofgera. „Þú ert vissu­lega líka að sóa tíma neyt­and­ans, þú ert að tefja fólk sem vill kannski kom­ast eitt­hvað annað”.

„Þetta er dýr­mætt versl­un­ar­svæði, sér­stak­lega svæðið sem er alveg við gang­inn” segir Valdimar en í öllum versl­unum mynd­ast ákveðin leið sem við­skipta­vinir vinna sig í gegnum. „Við köllum þetta svæði hlaupa­braut­ina, Þær vörur sem eru settar þar á end­ann, það eru dýr­mæt­ustu útstill­ing­arnar. Flestir sem fá tæki­færi til að sjá þær vörur.” Aðspurður hvers kyns vörur ættu að vera á þessu svæði svarar hann sterk vöru­merki „Vinsælar vörur sem að höfða til sem flestra. Þetta eru vörur sem eiga að toga þig að hill­unum.”

Kefla­vík­ur­flug­völlur, sem er rek­inn af Isavia, er stærsti flug­völlur Íslands og stendur á Mið­nes­heiði á Reykja­nesskaga. Hann var lagður af Banda­ríkja­her í síð­ari heim­styrj­öld­inni og opn­aður 23. mars 1943 undir nafn­inu Meeks Field. Flug­völl­ur­inn var afhentur Íslend­ingum við enda­lok stríðs­ins. Flugstöð Leifs Eiríks­sonar hóf starf­semi sína í apríl 1987 og tók á móti tæp­lega 750.000 far­þegum það árið. Í fyrra áttu 9,8 millj­ónir far­þega leið sína í gegnum flug­stöð­ina, sam­kvæmt árs­tölum Isavia.

Ekki náð­ist að fá svör frá Isavia við vinnslu grein­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð