Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Við getum stjórnað draumum okkar

Okkur dreymir öll en munum ekki endi­lega draumana. Við getum þjálfað okkur til að muna og einnig hafa áhrif á draumana. Það er hægt að breyta þeim og það kemur fram hér í frá­sögnum þriggja íslenskra kvenna sem tókst að breyta end­ur­teknum draumum sínum.

Við getum stjórnað draumum okkar

Ekki er mjög langt síðan farið var að rann­saka drauma á vís­inda­legan hátt en vís­inda­menn eru þó ekki allir sam­mála um af hverju fólk dreymir.

Samkvæmt vís­indum er ekk­ert yfir­nátt­úru­legt við drauma. Þeir eru starf­semi hug­ans í svefni, á sama hátt og hugs­anir okkar eru starf­semi hug­ans í vöku, segir á Vís­inda­vefnum. Þar segir einnig að ein hug­mynd sé að draumar séu hrein­lega afleið­ing af þeirri miklu heila­virkni sem á sér stað í svefni. Í REM-svefni sé heila­virkni mikil og draumar sömu­leiðis algengir. Ein kenn­ingin sé að í REM-svefni styrk­ist nýjar minn­ingar og teng­ist við eldri. Þess vegna skýrist algengi drauma á þessu svefn­stigi ef til vill ein­fald­lega af því að verið sé að „taka til“ í heil­anum. Draumar verði því til vegna starf­semi heil­ans í svefni.

Skírdreymi

Stigið sem kall­ast lucid-dream­ing, eða skír­dreymi á íslensku, er þegar við erum með­vituð um að okkur sé að dreyma, ekki ósvipað því að vera á milli svefns og vöku. Draumar á skír­dreym­is­stig­inu hafa áhrif á lík­amann og ljúfur draumur gæti því dregið úr kvíða og streitu. Á þessu stigi svefns­ins gætum við einnig fengið ýmiss konar hug­ljómun.

Fólk sem fær oft martraðir ætti að geta þjálfað sig til að stöðva draum­inn og vakna strax. Eða, eins og kemur fram í einni reynslu­sög­unni hér, breyta martröð­inni með­vitað.

En til að breyta draumum sínum þarf að muna þá og ráð til þess er að end­ur­taka nokkrum sinnum hvert kvöld fyrir svefn­inn: „Ég ætla að muna það sem mig dreymir.“

Þegar þú finnur að þetta ber árangur get­urðu farið að stjórn­ast í draumunum. Ef þú þarft að leysa vanda­mál skaltu hugsa um það fyrir svefn­inn og láta það vera þína síð­ustu hugsun áður en þú fellur í svefn. Ef vanda­málið teng­ist mann­eskju skaltu hugsa um hana. Gott er líka að æfa í hug­anum sér­staka senu yfir dag­inn til að hún birt­ist í draumum þínum, eins og sam­tal eða aðstæður. Á meðan þú sefur reynir und­ir­með­vit­undin nefni­lega að leysa málið.

Ef þú ert mynd­lista­maður sem hefur misst anda­gift­ina sjáðu fyrir þér auðan striga áður en þú festir svefn. Rit­höf­undur með rit­stíflu gæti fundið nýjan flöt á sögu­þræði eða kom­ist áfram með bók­ina með því að láta sig dreyma um það … og svo fram­vegis. Það eru engar tak­mark­anir nema eigið ímynd­un­ar­afl.

Haltu endi­lega drauma­dag­bók. Áður en þú opnar augun skaltu rifja draum­inn vel upp til að þú gleymir engu og skrif­aðu draum­inn niður. Smám saman finn­urðu teng­ingu á milli draumanna og getur farið að lesa í merk­ing­una.

Laus við martraðirnar

„Í vöku er ég ekk­ert sér­lega loft­hrædd en hins vegar sner­ust allar martraðir mínar árum saman um ein­hverjar hremm­ingar sem ég lenti í þegar ég var að klifra óvarin utan á alls kyns húsum við óör­uggar aðstæður. Ef ég var undir álagi sóttu þessar martraðir frekar á mig. Þegar ég gekk í gegnum erfitt tíma­bil í líf­inu, skilnað og sárs­auka­fullan missi kvað sér­lega rammt að þessum ósköpum og ég var farin að kvíða því að fara að sofa. Draum­arnir voru hræði­lega skýrir, þótt ég vissi hálf­part­inn af því að mig væri að dreyma. Ég byrj­aði að klifra upp still­ansa, eða jafn­vel upp eftir veggjum með því að halda mér í syllur og ójöfnur, og ég er alls ekki íþrótta­mann­eskja og dytti ekki í hug að taka upp á svona lög­uðu í vöku. Mig dreymdi aldrei nákvæm­lega að ein­hver væri að elta mig en það hlýtur samt að hafa verið svo því ég varð að gera þetta. Stundum fór ég utan á svölum í mik­illi hæð á háhýsum og þá lárétta leið en oftar var ég að klífa upp bygg­ingar og það var hátíð ef ég hafði still­ansa til að halda mér í. En jafn­vel þá var ég skít­hrædd og sá hræði­lega raun­veru­legt landið fyrir neðan mig. Oftast voru það steypt bíla­plön og eitt­hvað sem var sjálf­gefið að myndi drepa mig ef ég dytti.

Fjöl­breytnin í þessum draumum eða martröðum var óend­an­leg og hræðslan var þannig að ég hrökk stundum upp með and­fælum en gat samt ekki losað mig út úr draumnum og þurfti að halda áfram að sofa og glíma við þessa erf­iðu áskorun.

„Ef ég var undir álagi sóttu þessar martraðir frekar á mig.“

Mikil til­viljun olli því að mér tókst að rjúfa þennan víta­hring. Ég var í langri lestar­ferð í Mið-Evrópu og það var farið að líða á kvöldið. Þessi lest var með klefum, ekki þó svefn­klefum, og með mér í klefa var kona nokkuð eldri en ég, frá Banda­ríkj­unum. Hún var, eins og margir Kanar, mjög skraf­hreifin, og búin að segja mér hálfa ævi­sög­una, frá skiln­uðum tveimur, hvað tán­ings­dóttir hennar hataði hana og hvað hún væri rosa­lega flinkur sál­fræð­ingur. Ég kemst yfir­leitt í vörn þegar ég sit með svona opin­skáu fólki en þegar leið nærri mið­nætti stakk hún upp á að við legðum okkur á þokka­lega þægi­legum sætum í þessum klefa, þrjú sæti hvor.

Af ein­hverri rælni fór ég að segja henni að ég væri stundum hálf­kvíðin að fara að sofa þegar ég væri mjög þreytt og undir álagi, eins og í þess­ari ferð, vegna þess­ara martraða sem sæktu á mig. Hún bað mig að segja sér mjög nákvæm­lega frá draumunum og ég sá ekk­ert því til fyr­ir­stöðu. Hún hlust­aði af athygli og greip ekk­ert fram í, eins og ég hefði búist við, og þegar ég lauk frá­sögn­inni fann ég að ég var orðin tals­vert miður mín. Hún greip um báðar hend­urnar á mér, nokkuð sem mér fannst full­mikil nánd, hall­aði sér fram og horfði í augun á mér. „Viltu losna við þetta?“ spurði hún. „Já, auð­vitað,“ svar­aði ég, svo­lítið snúð­ugt. „Hlustaðu þá,“ sagði hún með mjög sef­andi röddu. „Það sem þú þarf að gera er að „fara inn í draum­inn“ og fara eins nákvæm­lega gegnum dæmi­gert ferli, þangað til þú kemur að þeim hluta þar sem þú ert hrædd­ust. Þá skaltu fara aftur út úr draumnum og hugsa þér hvernig þú getur leyst þetta af hendi þannig að þú sért ekk­ert hrædd og komir út úr draumnum sem sig­ur­veg­ari. Lausnin þarf að vera senni­leg en alls ekki sönn.

Þú verður sjálf að finna út úr því hvað hentar þér best, en það gæti til dæmis verið að þú minntir sjálfa þig á að þú hefðir fengið sér­staka þjálfun í klifri og værir meist­ari í því, værir með hanska sem væru alveg öruggir við þessar aðstæður, eða að þegar þú horfðir niður þá átt­aðir þú þig á því að þú værir ekki svona hátt uppi eins og þú hélst, heldur bara tæpan metra frá jörðu. Farðu aftur og aftur í gegnum þessa atburða­rás eftir að þú ert búin að snúa henni þér í hag, svo þú gleymir henni örugg­lega ekki. Þá mun þessi draumur vera auð­veldur þegar hann sækir næst á þig og smátt og smátt, lík­lega fljót­lega, hættir þig að dreyma þetta.

Ég hugs­aði með mér að það sak­aði ekk­ert að láta reyna á þetta og fór að upp­hugsa hvernig mín saga yrði. Merki­legt nokk þá hent­aði mér best að telja sjálfri mér trú um að ég væri haldin ofur­krafti sem gerði svona ferða­lög utan á húsum að skemmtun í stað­inn fyrir ógn­ina sem hafði fram til þessa steðjað að mér. Því oftar sem ég fór í gegnum atburða­rás­ina, þeim mun senni­legri fannst mér hún og ég var búin að máta þetta „trikk“ við næstum allar aðstæður sem ég mundi eftir að höfðu komið upp í draumunum vondu.

Á hót­eli mínu í áfanga­stað, eftir þungan dag í vinnu­tengdum verk­efnum, lagð­ist ég til svefns. Ég gætti þess vel að fara yfir „sög­una“ mína áður en ég fór að sofa, og eins og við var að búast fór draum­ur­inn af stað ein­hvern tíma undir morgun. Og ég vissi hálft í hvoru að mig var að dreyma en nú leysti ég með miklu stolti hverja klif­ur­þraut­ina af annarri og vakn­aði bara nokkuð ánægð með sjálfa mig og mjög með­vituð um að nú hefði ég notað þessa ótrú­legu tækni, sem mér fannst hálf­fjar­stæðu­kennd þegar ég heyrði þessa konu segja mér af henni, en virk­aði í fyrstu til­raun. Ég ætla ekki að líkja líðan minni dag­inn eftir við það sem hún hefði verið, hefði ég vaknað af martröð­inni eftir ítrek­aðar til­raunir eins og svo oft áður fyrr. Ég segi ekki að ég hafi hlakkað til að detta í þennan draum aftur, enda fór svo að hann yfir­gaf mig eftir dálít­inn tíma. En van­líð­anin var horfin. Vit­neskjan um að ég þekki aðferð til að losa mig úr þessum aðstæðum hefur styrkt mig og gert líf mitt auð­veld­ara á álags­tímum.“

Tókst að stöðva sjóganginn

„Ég þjáð­ist af sjó­veiki sem barn og kveið því mikið að þurfa stundum að taka Akra­borg­ina. Þessi kvíði elti mig inn í drauma mína og iðu­lega dreymdi mig að ég væri um borð í ferj­unni í miklum sjó­gangi með til­heyr­andi velt­ingi og van­líðan. Eina nótt­ina sem oftar dreymdi mig þennan draum nema þá virt­ist ég gera mér grein fyrir að mig væri að dreyma því ég sagði upp­hátt í draumnum: „Æ, nei, ekki þessi draumur aftur.“ Við þetta kyrrð­ist sjór­inn og velt­ing­ur­inn hætti. Mig dreymdi þennan draum aldrei aftur. Ekki hefði mig grunað áður en þetta gerð­ist að hægt væri að hafa áhrif á drauma sína.“

Óskýrar óskir

„Skömmu eftir útför föður míns dreymdi mig hann. Við töl­uðum ekki mikið saman en það var svo mik­ill ham­ingju­hljómur í rödd hans að ég vakn­aði mun glað­ari og sátt­ari. Mig hefur ekki dreymt hann síðan. Þegar upp­á­halds­systir mín lést, tæpum tutt­ugu árum síðar, átti ég von á að mig dreymdi hana fljót­lega sem gerð­ist þó ekki. Rúmu ári eftir að hún dó ákvað ég með sjálfri mér þegar ég lagð­ist í rúmið að það væri löngu tíma­bært að mig dreymdi hana. Um nótt­ina fannst mér ein­hver segja að mig dreymdi hana oft, ég bara myndi ekki eftir því.

„Rúmu ári eftir að hún dó ákvað ég með sjálfri mér þegar ég lagð­ist í rúmið að það væri löngu tíma­bært að mig dreymdi hana.“

Ég vildi muna og nokkrum kvöldum seinna sofn­aði ég með þann ásetn­ing og í þeim draumi sá ég systur mína úr fjar­lægð. Næsta kvöld hugs­aði ég sterkt um að mig lang­aði að heyra í henni. Þá um nótt­ina dreymdi mig að ég heyrði rödd hennar en röddin barst frá ókunnri konu. Meiri stæl­arnir í und­ir­með­vit­und­inni, hugs­aði ég. Ég gafst upp í bili en fannst þó magnað að getað stjórnað draumum mínum á þennan hátt. Næst þegar ég geri þessa til­raun ætla ég að forma hugs­anir mínar betur, hafa óskir mínar skýr­ari. Nú veit ég að ég get haft áhrif á það hvað mig dreymir og mér finnst það frá­bær upp­götvun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina