Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Háhýsi rísa í skjóli veirunnar

Háhýsi rísa í skjóli veirunnar
Ármann Kr. Ólafsson. Mynd / Skjáskot Kópa­vogs­bær

Íbúar í miðbæ Kópavogs saka bæj­ar­yf­ir­völd um að flýta bygg­ingu háhýsa af ann­ar­legum ástæðum en bæj­ar­stjór­inn vísar því á bug.

Vegna sam­komu­banns­ins sem nú gildir fá íbú­arnir ekki að koma saman til að ráða ráðum sínum vegna fyr­ir­hug­aðrar bygg­ingar háhýsa við Fannborg á svoköll­uðum Trað­ar­reit. Und­an­þágu þess efnis að halda mætti íbúa­fund var hafnað af heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu. Í kjöl­farið fóru íbú­arnir fram á við sveit­ar­fé­lagið að and­mæla­frest­ur­inn sem gildir til 29. apríl næst­kom­andi yrði lengdur þangað til hægt væri að halda íbúa­fund. Þeirri beiðni var einnig hafnað. Ármann Kr. Ólafsson, bæj­ar­stjóri í Kópavogi, segir að farið hafi verið eftir settum reglum og hann hafnar alfarið þeim sögu­sögnum að hann fari að láta af störfum sem bæj­ar­stjóri.

Algjört brjálæði

„Það á hrein­lega að valta yfir okkur íbú­ana í offorsi í skjóli far­sóttar og sam­komu­banns,“ segir Jón Gestur Svein­björns­son, stjórn­ar­maður hús­fé­lag­ins að Fannborg 1-9, sem barist hefur fyrir því að íbúa­fundur fáist hald­inn vegna máls­ins.

„Það á hrein­lega að valta yfir okkur íbú­ana í offorsi í skjóli far­sóttar og sam­komu­banns.“

Hann bendir á að margir íbú­anna á svæð­inu séu eldri borg­arar sem erfitt eigi með fjar­fundi. „Það eru rosa­lega margir ósáttir. Það er verið að taka af okkur næstum öll bíla­stæði sem við höfum, þar með talið stæði eldri borg­ar­anna við Gjábakka. Nú á að byggja margra hæða hús gjör­sam­lega ofan í okkur. Þetta er algjört brjál­æði og að baki þessu hljóta að liggja ein­hverjar ann­ar­legar ástæður, að vera keyra þetta svona í gegn núna á meðan við erum öll læst inni,“ segir Jón Gestur.

Skilur ekki lætin

Fjallað er um málið í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Stofn­aður hefur verið félags­skapur, Vinir Hamra­borgar, til að berj­ast gegn áformum Kópa­vogs­bæjar og segir Jón Gestur fáa sem enga íbúa hverf­is­ins kann­ast við aug­lýs­ingu á þessu skipu­lagi. „Það kann­ast bara eng­inn við að þetta hafi verið aug­lýst og nýlega var svo hald­inn kynn­ing­ar­fundur sem streymt var til íbú­anna. Sá fundur virð­ist vera eini and­mæla­réttur okkar og margir íbú­anna hafa enga hug­mynd um hvernig þetta virkar. Það er verið að fresta mjög mörgu út um allan heim en þessu er sko ekki hægt að fresta. Við skiljum ekki þennan flýti,“ segir Jón Gestur.

Furðar sig á gagnrýninni

Ármann Kr. Ólafsson bæj­ar­stjóri furðar sig á gagn­rýn­inni og seg­ist hafa farið eftir settum reglum og rúm­lega það. Hann telur bæj­ar­yf­ir­völd hafa kynnt málið nægj­an­lega vel. „Við höfum gert gott betur en það. Við erum að reyna okkar besta. Þetta er allt saman aðgengi­legt á vefnum okkar og ég held að eng­inn geti sagst ekki hafa fengið þessar upp­lýs­ingar. Við höfum haldið opin hús, vinnu­stofur og kynn­ing­ar­fund,“ segir Ármann. „Það kemur mér á óvart að fólk hafi ekki vitað um þetta.“

Fjallað er um málið í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ