„Það er okkar tilfinning. Að ofbeldisbrotum sé að fjölga og harkan sé að aukast.“ Þetta segir Helga Rósa Másdóttir, hjúkrunardeildarstjóri bráðamóttöku, í samtali við Fréttablaðið í dag þar sem staðan á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi er til umræðu. Á meðal þess sem fram kemur er að starfsfólk bráðamóttöku taki eftir því að aukin harka sé að færast í undirheimana.
Samkvæmt fréttinni hefur heimsóknum á bráðamótttökuna fækkað mikið undanfarnar
vikur en fjöldi innlagna hefur haldist í stað. Segir Helga Rósa sjúklinga leita í auknum mæli fyrst til heilsugæslunnar. Svo virðist sem tilmæli sóttvarnalæknis um samkomubann og samskiptafjarlægð hafi einnig áhrif. Færri slys verði þar sem fólk er minna á ferli og tilfellum smitsjúkdóma, eins og innnflúensu og nóróveiru, hafi af þeim sökum sömuleiðis fækkað.
Sérðu villu? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






































Athugasemdir