Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Kostnaður við snjómokstur tvöfalt meiri en eftir hrun

Þegar kostn­aður borg­ar­innar vegna vetr­ar­þjón­ustu und­an­farna vetur er bor­inn saman við tíma­bilið 2008 til 2011 sést að hann er tæp­lega tvö­falt hærri síð­ustu ár en á eft­ir­hrunsár­unum. Á upp­lýs­inga­vef borg­ar­innar kemur fram að veð­ur­far ráði mestu um kostn­að­inn. Þjón­ustan er að stórum hluta boðin út.

Kostnaður við snjómokstur tvöfalt meiri en eftir hrun
|Snjó­ruðn­ingur í Reykja­vík í des­em­ber 2009.||||…

Reykja­vík­ur­borg hafði um ára­mótin varið 270 millj­ónum króna í snjó­mokstur og hálku­varnir í vetur. Það er um 39% þess kostn­aður sem hlaust af vetr­ar­þjón­ustu síð­asta vetur. Þetta kemur fram í svari Reykja­vík­ur­borgar við fyr­ir­spurn Mannlífs. Ríflega helm­ingur kostn­að­ar­ins er til­kom­inn vegna vetr­ar­þjón­ustu við götur en fjórð­ungur vegna hreins­unar göngu- og hjóla­leiða.

Borgin hefur að með­al­tali greitt 680 millj­ónir króna fyrir vetr­ar­þjón­ustu síð­ustu fjóra vetur. Á árunum 2008 til 2011 var kostn­að­ur­inn að jafn­aði 283 millj­ónir, eða 387 millj­ónir króna á verð­lagi árs­ins 2019. Því lætur nærri að kostn­að­ur­inn hafi tvö­fald­ast.

„Við búum nú einu sinni á Íslandi“

Þegar snjór fellur í Reykja­vík eða hálka mynd­ast á götum er unnið sam­kvæmt við­bragðs­á­ætlun vetr­ar­þjón­ustu. Eft­ir­lits­maður vaktar aðstæður og kallar út mann­skap eftir þörfum. Stofn­brautir, strætó­leiðir og fjöl­farnar safn­götur njóta for­gangs en miðað er við að strætó­leiðir séu færar fyrir klukkan sjö að morgni. Hreinsun ann­arra meg­in­um­ferð­ar­gatna skal vera lokið fyrir klukkan átta að morgni.

Að sama skapi er við­miðið að göngu- og hjóla­stígar á milli borg­ar­hluta fái for­gang í hreinsun og síðan helstu göngu­leiðir að strætó­bið­stöðvum og skólum. Þær skulu vera greið­færar fyrir klukkan átta á morgn­ana virka daga. Almennir stígar eiga að klár­ast fyrir hádegi. Á vef borg­ar­innar kemur fram að 36 tímum, eða dag­inn eftir að snjór hættir að falla, sé hægt að ljúka hreinsun stíga. Tekið er fram að tíma­á­ætl­anir geti gengið úr skorðum ef það heldur áfram að snjóa. Þá þurfi að fara aftur á byrj­un­ar­reit. „Við búum nú einu sinni á Íslandi,“ segir á vef­síð­unni.

Miðað við 15 sentímetra í íbúagötum

Fram kemur líka að íbúa­götur séu ekki ruddar nema þær séu þung­færar bílum, mikil hálka hafi mynd­ast eða snjó­dýpt meiri en 15 sentí­metrar. Þær eru þó stundum ruddar ef hætta er talin á að frysti þegar snjó­hryggir hafa mynd­ast. „Snjó­hreinsun tak­markast við að gera þessar götur öku­færar og við hálku­eyð­ingu er ýmist not­aður sandur eða salt.“ Fram kemur að við snjó­hreinsun íbúagatna geti mynd­ast snjó­ruðn­ingar við inn­keyrslur. Íbúar verði sjálfir að hreinsa snjó úr inn­keyrslum.

Reykja­vík­ur­borg og Vega­gerðin ann­ast vetr­ar­þjón­ustu á 1.214 kíló­metrum af götum innan borg­ar­markanna. Hér skal tekið fram að um er að ræða svo­kall­aða „ruðn­ings­lengd“, en sama gatan hefur yfir­leitt tvær akreinar en stundum fjórar, sex eða jafn­vel átta, þegar báðar akst­ursleiðir eru teknar með í reikn­ing­inn. 371 kíló­metri er í fyrsta þjón­ustu­flokki borg­ar­innar en 165 í öðrum. Þriðji flokkur nær yfir 418 kíló­metra. Vega­gerðin ann­ast hreinsun á 249 kíló­metrum á stofn­brautum.

Hjóla­leið­irnar sem undir eru telja 811 kíló­metra. Þar af er 63 kíló­metrar í for­gangi. „Þeir sem sinna vetr­ar­þjón­ustu þurfa að leggja að baki 1.745 kíló­metra til að ná einni umferð um allar umferð­ar­götur, göngu- og hjóla­leiðir sem þjón­u­staðar eru í Reykja­vík.“

Þrír verktakar hreinsa göturnar

Í svari borg­ar­innar kemur fram að samn­ingar við verk­taka um snjó­mokstur og hálku­varnir byggi á útboði. Þessari þjón­ustu sé þó hvoru tveggja sinnt af verk­tökum og borg­inni. „Verk­takar sem ann­ast verk­efni á götum frá greitt eftir unnum kíló­metrum sem teknir eru saman með fer­il­vöktun. Í stígum er greitt fyrir lengd stíga,“ segir í svar­inu.

Þrír verk­takar ann­ast snjó­hreinsun og hálku­varnir á götum borg­ar­innar en einn verk­taki ann­ast hreinsun á stígum. Fram kemur að auk þess starfi nokkrir und­ir­verk­takar með hverfa­stöðvum og sinna lóðum og strætó­skýlum, svo eitt­hvað sé nefnt.

Mannlíf spurði meðal ann­ars hvort sam­starf væri á milli borg­ar­innar og ann­arra sveit­ar­fé­laga þegar að kaupum á þess­ari þjón­ustu kemur. Í svar­inu segir að sam­starf við önnur sveit­ar­fé­lag sé aðal­lega við Sel­tjarn­ar­nes, en borgin ann­ast vetr­ar­þjón­ustu stofn­leiða á nes­inu. Þá sé borgin í minni­háttar sam­starfi við Mos­fellsbæ varð­andi mokstur á stígum.

Eftirlitsmaður fylgist með veðri og verktökum

En hver ákveður hvenær skal mokað og hvenær útlit er fyrir að snjór­inn eða hálkan hverfi vegna hláku? Borgin segir í svari sínu að mat á þörf fyrir snjó­mokstur og hálku­varnir hverju sinni sé í höndum eft­ir­lits­manns borg­ar­innar. Sól­ar­hrings­vakt sé á færð gatna en eft­ir­lit með stígum er frá þrjú að nóttu til 17 síð­degis. Tekið er við ábend­ingum um gæði þjón­ust­unnar á vefnum reykja­vik.is/abend­ingar.

Eft­ir­lits­maður fylgist með veð­ur­horfum, vef­mynda­vélum og fer á vett­vang eftir þörfum, sam­kvæmt því sem fram kemur í svar­inu.  Verk­takar séu með fer­il­vökt­un­ar­búnað sem eft­ir­lits­maður hafi aðgang að. Það þýðir að hann getur séð hvar tækin hafa verið að moka.

„Starfs­menn Reykja­vík­ur­borgar og verk­takar á vegum borg­ar­innar eru ræstir út þegar aðstæður kalla á við­brögð og það er oftar en ekki um miðja nótt til að borgin sé klár að taka á móti þunga morg­un­um­ferð­ar­innar.“

Hér sést hvernig kostn­aður Reykja­vík­ur­borgar vegna vetr­ar­þjón­ustu hefur auk­ist á und­an­förnum áður. Veður skýrir að stóru leyti mun á milli ára en einnig þættir eins og fjölgun gatna og stíga. Vetr­ar­þjón­ustu (snjó­mokstur og hálku­varnir) er sinnt á grund­velli útboðs en eft­ir­lits­maður á vegum borg­ar­innar segir til um hvenær skal mokað eða saltað.

Fjórðungur kostnaðarins vegna stíga

Ríflega helm­ingur kostn­aðar vegna vetr­ar­þjón­ustu hjá Reykja­vík­ur­borg er til kom­inn vegna hreinsun eða hálku­varna á götum. Fjórð­ungur er til­kom­inn vegna hreinsun göngu- og/eða hjóla­stíga en 14% vegna snjó­bræðslu. Við hana hefur í auknum mæli verið not­aður salt­pæk­ill en hita­stýr­ingar eru einnig not­aðar.

Fjórð­ungur kostn­að­ar­ins vegna stíga.

Fram kemur í svari borg­ar­innar við fyr­ir­spurn Mannlífs að kostn­að­ur­inn við hreinsun gatna og stíga ráð­ist að mestu af veð­ur­fari en þó beri að hafa í huga að gatna- og stíga­kerfi hafi stækkað í áranna rás. Myndin hér að neðan byggir á raun­kostn­aði árið 2016 en fram kemur að hlut­falls­leg skipt­ing hald­ist nokkuð stöðug á milli ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina