Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Meintur banamaður í gæsluvarðhaldi til 1. júlí: „Höfum einmitt aldrei búið í jafn friðsælli götu“

Meintur banamaður í gæsluvarðhaldi til 1. júlí: „Höfum einmitt aldrei búið í jafn friðsælli götu“
Photo: ja.is Mynd: Lubbi

Maðurinn sem grun­aður er um að hafa orðið öðrum manni að bana í Barða­vogi í gær­kvöldi, hefur verið úrskurð­aður í gæslu­varð­hald til 1. júlí á grund­velli almanna­hags­muna. Hefur Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu kraf­ist gæslu­varð­halds­ins í þágu rann­sóknar hennar á mann­dráp­inu.

Kemur þetta fram í til­kynn­ingu sem barst frá Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í dag.

Segir þar enn­fremur að lög­reglan hafi borist til­kynn­ing um yfir­stand­andi lík­ams­árás fyrr utan hús í Barða­vogi klukkan hálf átta í gær­kvöldi. Var mað­ur­inn með­vit­unda­laus er við­bragðs­að­ila komu á vett­vangt og and­aði ekki. Þegar í stað hófust end­ur­lífg­un­ar­til­raunir á mann­inum en báru þær ekki árangur. Var sak­born­ing­ur­inn í mál­inu á staðnum og var hann und­ir­eins hand­tek­inn og fluttur á lög­reglu­stöð. Segir lög­reglan sak­born­ing og þann látna hafa verið nágranna en að öðru leyti teng­ist þeir ekki.

Samkvæmt frétt DV segir mann­eskja sem býr á Barða­vogi að sá grun­aði hefði lengi sýnt af sér sér­kenni­lega og stundum ógn­andi hegðun. Hafði hann með ann­ars verið ræddur í íbúa­hópi fyrir hverfið á Facebook fyrir fáeinum árum vegna þess að hann hafði verið að stunda það að sparka í hunda.

„Hann er líka stór og sver og það gerir hann meira ógn­vekj­andi,“ segir mað­ur­inn í við­tali við DV og bætti við „þessi strákur hefur verið dálítil plága í hverf­inu, sér­stak­lega fyrir nokkrum árum en ég myndi segja að hann hafi ekki verið til mik­illa vand­ræða und­an­farið. Mamma hans ræður ekki við hann og hann ætti fyrir löngu að vera kom­inn í eitt­hvert úrræði. Þetta er áfell­is­dómur yfir heil­brigð­is­kerf­inu.“

Íbúar í Barða­vogi sem Mannlíf ræddi við höfðu ekki tekið eftir neinu und­an­farið og vissu ekki fyrr en þessi rólega gata var orðin full af lög­reglu­bílum og sjúkra­bílum.
„Ég kom bara af fjöllum. Ég kom heim hér korter í sjö og ætl­aði að fá mér að borða og horfa á frétt­irnar end­ur­teknar. Svo fór ég út í eld­hús að fá mér vatn að drekka og þá er bara gatan full af löggum,“ sagði karl­maður sem býr í göt­unni.

„Nei, það er hús á milli sko. Þannig að við sáum ekk­ert. En svo höfum við verið í öllum gluggum síðan þetta gerð­ist,“ sagði kona sem býr nálægt hús­inu þar sem harm­leik­ur­inn gerð­ist, aðspurð hvort hún hefði orðið var við eitt­hvað í gær­kvöldi. Mannlíf spurði hana hvort hún hefði orðið vör við illindi eða ógn­andi fram­komu í hverf­inu neit­aði hún því. „Við fluttum hingað fyrir tæp­lega ári síðan en við höfum einmitt aldrei búið í jafn frið­sælli og lít­illi botn­langa­götu áður, þannig að þetta var svo­lítið sér­stök upp­lifun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ