Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Morðið við Barðavog: „Lögregla hafði afskipti af manninum vegna ofbeldis tengt rasisma“

Morðið við Barðavog: „Lögregla hafði afskipti af manninum vegna ofbeldis tengt rasisma“
Hinn grun­aði leiddur á braut 2019. Mynd/skjá­skot.

Morð á rúm­lega fer­tugum manni á laug­ar­dag­inn við Barðavog hefur vakið óhug. Sá grun­aði sem tal­inn er hafa myrt mann­inn er fæddur árið 2001. Hann hefur eins og fyrr  hefur komið fram, verið sak­aður um ógn­andi og ofbeld­is­fulla hegðun og ótt­uð­ust nágrannar hann. Lögregla var kölluð tvisvar að hús­inu dag­inn fyrir morðið vegna fram­komu manns­ins en hann var þá ekki hand­tek­inn. Er hann meðal ann­ars sagður hafa veist að íbúa í hús­inu sem er á þrí­tugs­aldri.

Nokkur umræða hefur verið um meint and­legt ástand hins grun­aða og nágrannar hafa lýst þeirri skoðun að hann hafi átt að búa í sér­tæki úrræði en ekki í almennu íbúa­hverfi. Mannlíf hefur engar upp­lýs­ingar að svo stöddu um það hvort leitað hafi verið sér­tækra úrræða fyrir hans hönd né hvernig slíkum beiðnum kunni að hafa verið mætt.

Þær upp­lýs­ingar hafa komið frá lög­reglu að and­legt ástand hins grun­aða sé nú kannað.

Ofbeldi tengt rasisma

Mannlíf greindi frá því að hinn grun­aði hafi verið sak­aður um dýra­níð og hafi lýst yfir á sam­fé­lags­miðlum hatri hundum.

Lögregla hefur einnig haft afskipti af mann­inum vegna ofbeldis sem teng­ist ras­isma. Frétta­blaðið greindi frá því árið 2019 að hann hefði verið hand­tek­inn vegna fram­komu sinnar við mót­mæl­endur sem lýstu yfir stuðn­ingi við flótta­fólk á Aust­ur­velli. Í Frétta­blað­inu kom fram að hann hefði eyði­lagt mót­mæla­spjald og sak­aði einn þátt­tak­andi í mót­mæl­unum hann um að hafa kýlt mót­mæl­anda í and­litið.

Íbúum lengi staðið stuggur af hinum grunaða

Heiða Björg Hilm­is­dóttir, for­maður Vel­ferð­ar­ráðs Reykja­vík­ur­borgar og vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, er íbúi í hverf­inu þar sem voða­verkið var framið og vottar hún íbú­unum samúð sína í færslu sem hún birti í íbúa­hópi Lang­holts­hverfis á Facebook. Í ummælum undir þeirri færslu er vakin athygli á því að íbúum hafi lengi staðið stuggur af hinum grun­aða og hann hafi þurft sér­tæk úrræði sem hann hafi ekki fengið. Einn íbúi vekur jafn­framt athygli á vanda ann­ars ein­stak­lings sem býr í hverf­inu:

„Það er ekki hægt annað en að taka undir þetta, sér­stak­lega í ljósi þess að harm­leik­ur­inn hefur átt sér margra ára aðdrag­anda. M.ö.o., þá hefði verið hægt að koma í veg fyrir þetta og það er þyngra en tárum taki. Kannski vekur þetta áhuga vel­ferð­ar­sviðs, Heiða Björg Hilm­is­dóttir, á að leysa málin á Lang­holts­vegi 19 þar sem afskap­lega veikur ein­stak­lingur býr á vegum borg­ar­innar og hefur valdið öðrum íbúum (2 ára upp í 92 ára) ómældum vand­ræðum, ónæði, hræðslu og svefn­leysi, svo eitt­hvað sé nefnt. Það ætti að segja sitt ef ein­föld taln­ing yrði gerð á sím­tölum með kvört­unum til vel­ferð­ar­sviðs og eins tölum um komur lög­reglu á stað­inn til að skakka leik­inn (að beiðni íbúa sem gjarnan vilja sofa á nótt­unni). Það er mér óskilj­an­legt, allra vegna, að hægt sé að horfa fram­hjá svona lög­uðu.“

Heiða Björg svarar og bendir á að hún þekki ekki til þessa máls og það eitt hafi vakað fyrir henni með skrif­unum að tjá íbú­unum samúð sína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi