Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Eiríkur fékk óhugnanlega tölvupóst – „Fullt af fólki hatar og eða fyrirlíta Pólverja“

Eiríkur fékk óhugnanlega tölvupóst – „Fullt af fólki hatar og eða fyrirlíta Pólverja“
Eiríkur Rögn­valds­son

Eiríkur Rögn­valds­son, fyrr­ver­andi pró­fessor í íslenskri mál­fræði við Háskóla Íslands, deilir á Facebook nafn­lausum tölvu­póst sem honum barst eftir að hann kom fjall­kon­unni til varnar. Fjall­konan í ár var Sylwia Zajkowska en hún er af pólsku bergi brotin. Hún flutti ávarpið með hreim og fór það fyrir brjóstið á sumum.

Eiríkur var ekki þar á meðal. Þetta ræddi hann í þætt­inum Sprengi­sandur á Bylgj­unni fyrr í dag. Eiríkur sagð­ist ánægður með ávarp Sylwíu. Hann enn­fremur hvatti Íslend­inga til að sýna út­lend­ingum sem tala ó­full­komna ís­lensku eða ís­lensku með sterkum hreim þolin­mæði.

„Við þurfum bara að gera það upp við okkur; ætlum við að auð­velda þessu fólki að ná valdi á ís­lensku og sýna því þá þolin­mæði á meðan það er að læra málið eða ætlum við að vera ó­sveigjan­leg í kröfum um ein­hverja full­komna ís­lensku, full­kom­inn fram­burð og full­komnar beyg­ingar og svo fram­vegis?“ sagði Ei­ríkur meðal ann­ars.

Þessi afstaða hans varð svo til þess að honum barst óhugn­an­lega bréfið. „Í morgun var talað við mig í þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni í fram­haldi af því sem ég skrif­aði um dag­inn um erlendan hreim hjá fjall­kon­unni. Ég reikna með því að það sem ég sagði þar sé ástæðan fyrir því að ég fékk eft­ir­far­andi nafn­lausan tölvu­póst áðan. Mér fannst það satt að segja frekar óþægi­legt og óhugn­an­legt,“ segir Eiríkur á Facebook.

Hann birtir bréfið í heild sinni en sá sem heldur á penna virð­ist hata Pólverja. „Fólk vill ekki þennan mikla inn­flutn­ing á útlend­ingum og þess vegna hatar fólk að pólsk mann­eskja skuli vera val­inn og svo bætir það ekki að hún kunni ekki íslensku. Vinstra fólk eins og þú búið í LA  LA landi. Þið hafið enga til­finn­ingu hvað er að ger­ast í hausi fólks. Hatrið mun bara vaxa og það er á ábyrgð fólks eins og þér. Að flytja fólk frá öðrum menn­ingum í stórum stíl er hættu­legt fyrir lýð­ræðið. Ekki mál­far. Hennar van­kunn­átta hafði minnst um það að segja að fólk tjáir sig um þetta á nei­kvæðan hátt. Fullt af fólki hatar og eða fyr­ir­líta Pólverja,“ segir bréfskrif­ari.

„Maðurinn sem skaut á Pól­verj­ann vissi að hann var að skjóta á útlend­ing og jafn­vel að hann var að skjóta á Pólverja. Kannski var fjall­konu­at­riðið hvötin af því. Það sem fyllti mæl­inn hjá honum. Bullið sem kemur oft frá álits­gjöfum í fjöl­miðlum er stundum alveg ein­stakt. Svo ýtur þú enn meira undir þetta hatur með því að segja að það muni koma ennþá fleiri útlend­ingar í landið og gerir sjálfan þig aug­ljós­lega að manni sem óskar eftir fjöl­menn­ingu vegna ein­hverja und­ar­legra hvata og eða kannski ein­göngu byggt á ein­hverri und­ar­legri hug­mynd­ar­fræði að við munum öll vera svo ham­ingju­söm sem ólíkt fólk með ólíkar hug­myndir um lífið.“

Að lokum kvartar mað­ur­inn yfir meintum ras­isma Pólverja. „Að það sé allt í lagi að flytja inn fólk í stórum stíl sem hafa mikla for­dóma gagn­vart sam­kyn­hneigðum og fólki af öðrum kyn­þáttum. Þá er ég að tala um Múslima, Pólverja og Úkran­íu­menn til dæmis. Þeirra for­dómar eru miklir. Talaðu við tíu Pólverja og að minnsta kosti fimm þeirra munu sýna for­dóma. Talaðu við tíu trú­ar­iðk­andi Múslima og að minnsta kosti fimm þeirra munu tjá hatur gagn­vart Vest­ur­löndum og fylgni gagn­vart Sharía lögum. Þið í Háskól­anum sjáið heim­inn í ein­hverri síu sem bygg­ist ekki á stað­reyndum. Frekar ósk­hyggju. Fræða­sam­fé­lagið er ekki gáf­aðri en það. Byggir meira á hug­mynd­ar­fræði frekar en stað­reyndum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina