Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Annþór barði bara aðra glæpamenn: Barnaníðingar og fjárglæframenn fá sérmeðferð á Íslandi

Annþór Kristján Karlsson talar í við­tali við Reyni Trausta­son meðal ann­ars um tím­ann í fang­els­inu en í allt sat hann inni í um 12 ár. Hann talar um skoðun sína á því hvernig honum finnst að fang­els­is­mál ættu að vera hér á landi og hann talar um dag­inn í dag en Annþór hefur lagt áherslu á að mennta sig og ætlar að halda áfram að vera í námi næstu árin.

„Ég er búinn að sitja inni í heild­ina í 12 ár af ævinni,“ segir Annþór Kristján Karlsson og segir að þar með sé sá tími sem hann var með ökkla­band og á Vernd; þetta sé allt fang­els­is­tími.

Annþór seg­ist halda að fang­elsi á Íslandi séu mjög góð ef horft er til heims­vísu. „Þetta er stór heima­vist­ar­skóli af böldnum piltum.“

Það er oft sagt „Don’t do the crime if you can’t take the time.“

Var það aldrei erfitt að sitja inni?

„Það er oft sagt „Don’t do the crime if you can’t take the time.“ Auðvitað er þetta mis­jafnt fyrir menn­ina sem sitja inni. Það er alveg svo­leiðis. Fyrir mig var þetta ekki erfitt en þetta tók nátt­úr­lega rosa­lega stóran toll af mínum nán­ustu. Ég á auð­veld­ara með þetta þó það hafi verið ég sem var inni í fang­elsi heldur en þeir sem standa manni kannski næst.“

Stétta­skipt­ing í fang­elsum berst í tal og er Annþór spurður hvort hann hafi verið gæinn sem öllu réði um tíma í fang­els­inu.

„Ekki beint kannski öllu réði. Ég kannski gat stjórnað ein­hverjum sem ég vildi stjórna. Þetta er ekki eins og í amer­ískri bíó­mynd þar sem allir standa í kringum einn og hann ræður öllu og allir passa hann.“

Þarna eru þeir lægstu af öllum sem eru barn­a­níð­ing­arnir. Þeim er haldið sér.

„Já.“

Þeir eru í hættu innan fang­els­is­ins.

„Já. Fang­elsið hefur gert mikið í því að vernda þá. Það er reynt að passa vel upp á þá sem ger­ast sekir um að mis­nota börn. Það er erfitt fyrir þá að vera í fang­elsi í sjálfu sér. Ég er kom­inn til að ræða um hvað mér finnst um margt og þá er það bara að þeir eiga ekk­ert heima í fang­elsi. Þeir eiga bara heima á sjúkra­stofnun. Þetta er ein­hver girnd sem er ekki eðli­leg og það eru allir sam­mála um það og fang­elsi er ekki að fara að gera neitt; þú setur engan ofan í skúffu og hann kemur upp úr skúffu og er hættur að vera með barna­girnd. Það segir sig bara sjálft. Og yfir­leitt er afsök­unin hjá þessum mönnum sú að þeir hafi verið svo dóp­aðir eða þeir hafi verið svo fullir og ég veit ekki hvað. Af hverju eru þá ekki allir sem eru svona dóp­aðir og fullir að mis­nota börn út um allan bæ? Af því að það er ekki í þeirra eðli. Það er bara mín skoðun og mér finnst að þessir menn eigi ekki heima þarna. Þeir eiga bara heima á stofnun sem vinnur í því að gera þá að virkum sam­fé­lags­þegnum.“

Varstu ekki vondur við barn­a­níð­ing­ana?

Ég var svo mikið í starfi fyrir fanga almennt.

„Ekki þannig. Ég var svo mikið í starfi fyrir fanga almennt. Ég var í Afstöðu sem er félag fanga og var þar í fjölda ára ann­að­hvort sem með­limur eða for­maður og var mikið í því að skrifa bréf, kæru­bréf, fyrir fanga af því að stað­reyndin er sú að mjög stór hluti fanga er óskrif­andi; þá er ég ekki að tala um að þeir séu ekki læsir og skrif­andi heldur eru þeir óskrif­andi á þessu máli.“

Stofn­ana­máli.

„Já. Þeir væru „ég er brjál­aður út af þessu og fokk­ing fíflið gerði þetta og ég vil að hann fokk­ing fari í rass­gat“. Ég verð að afsaka talsmát­ann hjá mér; en það þurfti að koma  orð­unum þannig að hlut­unum að það væri tekið mark á því. Ég hef skrifað hund­ruði kæru­bréfa.“

Nokkrar Kvíabryggjur

Sagt hefur verið að Annþór hafi farið inn sem óstýri­látur krakki og komið út sem glæpa­maður.

„Já, það er einmitt hluti af því sem við erum að fara að ræða um núna – það er hvernig ég sé fyrir mér fang­elsi eða fang­els­is­mál öllu heldur. Og það er kannski stóri þátt­ur­inn í þessu. Ég fór inn í fang­elsi sem vand­ræðaung­lingur, dópisti og inn­brots­þjófur og kom út með sam­bönd til þess að fara að flytja inn fíkni­efni. Ég kom út í raun­inni sem glæpa­maður en ekki bara sem smá­krimmi. Ég vil að Hólms­heiði sé mót­töku­fang­elsi eins og það er; menn séu teknir þar inn og reynt að meta þá eitt­hvað og reynt að láta þá vera edrú og svo fram­vegis en svo byrji allir á kvía­bryggju. Ég veit ekki hvað það þarf margar Kvía­bryggjur; ég er ekki með ein­hverjar tölur fyrir framan mig. Þarf 10 Kvía­bryggjur til að gera þetta? Ég veit það ekki. Við vitum að það að byggja eina Kvía­bryggju kostar mörgum sinnum minna heldur en stórt fang­elsi með óbrot­hættum rúðum, öllu í raf­magni, stál­hurðum og ég veit ekki hvað. Ég er að tala um að byggja bara venju­leg hús eins og Kvía­bryggju nema kannski 10 svo­leiðis. Það er alltaf gert ráð fyrir að það eigi að byrja að refsa þeim sem fara í fang­elsi; það á reyndar ekki við um alla.

Ég vil sjá fang­els­is­kerfi þar sem væru þessar 10 Kvía­bryggjur, eins og við erum búnir að nefna þær, þar sem væri ein fyrir kyn­ferð­is­brota­menn gegn börnum þar sem þeim væri bara sinnt og væru ekki sendir á hinar Kvía­bryggj­urnar.“ Annþór segir að föngum líði oft illa þegar börn þeirra séu í heim­sókn og séu að leika sér fyrir framan menn sem eru dæmdir kyn­ferð­is­af­brota­menn gegn börnum.

Svo myndi ég vilja sjá unga afbrota­menn sér.

Hann segir síðan að ein Kvía­bryggja gæti verið fyrir erlenda fanga sem hafa ekki fasta búsetu hér á landi. „Þeir færu í sér­fang­elsi til þess að varna því að það mynd­ist þessi stöð­ugu sam­bönd af því að þau eru alltaf að end­ur­nýja sig með þessum ein­stak­lingum sem koma til lands­ins; það kemur ein­hver gaur sem smyglar dópi inn­vortis eða í tösku eða hvernig sem hann gerir það: Hann fer á Litla-Hraun. Þar kynn­ist hann fleirum. Kerfið er að hjálpa við að láta þetta rúlla. Þess vegna vil ég sjá þessa ein­stak­linga sér.

Svo myndi ég vilja sjá unga afbrota­menn sér af því að þeir eiga ekki að fara með þessum eldri til þess að læra ekki eins mikið þar og fá ekki þessar glans­myndir endi­lega af mögu­lega ein­hverjum sem eru eldri og ein­hverjar kanónur í fagn­inu ef það má orða það svo­leiðis.

Og svo þessi almenni íslenski eða erlendi fangi sem er búsettur á Íslandi,“ segir Annþór og á þá við enn eina Kvía­bryggj­una fyrir þann hóp.

Reglur Fangelsismálastofnunar

Annþór segir að Fang­els­is­mála­stofnun eigi ekki að hafa eitt­hvað vald. „Þeir eiga bara að vinna eftir ákveðnum ramma; ekki að það sé geð­þótt­ar­á­kvörðun hjá stofn­un­inni hvað þeim þókn­ast eða ekki. Það á bara að vera þannig að ef þú brýtur af þér til dæmis á Kvía­bryggju 3 þá eru það þrír mán­uðir eða mán­uður eða sex mán­uðir eða hvað það er á Hrauninu og svo teyg­ist það ef þú heldur áfram að brjóta af þér þar að sjálf­sögðu.“

Annþór talar um annað mál­efni sem hann segir að sé alger­lega galið og það sé að „dómar Íslands dæmi ein­stak­ling í fang­elsi; ekki að það sé galið heldur að menn fá sama dóm. Dúddi dópisti stelur 300 sam­lokum og svo kemur fjár­glæframaður og stelur þremur millj­örðum. Báðir fá þessir ein­stak­lingar þrjú ár. Þeir eru dæmdir til þriggja ára fang­elsis. Að sjálf­sögðu á ekki að vera eitt­hvað vald hjá Fang­els­is­mála­stofnun af því að annar er fínn í jakka­fötum að þá fari hann beint á Kvía­bryggju; fær verð­laun bara strax. En Dúddi dópisti sem stal 300 sam­lokum fer beint á Litla-Hraun. Þeir voru báðir dæmdir í 36 mán­aða fang­elsi; þriggja ára fang­elsi. Og að það sé hægt að refsa öðrum meira heldur en hinum!“

Það er bara rangt.

„Það hlýtur að vera rangt. Nema að þá ætti dóm­stóll­inn að kveða á um það ef það á að vera svo­leiðis en ekki Fang­els­is­mála­stofnun,“ segir Annþór og bætir við að sér finn­ist vera alveg galið að stofn­unin fái að ráða því hvernig úttekt við­kom­andi á að vera: Báðir fengu þriggja ára dóm. „Afsökun þeirra er sú að það séu miklu minni líkur á að þessi í jakka­föt­unum brjóti af sér.

Svo er annað: Ef þú stelur þremur millj­örðum þá færðu helm­ing af dómnum þínum; þarft bara að sitja helm­ing. En ef þú brýtur nefið á öðrum glæpa­manni þá þarf ég að sitja 2/3. Og það eru reglur Fang­els­is­mála­stofn­unar.“

Ég var bara að berja ein­hverja aðra glæpa­menn sem gerðu eitt­hvað af sér.

Það snýst ekk­ert um dóm­inn sjálfan?

„Nei, það skiptir engu hvað þú gerðir. Nú er ég búinn að lifa og hrær­ast í þessum heimi rosa lengi. Jú, jú, þekktur fyrir það að vera ofbeld­is­maður en ég var aldrei að berja venju­legt, sak­laust fólk úti á götu. Það var ekk­ert svo­leiðis. Ég var bara að berja ein­hverja aðra glæpa­menn sem gerðu eitt­hvað af sér. Eins og ég segi: Fyrir að kíla annan glæpa­mann í nefið og fá dóm fyrir það þá fæ ég 2/3 en ef ég ræni þremur millj­örðum þá fæ ég helm­ing.“

Þetta er svo­lítið klikkað; það verður að segj­ast eins og er.

„Mér finnst það. Svo er annað; gaur­inn sem myndi brjót­ast inn heima hjá þér og stela öllu í kringum þig þegar þú værir sof­andi fengi líka helm­ing. En sá sem hefði smyglað inn tveimur kílóum af hassi þyrfti að sitja inn 2/3. Myndi þér ekki finn­ast sá hættu­legri sem væri yfir rúm­inu hjá sak­lausum manni heldur en ein­hver sem flutti inn tvö kíló af hassi?“

Edrú í glæpum

Þú hættir að drekka fyrir mögum árum.

„Já, mér fannst það til­tölu­lega auð­veld­ara heldur en að hætta í brans­anum eins og maður segir. Búinn að vera edrú í rúm 15 ár. En það hélt mér samt ekki frá því að vera í glæpum.“

Þannig að þú varst edrú í glæpum.

„Já.“

Er það ekki svo­lítið snúið?

„Nei, ég hef ekk­ert verið feim­inn við það; hvort maður var í hand­rukk­unum eða inn­flutn­ingi eða ein­hverju. Þú getur alveg eins gert þetta edrú.“

Bara vinna sér inn pen­ing.

„Já.“

Og ég öfund­aði þá eitt­hvað af því og ákvað að skella mér á AA-fundi.

Hann segir það hafa verið AA-tengt að hann hætti í neyslu. „Það kom strákur upp á Litla-Hraun með fundi og mér fannst þeir hafa eitt­hvað. Það var ein­hver gleði sem fylgdi þeim; ekki gleðin sem fylgir því þegar ein­hver á mik­inn pen­ing eða var að kaup sér nýjan bíl. Þetta var ein­hver innri gleði. Og ég öfund­aði þá eitt­hvað af því og ákvað að skella mér á AA-fundi og úr varð að ég fór þá leið.“

Tókst þér strax að hætta?

„Já.“

Í fyrstu til­raun?

„Já. Vanda­málið hjá mér var kannski það að mér fannst ég aldrei vera alki. Það var alltaf ein­hver verri en ég; ég átti mitt hús, pen­ing og það var ekki allt í rúst í kringum mig. Ég var ekk­ert eins og Halli Hlemmur sem var róni á Hlemmi. Það var allt í góðu hjá mér. Ég náði að verða edrú með hjálp AA-sam­tak­anna og þeirra spora­vinnu þar. Svo var það næsta að hætta í brans­anum.“

Það var erfitt.

„Það var rosa erfitt. Það var svo erfitt. Ég var búinn að vera þarna inni alla tíð. Og það var svo erfitt að segja „nei, ég er ekki til í þetta“ þegar það var eitt­hvað sem vinir þínir ætl­ast til. Þú hefur ein­hverjum skyldum að gegna innan þessa sam­fé­lags. Auðvitað er sam­fé­lag innan okkar sam­fé­lags. Það eru ákveðnar leik­reglur. Það eru ákveðin lög.“

Þú með þetta ægi­lega orð­spor; það er ekki mikið mál að rukka ein­hvern. Menn bara borga þegar þeir heyra af þér.

„Já, mjög oft. Allavega ef þeir áttu pen­ing.“

Það er ekk­ert grín að fá þig til að banka.

„Nei, fólki líkar það ekk­ert vel.“

Nennti ekki þessu ves­eni, vand­ræðum, enda­laust og vera þessi fígúra: Annþór.

Annþór seg­ist hafa verið dæmdur síð­ast árið 2011. „Ég fékk ein­hvern veg­inn nóg. Fékk nóg af þessu og ein­hvern veg­inn nennti þessu ekki; nennti ekki þessu ves­eni, vand­ræðum, enda­laust og vera þessi fígúra: Annþór.“

Allir skít­hræddir við þig.

„Vera þessi fígúra. Mig lang­aði ekk­ert að vera þar. Mér líður æðis­lega í dag. Auðvitað eru mínir dagar upp og niður eins og þínir og allra en ég er ekki með ein­hver vanda­mál á herðum mér að gá út um glugg­ann hvort lög­reglan sé að elta mig eða hvort Palli barði Gunna eða Jói rændi af Sigga. Enda­laust eitt­hvað svona vesen.“

Þetta gerð­ist þegar búið var að loka þig inni í þess­ari síð­ustu lotu.

„Já, þá ein­hvern veg­inn fékk ég nóg.“

Annþór segir að í des­em­ber næst­kom­andi verði hann ekki lengur á saka­skrá. „Þá verð ég með hreina saka­skrá. Það verður áfangi.“

Hann segir að eitt af því góða við fang­els­is­kerfið hér á landi sé að föngum sé greitt fyrir að vera í skóla. Og hann nýtti sér það.

„Auðvitað ætti kerfið að vera þannig að það er haldið utan um menn. Mér finnst alltaf vanda­málið í fang­els­is­kerf­inu vera að það er fjársvelt kerfi eins og mörg önnur kerfi. Það er erfitt að fara að rétt­læta það og kvarta yfir því að fang­els­is­kerfið sé fjársvelt þegar heil­brigðiskefið er í molum. Auðvitað verðum við að ræða það sem er að og það gleym­ist oft í þessu að allir þessir ein­stak­lingar sem eru að brjóta af sér kosta ríkið gríð­ar­lega fjár­muni og ein­stak­linga í sam­fé­lag­inu líka; það er verið að brjót­ast inn hjá þeim og það er verið að valda þeim eigna­tjóni. Það er verið að valda ein­hverjum heilsutjóni. Þessir ein­stak­lingar eru bara fíklar yfir höfuð. Þeir eru dýrir í kerf­inu alls staðar. Auðvitað vil ég að það sé nóg af lög­reglu­mönnum en það eru svo margir glæpa­menn. Og það þarf ein­hver að vera að rann­saka þetta. Og dóm­arar; það þarf að borga pen­inga þangað. Alls staðar blæðir kerf­inu út af mönnum eins og ég var. Ég var ógeðs­lega dýr ein­stak­lingur fyrir sam­fé­lagið þannig að það er til ofboðs­lega mik­ils að vinna við það að ná hverjum og einum ein­stak­lingi til baka. Og það er mín skoðun að það ætti að setja meiri pen­ing í þennan mála­flokk af því að það verður eng­inn betri af því að setja hann ofan í skúffu og taka hann úr skúff­unni eftir eitt, tvö, þrjú, fjögur, fimm eða kannski 19 ár.

Sýknaður

Annþór er spurður hverju hann sjái mest eftir þegar hann lítur um öxl.

Ég er í skóla enda­laust og mér gengur vel í því.

„Ég veit það ekki. Það er svo ofboðs­lega margt sem maður hefur gert af sér sem er ekki fal­legt og er ekki gott. Ég held að maður þurfi frekar að horfa fram á veg­inn og reyna að gera betur í því sem er fyrir framan sig heldur en að dvelja enda­laust í því sem maður gerði. Ég er í skóla enda­laust og mér gengur vel í því; ég er að mennta á mér rass­gatið og ég er sáttur.“

Hann seg­ist vera húsa­smíða­meist­ari og bygg­inga­iðn­fræð­ingur. „Um jólin verð ég með BS í bygg­inga­fræði en ég ætla að verða húsa­smíða­meist­ari, múr­ara­meistar og mál­ara­meist­ari og ég ætla að verða bygg­inga­iðn­fræð­ingur og bygg­inga­fræð­ingur. Ég ætla að vera með upp­á­skrift­ar­rétt­indi fyrir teikn­ingar.“ Hann vill líka fá rétt­indi sem mats­maður.

Hvað ætlar þú að gera við þetta allt?

„Ég á enga líf­eyr­is­sjóði eða neitt þess háttar; ég er illa settur sam­fé­lags­lega er við horfum beint á það og ein­hvern veg­inn verði ég að búa mér til pen­inga. Ég vil gera það með því að mennta á mér rass­gatið núna í ein­hvern smá­tíma þannig að ég geti átt langan starfs­aldur. Þótt ég sé með heils­una í dag og mjög hraustur þá veit ég ekk­ert hversu lengi heilsan heldur. Ef heilsan fer á ein­hverjum punkti að gefa sig þá á ég mér langan starfs­aldur með því að geta skrifað upp á og verið í eft­ir­liti.“

Annþór seg­ist lifa ein­földu lífi í dag og að sér finn­ist það vera æðis­legt.

Ferðu snemma að sofa?

„Nei, ég er með svefn­rösk­un­ar­vanda­mál. Ég get sofið enda­laust. Ég vakna alltaf þreyttur. Þetta er víst ein­hver sjúk­dómur. Þetta er mjög leið­in­legt. Það skiptir engu máli hvort ég sofi þrjá tíma eða 12. Ég vakna alltaf þreyttur.“

Það hlýtur að vera kostur að geta sofið hvar og hvenær sem er ef maður er lok­aður inni.

„Já, ég var hann­aður fyrir það að setja mig í ein­angrun. Ég gat bara sofið viku eftir viku eftir viku 18-20 tíma á sól­ar­hring.“

Hver var lengsta ein­angr­unin sem hann var settur í?

Við vorum grun­aðir um að drepa sam­fanga okkar.

„Þótt þeir vilji ekki kalla það ein­angrun þá lenti ég og Börkur í ein­angrun í eitt og hálft ár. Við vorum bara tveir saman á gangi. Það var ekki kallað ein­angrun af því að við vorum lok­aðir saman á gangi. Við vorum grun­aðir um að drepa sam­fanga okkar og það er rétt­látt þannig að það væri ófor­svar­an­legt að vista okkur meðal ann­arra fanga af því að við vorum grun­aðir um að hafa drepið fanga. Ef ég væri úti á götu og hefði drepið örv­henta Vest­firð­ing með gler­augu þá væri ég samt vistaður með örv­hentum, öðrum Vest­firð­ingum og öðrum mönnum með gler­augu.“

Þessu máli lauk með því að þið voruð sýkn­aðir.

„Við vorum sýkn­aðir bæði í hér­aði og Hæsta­rétti. Þeir gengu svo langt með þetta.“

Annþór fór með mál sitt til Evr­ópu­dóm­stóls­ins og tap­aði því.

„Þar eru þeir til dæmis að horfa til Tyrk­lands. Evr­ópu­dóm­stóll­inn er ekki að horfa til í hvernig sam­fé­lagi við lifum á Íslandi. Ef það hefði verið dæmt mér í hag; hvað heldur þú að margir Tyrkir ættu rétt á bótum í Tyrk­landi?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina