Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Sonur Páls fæddist í líkama stúlku: „Auðvitað hefur þetta verið ákveðið sorgarferli“

Sonur Páls fæddist í líkama stúlku: „Auðvitað hefur þetta verið ákveðið sorgarferli“
Páll Jóhann­es­son Mynd: PalliJo

„Það má kannski segja að þetta hafi verið ákveð­inn missir. Við hjónin vorum með litla stúlku í hönd­unum fram yfir tví­tugt sem hét í höf­uðið á ömmu sinni. Þetta varð vissu­lega ákveðið sorg­ar­ferli sem við gengum í gegnum en samt sem áður hef ég ekki viljað snúa til baka vegna þess að það hefur fært Snævari meira sjálfs­ör­yggi að vera eins og hann er í dag þó það séu erf­ið­leikar að plaga hann lík­am­lega en hann er lík­ari sjálfum sér í dag heldur en hann var búinn að vera lengi. Jú, auð­vitað hefur þetta verið ákveðið sorg­ar­ferli en ég lít samt ekki þannig á það í dag,“ segir Páll Jóhann­es­son, faðir Snævars Óðins sem sagði sögu sína í Mannlífi.

Snævar fædd­ist í lík­ama stúlku og hefur gengið í gegnum fimm aðgerðir í kyn­leið­rétt­ing­ar­ferlim

Hræddur við allan fjandann

Páll og eig­in­kona hans, Margrét Pálma­dóttir, eign­uð­ust fyrir 32 árum sitt yngsta barn.

Stúlku.

„Hann var orð­inn mjög ákveð­inn þegar hann var bara nokk­urra mán­aða.“

Svo leið tím­inn.

„Hann vissi alltaf hvað hann vildi verða þegar hann var barn; hann sagð­ist alltaf ætla að verða for­seti. Ég var sjó­maður á frysti­tog­ara og við tveir gengum í gegnum mjög erfitt tíma­bil en hann var alltaf svo óhemju­hræddur við mig þegar ég kom heim. Ég var vana­lega á sjónum í einn og hálfan mánuð og svo kom ein­hver ókunn­ugur karl og fór að sofa hjá mömmu hans í nokkra daga og svo var hann bara far­inn. Snævar var kom­inn vel á annað ár þegar við náðum smá­teng­ingu.“

Þögn.

„Það fór aldrei neinn neitt með hann þegar Snævar var kom­inn í leik­skóla og fór það eftir því hvernig lá á honum. Ef leik­skóla­kenn­ari bauð honum til dæmis góðan dag­inn þá sagði hann jafn­vel „ég vil ekki tala við þig í dag“. Það var borin virð­ing fyrir því. Hann hafði skoðun á því við hvaða leik­skóla­kenn­ara hann vildi tala.“

Páll segir að æska Snævars hafi lit­ast af áráttu- og þrá­hyggjuröskun en Snævar tal­aði um það í við­tal­inu auk þess sem hann greind­ist í æsku með kvíða­röskun og hefur hann tekið lyf við þessum rösk­unum frá því hann var barn.

Þetta var mjög erf­iður tími sem hann gekk í gegnum.

„Það fór ekki að bera á þessu fyrr en um það leyti sem hann var að byrja í grunn­skóla. Hann var hræddur við allan fjand­ann. Hann var hræddur um að það kæmu múm­íur og hann átti von á því að það kæmu ýmis skrýmsli og annað upp úr kló­sett­inu heima. Þetta var mjög erf­iður tími sem hann gekk í gegnum. Það þurfti til dæmis alltaf að vera ein­hver með honum þegar hann fór á kló­settið. Það var ekki fyrr en hann komst að hjá geð­lækni þegar hann var sjö ára ára sem þetta fór að lag­ast. Þetta var erfitt ferli en alveg þess virði að ganga í gegnum það.“

Páll segir að þessir erf­ið­leikar hafi tekið á þau hjónin á mis­jafnan hátt. „Þetta hafði allt önnur áhrif á mig heldur en mömm­una. Ég er miklu skap­meiri heldur en konan mín og átti ekk­ert til sem hét þol­in­mæði. Ég er ekki að segja að þetta hafi verið erf­ið­ara fyrir mig en ég átti erf­ið­ara með að sýna þessu umburð­ar­lyndi um tíma. Mamman aftur á móti hélt alltaf ró sinni og það virt­ist ekk­ert hagga henni í gegnum þessa erf­ið­leika.“

Mjög róstursamur tími

Vanda­málin urðu önnur á ung­lings­ár­unum.

„Við for­eldr­arnir átt­uðum okkur á því að hann vissi ekki hvað hann var í raun og veru. Hann gekk í gegnum það að vera sam­kyn­hneigður, tví­kyn­hneigður og gagn­kyn­hneigður. Þetta voru mjög róst­ur­samir tímar. Þegar hann kom út úr skápnum og fór að segja okkur að hann upp­lifði sig sem strák þá vorum við for­eldr­arnir búnir að átta okkur á því. Við biðum eftir að hann stigi þetta skref. Það var eitt og annað í fari hans sem við vorum búin að átta okkur á. Hann ólst upp sem stúlka og ung­lings­stúlka og fékk þá stór brjóst og hann vildi ekki vera með þau. Hann gerði allt til að láta þau sýn­ast minni. Þannig að það var eitt og annað sem gerði það að verkum að mann grun­aði að það væri eitt­hvað. Kannski var það líka vegna þess að við höfðum kynnst vini hans sem er trans­kona í dag. Senni­lega hefur það hjálpað okkur við að átta okkur á hvað var í gangi með Snævar. Ég held að það sé alveg óhætt að full­yrða að það hafi hjálpað honum að kynn­ast þessum vini sem er vin­kona í dag. Hann var þá ekki einn.“ Páll er spurður hvort það hafi jafn­vel haft enn meiri áhrif en ella að hafa kynnst henni á ung­lings­ár­unum upp á að koma út. „Ég veit það ekki. Ég upp­lifði það aldrei þannig. Ég þori ekki að full­yrða að það hafi haft ein­hver áhrif en ég er ekki viss.“

Þetta var erfitt fyrir okkur öll þegar hann var orð­inn ung­lingur.

Páll segir að það sé alltaf erfitt þegar börn­unum líður ekki vel og hafa ekki lausnir. „Maður verður dálítið van­mátt­ugur þegar maður sér barnið sitt þjást. Maður vissi ekki nákvæm­lega af hverju hann þjáð­ist og þaðan af síður vissi maður hvernig maður ætti að bregð­ast við því. En við gátum frekar gert það þegar hann var yngri varð­andi þrá­hyggj­una en þá vissum við að við gætum leitað aðstoðar hjá góðum geð­lækni sem hjálp­aði honum og okkur mjög mikið. Þetta var erfitt fyrir okkur öll þegar hann var orð­inn ung­lingur.“

Aukið sjálfsöryggi

Páll segir að þegar Snævar tal­aði um að hann vildi fara í kyn­leið­rétt­ing­ar­ferli hafi tvennt verið í stöð­unni fyrir sig: Ann­að­hvort að snúa baki við honum eða standa með honum. „Maður snýr ekki baki við barn­inu sínu. Það er bara svo ein­falt mál. En það er ekki auð­velt að vera búinn að ala upp stúlku sem varð svo drengur þegar upp er staðið. Þetta er ekki auð­velt en við höfðum ekk­ert val. Og við höfðum heldur enga heim­ild til þess að setj­ast í dóm­ara­sæti. Það er svo erfitt að setja sig í til­finn­ingar ann­arra. Þetta var erfitt fyrst. Ég ætla ekk­ert að draga fjöður yfir það. En þetta þroskaði okkur for­eld­rana mjög mikið. Það kom aldrei upp sú hugsun í þessu ferli að þetta hafi verið rangt af honum. Við sáum það þegar hann fór í fyrstu aðgerð­irnar og fór í allar þessar breyt­ingar að hann fékk aukið sjálfs­ör­yggi. Hann varð allt annar heldur en hann var. Það hafði greini­lega mjög jákvæð áhrif á hann að ganga í gegnum þetta. Við hjónin þurftum að aðlaga líf okkar að nýjum aðstæðum; hætta að tala um dóttur okkar, segja skilið við gamla barnið og taka inn nýtt. Ég ætla ekki að segja að þetta sé erfitt ferli en það tekur samt á. En ef ég hefði töfra­sprota þá myndi ég ekki vilja snúa til baka. Það sem skiptir eig­in­lega mestu máli í dag er að sjá að honum líður betur og þá er til ein­hvers að vinna.“

Snævar.

Viðbrögð ömmunnar ótrúleg

Páll seg­ist ekki geta neitað því að hafa ótt­ast að Snævar yrði fyrir for­dómum en eins og kom fram í við­tal­inu við hann þá hefur hann ekki orðið fyrir for­dómum þótt hann hafi heyrt ýmis komment sem má jú kannski kalla for­dóma.

„Það var ekki fyrr en ég var orð­inn full­orð­inn sem ég upp­lifði að þjóð­fé­lagið væri að taka þetta í sátt. Þannig að ég sjálfur hafði örugg­lega ákveðna for­dóma gagn­vart bæði sam­kyn­hneigð og þessu trans. Þegar Snævar fór í ferlið hugs­aði ég ekki dags dag­lega um hvort hann yrði fyrir for­dómum en maður hafði það á bak við eyrað að það gæti gerst. Það skrýtna við þetta var að þegar hann var að hefja ferlið þá komu ósjálfrátt for­dómar hjá mér. Ég tal­aði um það við hann hvernig börn systk­ina hans myndu taka þessu og hvernig hann héldi að amma hans myndi taka þessu. Hausinn á mér var fullur af því að börnin yrðu rugluð af þessu og að amman yrði nið­ur­brotin. Síðan kom það bara á dag­inn að ég gat ekki haft meira rangt fyrir mér. Hvað varðar systk­ina­börnin þá var þetta bara búið á einum degi og við­brögð ömm­unnar, sem var þarna búin að missa nöfnu sína, voru ótrú­leg. Þannig að þegar upp var staðið þá hafði unga og gamla fólkið minni for­dóma gagn­vart þessu heldur en ég.“

Alltaf með verki

Páll seg­ist aldrei hafa getað ímyndað sér þær afleið­ingar sem stóra aðgerðin á kyn­færum Snævars myndi hafa en eins og Snævar tal­aði sjálfur um þá voru teknir hlutar af lær­vöðvum hans til að búa til getn­að­ar­lim. „Hann hefur sjálfur sagt að það sé hlutur sem hann hafi ekki verið með­vit­aður um og honum var ekki gerð full­kom­lega grein fyrir því hvað í vændum var,“ segir Páll en Snævar vissi þó að hann fengi ör en að hann grun­aði ekki að þetta yrði svona; hann vissi líka að hann þyrfti að fara í sjúkra­þjálfun eftir aðgerð­ina en hafði samt sem áður ekki gert sé full­kom­lega grein fyrir því hvernig þetta yrði.

Páll talar um áfall sem Snævar og móðir hans fengu á sjúkra­hús­inu þegar í ljós kom hversu mikið hafði verið tekið af lær­vöðv­unum á öðrum fæti hans.

Ég held þetta hafi búið til stórt sár í sál­ar­lífi Snævars.

„Þegar hann vakn­aði eftir aðgerð­ina þá var þetta bara miklu meira heldur en hann óraði fyrir. Þeim bregður sem sjá afleið­ingar aðgerð­ar­innar á lær­inu. Þetta er miklu meira inn­grip heldur en ég hefði nokkurn tím­ann órað fyrir. Þannig að það er ekki skrýtið að þetta sé að angra hann í dag. Ég er ekki viss um að það hafi verið gerð nein mis­tök en mér finnst eins og læknateymið sem stendur á bak við þetta allt saman hafi hrein­lega ekki upp­lýst hann nógu vel um hvað í vændum væri. Að búa til tippi úr stórum stykkjum úr lær­vöðvum; maður bara átt­aði sig ekk­ert á því hvað þetta var. Það var svo ein­falt að heyra þetta og virt­ist verða ein­falt að gera þetta en þetta var miklu meira inn­grip heldur en mig óraði fyrir. Konan mín fylgdi Snævari í þessar aðgerðir og var með honum á spít­al­anum og hún talar um það enn þann dag í dag þegar hann vakn­aði eftir þessa stóru aðgerð. Hún gleymir aldrei þeim við­brögðum og svip­brigðum sem komu fram hjá Snævari þegar hann átt­aði sig á því hvað var í gangi.“ Þögn. „Ég held þetta hafi búið til stórt sár í sál­ar­lífi Snævars. Þegar hann vakn­aði upp eftir þessa aðgerð var það miklu dramat­ískara heldur en nokkurn óraði fyrir. Þetta er mjög stórt í alvöru talað. Það leynir sér ekk­ert að hann er alltaf verkj­aður í fæt­inum en þó mis­mikið.

Ég held að fólk hafi hrein­lega ekki áttað sig á að þetta ætti eftir að draga svona mik­inn dilk á eftir sér. Ég spyr sjálfan mig oft að því í dag hvernig það megi vera að fræðslan og upp­lýs­inga­flæðið gagn­vart þessu trans­fólki sem gengur í gegnum stórar aðgerðir sé ekki meira. Ég er ekki að segja að Snævar hefði ekki gengið í gegnum þetta þótt hann hafi vitað um afleið­ing­arnar heldur að hann var greini­lega ekki til­bú­inn and­lega undir það sem gerð­ist. Þetta hefur haft mikil áhrif á hann bæði and­lega og lík­am­lega. Það þýðir ekki að reyna að ætla að skella skuld­inni á lækna og annað en ein­hvern verg­inn er það samt þannig að manni finnst eins og að þeir hljóti að hafa vitað um þessa áhættu­þætti og hefðu átt að upp­lýsa fólk um að það gæti þurft að eiga í þessu alla tíð. Ef þeir hefðu ekki getað gert það þá eru þetta klár­lega mis­tök.“

Páll end­ur­tekur að það sé allaf erfitt að sjá börnin sín þjást sama hvort það séu korna­börn eða full­orðið fólk. „Það er alltaf erfitt og hefur áhrif á mann en ein­hvern veg­inn nær maður samt og reynir enda­laust að halda haus; það er að segja að láta þetta ekki brjóta sig niður því að það væri ekki til þess að hjálpa honum. Það má líka þessu saman við þegar góð vin­kona okkar hjóna missti mann­inn sinn þegar hún var ung og með fjögur lítil börn. Hún þurfti að ganga í gegnum alla erf­ið­leik­ana og sárs­auk­ann; hún þurfti að halda höfði svo börnin yrðu örugg. Og það er kannski það sem við þurfum alltaf að gera gagn­vart Snævari; hvaða áhrif hefði það á hann ef við brotn­uðum niður?“

Setjast ekki í dómarasæti

Páll er spurður hvað hann hafi lært af því að hafa átt dóttur sem glímdi í æsku við áráttu- og þrá­hyggjuröskun sem og kvíða­röskun og átt svo dóttur sem varð sonur.

„Númer eitt, tvö og þrjú hef ég kannski lært að setj­ast ekki í dóm­ara­sæti. Taka því ekki sem gefnu að allt sé óeðli­legt heldur að allt gangi snuðru­laust fyrir sig. Fólk þarf að hafa fyrir líf­inu á mis­mun­andi hátt. Við fengum okkar skammt þegar hann var barn og var með þessa áráttu- og þrá­hyggjuröskun og kvíða­röskun sem ég þekkti ekki fyrir. Þetta kenndi okkur að taka á þeim vanda­málum. Og síðan þegar hann gekk í gegnum þetta sem ung­lingur að reyna að átta sig á því hvort hann væri sam­kyn­hneigður, gagn­kyn­hneigður eða hvað þá kenndi það mér gríð­ar­lega mikið og sér­stak­lega það að setja ekki sjálfan sig á háan stall og alls ekki að setj­ast í dóm­ara­sæti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag