Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Rándýr reisa ríkisstarfsmanna til Dúbaí

Katrín Jakobsdóttir er á COP28
Katrín Jak­obs­dóttir er á COP28

Áætlaður kostn­aður fyrir hvern þátt­tak­anda umhverfis-, orku- og loftsla­gráðu­neyt­is­ins á COP28 er frá 900.000 krónur og upp í tvær millj­ónir króna.

COP28 loft­lags­ráð­stefn­unni í Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæm­unum lýkur á morgun en gríð­ar­lega margir Íslend­ingar eru þar sem full­trúar rík­is­ins, Reykja­vík­ur­borgar, fyr­ir­tækja og félaga­sam­taka og fleiri aðila sem við kemur lofts­lags­mál.

Mannlíf sendi fyr­ir­spurn á upp­lýs­inga­full­trúa umhverfis-, orku- og loftsla­gráðu­neyt­is­ins, Önnu Sigríði Ein­ars­dóttur, þar sem spurt var um kostnað og földi full­trúa Íslands á ráð­stefn­unni í Dúbaí.

„Rúmlega 80 þátt­tak­endur frá Íslandi eru skráðir á COP28 eða taka þátt í hlið­ar­við­burðum tengdum lofts­lags­ráð­stefn­unni. Í þeim hópi eru auk 12 full­trúa hinnar opin­beru sendi­nefndar, þing­menn og full­trúar Reykja­vík­ur­borgar, félaga­sam­taka og 18 fyr­ir­tækja á sviði end­ur­nýj­an­legrar orku, kolefn­is­föng­unar og –geymslu og önnur fyr­ir­tæki á sviði grænna lausna,“ segir í svar­inu en þar kemur fram að lítil breyt­ing hafi verið á fjölda full­trúa í opin­berri sendi­nefnd Íslands og henni tengdri, á milli ára en að veru­leg fjölgun hafi verið í hópi full­trúa þeirra fyr­ir­tækja sem kusu að senda á við­burði tengda loft­lags­ráð­stefn­unni.

Hvað varðar kostnað sem fylgir full­trúum ráðu­neyt­is­ins segir í svar­inu að umhverfis-, orku- og loftsla­gráðu­neytið greiði fyrir þátt­töku sex full­trúa ráðu­neyt­is­ins í sendi­nefnd­inni en að áætl­aður kostn­aður á mann sé frá 900.000 krónur til 2.000.000 krónur, sam­an­lagt frá 5,4 millj­ónum til 12 millj­ónum.

„Umhverfis-, orku- og loftsla­gráðu­neytið greiðir ein­göngu kostnað vegna þátt­töku 6 full­trúa ráðu­neyt­is­ins í sendi­nefnd­inni, þar með talið vegna ráð­herra og aðstoð­ar­manns, auk þess að styrkja full­trúa ung­menna til þátt­töku á fund­inum. Er þetta í þriðja sinn sem full­trúi ung­menna er í hinni opin­beru sendi­nefnd. Þátttaka full­trúa ráðu­neyt­is­ins í fundum og við­burðum á COP28 krefst mis­langrar veru úti. Áætlaður kostn­aður  pr. þátt­tak­anda frá ráðu­neyt­inu er því mis­mun­andi, en getur verið á bil­inu 900.000-2 m.kr. End­an­legur kostn­aður liggur ekki fyrir fyrr en eftir að Lofts­lags­ráð­stefn­unni lýkur.“

Ekki gat Anna svarað fyrir önnur ráðu­neyti en lík­legt er að kostn­að­ur­inn sé svip­aður hjá þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

„Þú getur treyst barninu sem þú varst. Jesús gerir það“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu