Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Loftslagsváin: „Ráðherrann hefur dregið allar tennur úr Loftslagsráði – Aðgerðaáætlun ekki uppfærð“

Loftslagsváin: „Ráðherrann hefur dregið allar tennur úr Loftslagsráði – Aðgerðaáætlun ekki uppfærð“

Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Pírata, ritar athygl­is­verða grein þar sem spurt er: Hver er lofts­lags­stefna rík­is­stjórnar Íslands?

Gefum Andrési orðið:

„Rík­is­stjórnin starfar enn þá eftir aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum sem hefur ekki verið upp­færð í fjögur ár – það er á síð­asta kjör­tíma­bili. Stutta svarið er því að lofts­lags­stefnan er hvergi til þó hún birt­ist hins vegar í ýmsum verkum rík­is­stjórn­ar­innar.

Og lofts­lags­stefnan birt­ist í því að fram­lög til lofts­lags­mála voru skorin niður um millj­arða á fjár­lögum þessa árs og stefnt er að enn meiri lækkun á næstu fimm árum sam­kvæmt fjár­mála­á­ætlun.

Fyrir síð­ustu kosn­ingar byggðum við Píratar umhverfis- og lofts­lags­stefnu okkar á vís­indum. Það skil­aði mark­miði upp á 70% sam­drátt í losun árið 2030. Það skil­aði Pírötum líka hæstu ein­kunn­inni í Sólinni hjá Ungum umhverf­issinnum.“

Andrés bendir á að „í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar er því miður ekki gengið jafn­langt, heldur er þar sett sjálf­stætt lands­mark­mið um 55% sam­drátt. Þar virð­ist þó settur fram meiri metn­aður en í skuld­bind­ingum með Evr­ópu­sam­band­inu frá 2020, sem ráð­herra reiknar með að skili Íslandi kröfu um 40% sam­drátt í sam­fé­lags­losun. Og þar eru kröf­urnar enn meiri en í úreltri aðgerða­á­ætl­un­inni, sem miðar við 29% lækkun sam­fé­lags­los­unar. Vandinn er að jafn­vel metn­að­ar­lausu mark­miðin eru ekki að nást.“

Hann nefnir einnig að „þegar umhverf­is­ráð­herra svar­aði því hvernig málin standa sagði hann útreikn­inga Umhverf­is­stofn­unar í drögum að upp­færðri aðgerða­á­ætlun sem mögu­lega verði birt í þessum mán­uði sýni fram á 35% sam­drátt árið 2030. Í þrjú ár höfum við beðið eftir því að rík­is­stjórnin stígi inn í nýtt kjör­tíma­bil með nýtt og betra plan. Er þetta þá allur árang­ur­inn, að ný áætlun á ekki að ná upp í 40% alþjóð­legu skuld­bind­ing­una, hvað þá fals­mynd­ina sem birt­ist í stjórn­ar­sátt­mála um að stjórnin stefni á 55% sam­drátt.“

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son um­hverf­is-, orku- og lofts­lags­ráð­herra.

Andrés segir að Píratar leggi „áherslu á að aðgerðir í lofts­lags­málum séu rétt­látar og gagn­ist öllu sam­fé­lag­inu. Þannig fáum við öll með í það verk sem þarf að vinna í þágu fram­tíð­ar­kyn­slóða. Þess vegna höfum við veitt rík­is­stjórn­inni virkt aðhald í sínum áætl­unum. Þetta reyndi á þegar rík­is­stjórnin studdi fólk til raf­bíla­kaupa, án þess að nota tæki­færið til að fækka einka­bílum, og aftur þegar hún breytti stuðn­ings­kerf­inu svo klúð­urs­lega að sala á raf­bílum hrundi um síð­ustu ára­mót.

Á sama tíma ætl­aði rík­is­stjórnin að fella algjör­lega niður ívilnun til reið­hjóla.“

Hann segir að Píratar hafi tek­ist „á við ráð­herr­ann um þessa ákvörðun – enda er þetta ein ein­faldasta og skil­virkasta lofts­lags­að­gerðin, sem virkjar ótrú­lega stóran hóp fólks til að stunda virkar sam­göngur í stað­inn fyrir að stóla á einka­bíl­inn. Á end­anum hafði meiri­hluti Alþingis vit fyrir rík­is­stjórn­inni og hélt áfram stuðn­ingi við reið­hjóla­kaup. Þó að umhverf­is­ráð­herra tali um að nota pen­ing­inn þar sem hver króna skili sem mestum árangri var engin af þessum hug­myndum metin frá lofts­lags­á­hrifum. Lang­fæstar aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar fara í gegnum slíkt mat. Á sama tíma hefur ráð­herr­ann dregið allar tennur úr Lofts­lags­ráði, eina opin­bera apparat­inu sem hefur vísi að form­legu aðhalds­hlut­verki gagn­vart lofts­lags­að­gerðum stjórn­valda.

Píratar jarð­tengja alla sína umhverfis- og lofts­lags­stefnu með var­úð­ar­regl­unni, þeirri grund­vall­ar­reglu umhverf­is­réttar sem krefst þess að við ígrundum vand­lega allar ákvarð­anir sem hafa áhrif á nátt­úru og líf­ríki. Vöxtur sam­fé­lags­ins þarf að vera í sátt við nátt­úr­una sem við erum hluti af.

Rík­is­stjórnin er á öðrum stað.“

Andrés færir í tal að „á pepp­fundi til að fagna end­ur­lífgun stjórn­ar­innar eftir páska gekk vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins svo langt að segja að við þurfum ekki fleiri áætl­anir um minni losun heldur bara virkja, virkja, virkja. Í því landi sem fram­leiðir hlut­falls­lega meira af end­ur­nýj­an­legri raf­orku en nokkuð annað ríki, þá verður lofts­lags­vand­inn ekki leystur með ein­tómum virkj­unum. Þannig hugsar bara stjórn­mála­fólk sem sér ekki stóru mynd­ina: Lofts­lags­vand­inn er líka vandi líf­fræði­legrar fjöl­breytni og nátt­úru­verndar. Þegar ráð­herra svar­aði því hvernig hann ætl­aði að sjá til þess að mark­mið í lofts­lags­málum væru ekki sett á kostnað nátt­úru­verndar, var eins og hann kæmi algjör­lega af fjöllum.

Á sama tíma og hann tal­aði um að nota nátt­úru­mið­aðar lausnir til sam­ræmis við alþjóð­legar skuld­bind­ingar, þá var eins og hann hefði alveg misst af sinni eigin ofurá­herslu á að virkja sig fram­hjá lofts­lags­vand­anum. Áhersla sem hann setur fram á þann hátt að bendir til þess að umhverf­is­ráð­herra vilji ýta til hliðar öllum sjón­ar­miðum nátt­úru­verndar og líf­fræði­legrar fjöl­breytni.“

Andrés segir að Píratar hafi „talað fyrir því að gera raun­hæfa áætlun um orku­þörf til fram­tíðar og hverfa frá ósjálf­bærri stór­iðju­stefnu. Rými til slíkrar umræðu er ekk­ert hjá núver­andi rík­is­stjórn. Frá fyrsta degi hefur umhverf­is­ráð­herra farið mik­inn í því að nýta sér bar­átt­una í lofts­lags­málum til að ýta á úrelta virkj­un­ar­stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hann klifar á því að þurfi að tvö­falda raf­orku­fram­leiðslu – tvö­falda fram­leiðslu í útbólgn­asta raf­orku­kerfi heims. Það er hins vegar full­kom­lega inni­stæðu­laust meðan rík­is­stjórnin hefur ekki fest í sessi neinar reglur sem tryggja að ný orka fari í orku­skipti.

Þegar umhverf­is­ráð­herra var spurður hvernig hann ætli að tryggja að bæði núver­andi og ný orka nýt­ist í bein orku­skipti umfram aðra starf­semi kom ótrú­leg­asta full­yrð­ing umræð­unnar: „Öll orka sem við setjum núna inn skilar sér í orku­skiptum,“ segir umhverf­is­ráð­herra Íslands. Eins og fyrir töfra, án þess að neinar reglur kveði á um það, þá trúir ráð­herr­ann því að hvert ein­asta mega­vatt nýt­ist sjálf­krafa í græn umskipti. Er það nema von að fólk hafi áhyggjur af botn­virkj­un­ar­kórum í stjórn­ar­ráð­inu?“

Að lokum segir Andrés þetta:

„Þegar núver­andi rík­is­stjórn end­ur­nýj­aði sam­starfið eftir kosn­ingar 2021 var áherslu­mun­ur­inn hvergi skýr­ari en í umhverfis- og lofts­lags­málum. Hver verður nið­ur­staðan þegar svona ólíkir flokkar graut­ast saman, spurðum við mörg. Hvernig ná þeir að stilla saman strengi, flokk­ur­inn sem fékk 80% í Sólinni og flokk­arnir sem fengu 13% og 21%?

Nið­ur­staðan er sú að raun­veru­legur metn­aður hefur verið keyrður niður, aðgerðir tefj­ast en rík­is­stjórnin slær um sig með inni­stæðu­lausum upp­hróp­unum um eigin árangur. Það er löngu kom­inn tími á að breyta um kúrs í lofts­lags­málum. Rík­is­stjórnin þarf að setja raun­veru­lega og metn­að­ar­fulla lofts­lags­stefnu fyrir Ísland. Stefnu sem end­ur­speglar þann mikla vija sem almenn­ingur sýnir til grænna umskipta. Stefnu sem byggir á þeim góða grunni sem ríku­legar auð­lindir Íslands búa okkur. Stefnu byggir upp betra, heil­næmara og skemmti­legra sam­fé­lag til fram­tíðar. En til þess þarf nýja rík­is­stjórn, þar sem sitja saman flokkar sem eru sam­mála um að ná raun­veru­legum árangri í stað­inn fyrir græn­þvotta­banda­lagið sem situr að völdum í dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina