Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Met í maí: Mesta hitabylgja sögunnar

Veðrið í nýliðnum maí var það besta frá upp­hafi mæl­inga í þeim mán­uði; sólin skein, fólk brosti sem og eig­endur kaffi­húsa og bílar fengu frí.

Met í maí: Mesta hitabylgja sögunnar
Sólin skein svo glatt. Hitamet var sett.

Blíð­viðr­is­dag­arnir í maí eru mesta hita­bylgja sem vitað er um í mán­uð­inum á Íslandi.

Hiti mæld­ist 20 stig eða meira á land­inu heila 11 daga í maí; jörð var alauð og þurr allan mán­uð­inn; bæði í Reykja­vík sem og á Akureyri.

Þetta og fleira er á meðal þess sem fram kemur í sam­an­tekt Veð­ur­stof­unnar um veðrið í maí.

Sólskin fylgdi hita­bylgj­unni; sér­lega sól­ríkt var á Akureyri í mán­uð­inum: Þar mæld­ust 255,5 sól­skins­stundir, eða 84,5 fleiri stundir miðað við með­al­lag áranna 1991 til 2020.

Einungis þrisvar sinnum hafa mælst fleiri sól­skins­stundir í maí­mán­uði á Akureyri frá upp­hafi mæl­inga.

Í höf­uð­borg­inni mæld­ust sól­skins­stund­irnar 264,7, - 55,7 stundum yfir með­al­lagi.

Yfir landið allt var þetta hlýjasti maí­mán­uður frá upp­hafi mæl­inga, á lang­flestum veð­ur­stöðvum lands­ins.

Með­al­hiti maí­mán­aðar var hæstur á Akureyri; 10,1 stig - 3,5 stigum yfir með­al­lagi síð­ustu 10 ára og jafn­framt hæsti mán­að­ar­hiti sem mælst hefur á Íslandi í maí.

Með­al­hiti í Reykja­vík mæld­ist 9 gráður - 2,3 stigum yfir með­al­lagi síðusta ára­tugs.

Þá var sett nýtt hita­met í maí á lands­vísu er hit­inn fór í 26,6 stig á Egils­staða­flug­velli þann 15. maí. Fyrra met var 25,6 stig sem mæld­ist á Vopna­firði þann 26. maí árið 1992.

Hita­bylgjan mikla dag­ana 13.-22. maí náði yfir allt landið; er klár­lega sú mesta sem vitað er um hér á landi í maí­mán­uði.

„Það var merki­legt hversu snemma árs hita­bylgjan átti sér stað, hversu lengi hún stóð og hversu útbreidd hún var,“ segir í sam­an­tekt Veð­ur­stof­unnar um veð­ur­far í maí.

Hlýindin miklu náðu hápunkti 17. og 18. maí er hit­inn mæld­ist 20 stig eða meira á um helm­ingi allra veð­ur­stöðva lands­ins.

„Tíð var ein­muna góð í mán­uð­inum, það var sól­ríkt, hæg­viðra­samt og allur gróður var óvenju­lega snemma á ferð. Tölu­verðir vatna­vextir voru í ám á Norð­ur­landi í byrjun mán­aðar vegna leys­inga í hlý­ind­unum,“ segir í sam­an­tekt Veð­ur­stof­unnar um veð­ur­far í maí.

Hiti mæld­ist 20 stig eða meiri ein­hvers staðar á land­inu 11 daga í maí, þar af 10 daga í röð. Slíkir dagar hafa verið tvisvar til þrisvar að með­al­tali í maí síð­ast­liðin ár, og í raun er ekk­ert algilt að slíkir dagar komi í maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina