Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gjaldfrjálsar skólamáltíðir skýr ávinningur fyrir grunnskólabörn

For­eldrar, skóla­stjórn­endur og sveit­ar­fé­lög eru ánægð með hvernig til hefur tek­ist varð­andi gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir

Gjaldfrjálsar skólamáltíðir skýr ávinningur fyrir grunnskólabörn
Gjald­frjálsar mál­tíðir í grunn­skólum eru til umræðu For­eldrar eru ánægðir með málið Mynd: Stjórnarráðið

For­eldrar, skóla­stjórn­endur og sveit­ar­fé­lög sjá mik­inn ávinn­ing af gjald­frjálsum skóla­mál­tíðum í grunn­skólum lands­ins, en þetta er á meðal þess er fram kemur í nýrri skýrslu starfs­hóps sem inn­við­a­ráð­herra skip­aði til að leggja mat á nýt­ingu og áhrif gjald­frjálsra skóla­mál­tíða.

Skýrslan var kynnt á rík­is­stjórn­ar­fundi nú í morgun.

Að mati starfs­hóps­ins tókst vel til á fyrsta skóla­ári eftir að skóla­mál­tíðir í grunn­skólum urðu gjald­frjálsar og enn­fremur að ávinn­ing­ur­inn væri skýr fyrir grunn­skóla­börn, en hins vegar þurfi að svara nokkrum spurn­ingum varð­andi verk­efnið til fram­tíðar.

Gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir voru liður í aðgerðum stjórn­valda í fyrra í þeim til­gangi að styðja við gerð lang­tíma­kjara­samn­inga á vinnu­mark­aði og leggja grund­völl að bættum lífs­kjörum og kaup­mætti launa­fólks.

Sam­þykkti Alþingi í fyrra að heim­ila Jöfn­un­ar­sjóði sveit­ar­fé­laga að greiða sveit­ar­fé­lögum er bjóða upp á skóla­mál­tíðir fram­lög á árunum 2024-2027 og segir Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra „að það sé ákaf­lega mik­il­vægt að hlúa vel að börnum í grunn­skólum lands­ins með því að gefa öllum kost á nær­ing­ar­ríkum skóla­mál­tíðum. Þetta tryggir jafn­ræði og eflir lýð­heilsu. Mik­il­vægt er að þróa þetta verk­efni áfram þannig að það nýt­ist sam­fé­lag­inu og börn­unum okkar sem best.“

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, mennta- og barna­mála­ráð­herra segir að gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir séu mik­il­vægar til þess að auka jöfnuð og draga úr fátækt á meðal barna og segir að nú sé „jafn­framt frum­varp til laga um náms­gögn til með­ferðar á Alþingi sem miðar að því að gera náms­gögn gjald­frjáls í áföngum fram að 18 ára aldri. Öll börn eiga að standa jafn­fætis öðrum þegar kemur að menntun næstu kyn­slóða.“

Í skýrsl­unni áður­nefndu segir að starfs­hóp­ur­inn hafi unnið þrjár spurn­inga­kann­anir til þess að meta reynslu af gjald­frjálsum skóla­mál­tíðum og ekki síður að kalla eftir ábend­ingum. Ein könn­unin var lögð fyrir sveit­ar­fé­lög, önnur fyrir stjórn­endur grunn­skóla og sú þriðja fyrir for­eldra og/eða for­ráða­fólk barna í grunn­skóla og var for­eldra­könn­unin gerð á íslensku, ensku og pólsku.

Það kemur í ljós, sam­kvæmt nið­ur­stöðum skýrsl­unnar, að for­eldrar og for­ráða­fólk grunn­skóla­barna eru ánægð með verk­efnið, en alls kváð­ust 81% vera mjög eða nokkuð jákvæð með verk­efnið en aðeins 7% lýstu sig nokkuð eða mjög nei­kvæð gagn­vart því.

Í skýrsl­unni segir einnig að skóla­stjórn­endur sjái mik­inn og góðan ávinn­ing af verk­efn­inu. Lýsi litlum eða engum áskor­unum, en þar sem þær eru nefndar snú­ast þær einkum um áhyggjur af mat­ar­sóun og fjár­mögnun. Þá er bent á að sveit­ar­fé­lög sjá einnig ávinn­ing af gjald­frjálsum skóla­mál­tíðum, sem felist í því að öllum börnum eru tryggðar skóla­mál­tíðir, algjör­lega óháð efna­hag og að fleiri börn nýti sér mál­tíð­irnar.

Eins og kom fram þá er ávinn­ing­ur­inn þó ekki án nokk­urra áskor­ana þar sem kostn­aður hefur auk­ist hjá meiri­hluta sveit­ar­fé­laga vegna fjölg­unar nem­enda sem nýti skóla­mál­tíðir; mót­fram­lag rík­is­ins nemi ein­ungis hluta af heild­ar­kostn­aði, auk þess sem verð á mat­vöru fari hækk­andi.

Þá kemur það fram í skýrsl­unni að skrán­ing barna í skóla­mál­tíðir hefur auk­ist í öllum bekkjum eftir að mál­tíð­irnar urðu gjald­frjálsar; mest í eldri bekkjum þar sem þátt­taka var minni fyrir.

Starfs­hóp­ur­inn setti fram sex ábend­ingar til stjórn­valda, ríkis og sveit­ar­fé­laga og unnið verður úr þeim á vett­vangi ríkis og sveit­ar­fé­laga.

Ábend­ing­arnar snúa að mat­ar­sóun, gera íhlut­anir til að minnka hana, þá þarf að hafa eft­ir­lit með gæðum mál­tíða og nær­ing­ar­inni­haldi. Tryggja þarf fjár­magn fyrir gæða­ríkri skóla­mál­tíð og tryggja þarf að til staðar séu upp­lýs­ingar sveit­ar­fé­laga um raun­kostnað. Að lokum þarf að skýra hvort gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir eigi ein­göngu við um hádeg­is­verð eða alla máls­verði á skóla­tíma og að taka þurfi ákvörðun um fram­hald verk­efn­is­ins er því lýkur árið 2027.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi