Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

„Gríðarstórt framfaraskref sem markar upphaf nýs tímabils í skólastarfi“

Náms­ár­angur og náms­fram­vinda eru Guðmundi Inga Krist­ins­syni hug­leikið efni og að hans mati hefur nú verið stigið það „stærsta fram­fara­skref í náms­mati ís­lenskra barna í ára­tugi“

Guðmundur Ingi Kristinsson
Guð­mundur Ingi Krist­ins­son Mennta- og barna­mála­ráð­herra Mynd: Alþingi

Að mati ráð­herra hefur nú verið stigið það „stærsta fram­fara­skref í náms­mati ís­lenskra barna í ára­tugi.“

Þetta segir Guð­mundur Ingi Krist­ins­son sem vill að við ræðum „menntun barn­anna okkar.“

Guð­mundur Ingi hefur setið á þingi í suð­vest­ur­kjör­dæmis fyrir Flokk fólks­ins síðan 2017 og það kemur fram í máli hans að náms­mat grunn­skóla­nem­enda hafi verið mikið í umræð­unni á liðnum miss­erum. Segir Guð­mundur Ingi að „við viljum öll að börnin njóti sín í skóla­starfi og nái árangri“ og hann bætir því við að framundan sé „algjör bylt­ing í náms­mati.“

Náms­ár­angur og náms­fram­vinda eru ráð­herra hug­leikin efni og hann er ánægður með hvernig vinnan fór fram og hverju hún mun skila út í sam­fé­lagið. Ráðherra er afar ánægður með að „loks­ins verður í boði sam­ræmt náms­mat“ og nú er hægt er að fylgj­ast með „náms­ár­angri og náms­fram­vindu nem­enda milli skóla­ára,“ segir Guð­mundur Ingi og bendir á að slíkt „sam­ræmt náms­mat hefur aldrei áður staðið íslenskum skólum til boða í þeim mæli sem hér um ræðir.“

Hann segir þetta því vera grund­vall­ar­breyt­ingu á því hvernig við styðjum við nám barna og kennslu kenn­ara:

„Í lok þessa skóla­árs voru lögð til­rauna­próf í hverjum bekk frá 4. og upp í 10. bekk. 7 stærð­fræði­próf og 7 próf í lesskiln­ingi. Í úrtak­inu voru um 7000 börn í 26 skólum. Þessi til­rauna­próf tók­ust afar vel.“

Hann færir í tal að á næsta ári muni ný sam­ræmd próf í lesskiln­ingi og stærð­fræði verða lögð fyrir alla nem­endur í 4. til 10. bekk og segir þetta vera „gríð­ar­lega stórt fram­fara­skref í náms­mati íslenskra barna og markar, má segja, upp­hafs nýs tíma­bils í skóla­starfi á Íslandi.“

Ráðherra segir að nú verði í fyrsta sinn hægt að fylgj­ast reglu­bundið með náms­fram­vindu hvers barns með vönd­uðum mat­stækjum; kenn­arar geti því betur mætt náms­legum þörfum nem­anda:

„Þessi próf eru hluti af Mats­feril sem er heild­stætt náms­mats­kerfi með stöðu- og fram­vindu­prófum auk skimun­ar­prófa. Mats­fer­ill­inn mun þannig styðja við dag­legt starf kenn­ara og veita þeim yfir­sýn yfir náms­lega stöðu nem­enda.“

Guð­mundur Ingi segir Mats­fer­ill byggðan á traustum og fræði­legum grunni og hefur hann verið unn­inn í víð­tæku sam­ráði við skóla­sam­fé­lagið. Hann bendir á að aldrei áður hafi verið unnið eins umfangs­mikið sam­ræmt og heild­stætt kerfi sem gefur svo góða yfir­sýn yfir náms­fram­vindu barna, og segir því að þessi nýju verk­færi séu „gríð­ar­lega mik­il­væg fyrir kenn­ara, nem­endur og for­eldra.“

Hann segir enn­fremur að nið­ur­stöður Mats­fer­ils veita skóla­stjórn­endum og skóla­yf­ir­völdum „gríð­ar­lega mik­il­væga inn­sýn í þróun mennt­unar“ sem síðan nýt­ist til umbóta og mark­vissrar stefnu­mót­unar og Guðmund Inga hlakkar mikið til að „fylgj­ast með því hvernig Mats­fer­ill muni styðja við fram­þróun og auka gæði mennt­unar enn frekar þannig að öll börn fái tæki­færi til að vaxa og dafna í námi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

„Ég var orðinn kynlífsfíkill“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu