Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Þeim fannst prófið leiðinlegt og settu bara krossinn einhvers staðar”

Hulda Dögg Proppé segir að und­an­farin miss­eri hafi átt sér stað miklar umræður um skóla­mál og skóla­kerfið í heild sinni

„Þeim fannst prófið leiðinlegt og settu bara krossinn einhvers staðar”
Hulda Dögg Proppé Ræðir um PISA könn­un­ina

Hulda Dögg Proppé er deild­ar­stjóri í Sæmund­ar­skóla og aðjúnkt við Háskóla Íslands og segir hún að und­an­farin miss­eri hafi átt sér stað miklar umræður um skóla­mál og skóla­kerfið í heild sinni.

Hún segir að umhverfi grunn­skól­ans hafi breyst mikið frá því sem áður var:

„Það er fagn­að­ar­efni að fólk hafi áhuga á því gríð­ar­lega mik­il­væga starfi sem þar fer fram en um leið er mik­il­vægt að umræðan sé á upp­byggi­legum nótum“ segir hún og færir í tal að á tímum breyt­inga megi „færa rök fyrir því að fag­mennska sé mik­il­væg­asta vega­nestið því hún er rauði þráð­ur­inn í öllu starfi breyt­inga í skólum.“

Hulda segir að það sé „mín reynsla að kenn­arar þessa lands vinni af heil­indum, leggi sig fram um að mæta nem­endum þar sem þeir eru“ og séu stöðugt að leita leiða til að „skapa þær aðstæður að nám geti átt sér stað“ en segir þó að „sitt sýn­ist hverjum og ýmsum for­sendum er skellt á borðið.“

Hún segir náms­matskvarða oft bera á góma í umræðu um grunn­skól­ann og segir að sumir nefni „að náms­matið sé óraun­hæft og skili tak­mark­aðri vit­neskju um stöðu nem­enda“ og að „raunin“ sé sú að „náms­matskvarð­inn A, B, C er mun meira lýsandi fyrir nem­endur heldur en tölu­kvarði og nem­endur fá mun betri „lýs­ingu á hæfni sinni, hvar þeir hafa bætt sig og að hverju er raun­hæft að stefna.“

Segir Hulda að náms­matskvarð­inn gefi kenn­urum tæki­færi til að kenna út frá mark­miðum, nem­endur átti sig betur á eigin stöðu og „náms­með­vit­und þeirra eykst svo um munar“ og um leið „gefst for­eldrum betra tæki­færi til að fylgj­ast með námi barna sinna.“

Hún segir að aðal­námskrá grunn­skóla hafi verið gefin var út árið 2011 og „boð­aði þessar rót­tæku breyt­ingar á náms­mats­kerf­inu en und­ir­bún­ingur hefði vissu­lega mátt vera mun betri“ en engu að síður er fjöldi „skóla sem nýtir kerfið sem námskráin boðar á mark­vissan og upp­lýsandi hátt og upp­skeran er ríku­leg.“

Hulda segir að náms­mat byggt á tölu­kvarða sé hins vegar einng hug­lægt og þar semur kenn­ar­inn próf - ákvarðar stig fyrir hverja spurn­ingu og allt traust er sett á fag­mennsku við að telja stig en „með bók­stafa­kerf­inu er hins vegar auð­veld­ara að rýna í fyrir hvað nákvæm­lega er gefið, hvað það er sem liggur til grund­vallar mat­inu og þannig gefur það nem­endum inn­sýn í upp­skeru, tæki­færi til mark­miða­setn­ingar og almenns sam­tals um námið.“

Og segir hún að „þar komum við að kjarna máls­ins, því sem helst hefur verið notað til að stjak­setja skóla­kerfið í heild sinni. PISA. Þegar fyr­ir­lögn PISA prófs­ins nálg­ast fer af stað mikil vinna innan skól­anna við að hvetja nem­endur til að gera sitt besta. Það sé mik­il­vægt fyrir skóla­kerfið að vita hvar Ísland stendur og þau séu þar mik­il­vægur hlekkur. Prófið er hins vegar langt og ramm­inn er stífur. Nemendur fá ein­ungis stutta pásu, og eflaust hefði verka­lýðs­for­ystan eitt­hvað út á skipu­lagið að setja.“

Hún segir að fyr­ir­lögnin þurfi þó að vera eins í öllum löndum og því megi engu breyta:

„Í takti við aukna náms­með­vit­und er hins vegar ein fyrsta spurn­ing nem­enda þegar prófið er kynnt: ,,Fáum við ein­kunn fyrir þetta?” Jafnvel þó nem­endur sé hvattir til að gera sitt besta, nýta prófið sem æfingu, þá er alltaf ákveð­inn hluti nem­enda sem gerir það ekki - sá hluti sem er hagn­að­ar­drif­inn og veit að hann fær ekki beina end­ur­gjöf. Þeim nem­endum finnst þetta ekki skipta neinu máli.“

Í vor spjall­aði Hulda við nem­endur er gengu út úr próf­inu áður­nefnda og segir að þrátt fyrir alls­konar sam­ræður fyrir prófið og hvatn­ingu um að öll gerðu sitt besta gekk nokkuð stór hluti út hlæj­andi:

„Þeim fannst prófið leið­in­legt, sáu engan til­gang með því að leggja sig fram og ,,settu bara kross­inn ein­hvers staðar. Þetta skiptir hvort eð er engu máli.” Sá hluti var að stærstum hluta drengir.“

Hún segir að „nið­ur­stöð­urnar eru hins vegar blóð­mjólk­aðar og hrópin end­ur­óma - drengir þessa lands eru upp til hópa ólæsir.“

Og bætir því við að það er „eðli­legt að nem­endur 10. bekkjar viti hvað gagn­ast þeim og hvað ekki. Það má telj­ast eðli­legt að stór hluti taki bara þátt að nafn­inu til. Það er hins vegar langt í frá eðli­legt að grunn­skólar lands­ins séu stjak­settir vegna útkom­unnar.“

Hulda fagnar allri umræðu um skóla­mál „sé hún mál­efna­leg og fag­leg. Því miður eru PISA nið­ur­stöður ekki inn­legg í þess háttar umræðu. Það væri gott ef þeim væri tekið með tölu­verðum fyr­ir­vara. Þá getum við farið að ræða saman af alvöru.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina