Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Ég get skellt mér í Kópavogslaug og kallað mig Keikó en það gerir mig ekki að hval”

Kennari segir það hafa ein­ungis verið „tíma­spurs­mál” hvenær stjórn­mála­menn kæmu fram og gerðu til­raun til að eyði­leggja Mats­feril, vænt­an­legt mæli­tæki MMS

„Ég get skellt mér í Kópavogslaug og kallað mig Keikó en það gerir mig ekki að hval”
Ragnar Þór Pét­urs­son Gagn­rýnir bæj­ar­stjór­ann í Kópavogi harð­lega

Kenn­ar­inn Ragnar Þór Pét­urs­son segir það hafa ein­ungis verið „tíma­spurs­mál” hvenær stjórn­mála­menn kæmu fram og gerðu til­raun til að eyði­leggja Mats­feril, vænt­an­legt mæli­tæki MMS.

Hann er afar ósáttur og segir að „skól­arnir fengu ekki einu sinni að byrja áður en bæj­ar­stjór­inn í Kópavogi var stokk­inn fram á völl­inn og hróp­aði af Hamra­borg­inni að í hans bæ héti mæli­tækið sam­ræmt próf, sem eins og nafnið gefur til kynna, væri í senn bjarg­hringur og mark­ús­ar­net sökkvandi skóla­kerfis.”

Þetta finnst Ragnari ekki vera væn­leg leið til vinn­ings og segir að „bæj­ar­stjór­inn hefur hugsað sér að verða ein­hvers konar Víglundur verk­stjóri mennta­kerf­is­ins. Inni á kontór á bæj­ar­skrif­stof­unni ætlar hann að sitja hauk­fránn með bæði augun á telj­ur­unum sem mæla öll mik­il­væg hand­tök og allar hugs­anir sem ná máli í skólum bæj­ar­ins. Tími slugsanna er lið­inn því bæj­ar­stjór­inn boðar að loks sé stig­inn fram bæj­ar­stjórn sem raun­veru­lega hafi áhuga á mennta­málum og muni vaka yfir kenn­urum með for­eldra­sam­fé­lagið á háhesti.”

Ragn­ar­segir einnig að „Kópa­vogspóli­tíkin er líka búin að finna lausn á kenn­ara­skorti – og hefur áttað sig á því að þú þarft eig­in­lega enga kenn­ara ef búið er að ákveða hvað eigi að kenna, hvenær og hvar. Það sé eig­in­lega nóg að ákveða að mið­viku­dag­inn 24. sept­em­ber skuli öll ell­efu ára börn í sveit­ar­fé­lag­inu öðl­ast skiln­ing á því hver sé mun­ur­inn á atviks­orði og lýs­ing­ar­orði. Það mætti jafn­vel hugsa sér að í horni hverrar stofu í hverjum skóla verði settur upp skjár og hátal­ari og svo birt­ist bæj­ar­stjór­inn í öllu sínu veldi þar sem hann þylur upp lex­í­urnar. Síðan má henda krökk­unum í próf í Námfúsi og bæj­ar­stjór­inn hallar sér svo aftur og horfir á mæl­anna.”

Ragnar talar um þver­sagnir og íslenskt frjáls­lyndi.

Ásdís Krist­jáns­dóttir bæj­ar­stjóri Kópavogs.

„Bæj­ar­stjórnin í Kópavogi þyk­ist vera frjáls­lynd. En það er íslenskt frjáls­lyndi. Þver­sagn­ar­kennt frjáls­lyndi. Það er frjáls­lyndi þeirra sem vilja til dæmis ekki leyfa frjálsar veiðar á fiski vegna þess að slík sam­keppni leiði til þess að ágóð­inn verði minni því stöðugt muni þurfa að fórna gróða fyrir sam­keppn­is­stöðu.”

Hann bætir því við að „bæj­ar­stjór­inn áttar sig engan veg­inn á því að afleið­ing þess að mis­nota með þessum hætti mats­feril eru alvar­legar. Og það er óþarfi. Vel þekkt stað­reynd um íslenskt skóla­kerfi að sú að fleiri nem­endur tóku þátt í les­ferli - sem ekki var skylda - en sam­ræmdum prófum - sem voru skylda.”

Hann færir í tal að i „Kópavogi hefur heil­lengi verið hægt að beita snemmtækri íhlutun vegna nem­enda út frá nið­ur­stöðum í les­ferli og mati í 4. og 7. bekk. Það er ekk­ert sem skyndi­lega verður nú hægt að gera vegna þess að bæj­ar­stjór­inn vill ganga í augun á vind­belgjum og gefa þeim sam­ræmdu prófin sín. Ég get skellt mér í sund í Kópa­vogs­laug og kallað mig Keikó en það gerir mig ekki að hval.”

Hann nefnir einnig að „bæj­ar­stjór­inn í Kópavogi getur látið sem mats­fer­ill sé það sama og sam­ræmd próf en prófin munu samt ekki prófa með brota­brot af því sem því sem for­eldrar í Kópavogi halda að um sé að ræða. Það sem mun hins vegar örugg­lega ger­ast er þetta:

Slakir nem­endur, nem­endur með grein­ingar, nem­endur af erlendum upp­runa, nem­endur sem mest þurfa á skól­anum sínum að halda munu ekki vera sér­lega vel­komnir í bekki eða skóla.”

Ragnar segir að „slíkir nem­endur eiga á hættu, eðli máls sam­kvæmt, að lenda röngu megin með­al­tals og það verður eng­inn sér­stakur áhugi á því að fá slíka nem­endur inn í stofu þar sem þorsk­hausa­telj­ari bæj­ar­stjór­ans tikkar – til þess að bæj­ar­stjór­inn geti síðan sent for­eldrum við­kom­andi bekkjar bréf og sagt að með­al­talið þar sé ekki gott.”

Hann færir í tal að „jað­ar­setn­ing við­kvæmra nem­enda er á öllum tímum og í öllum löndum afleið­ing menntapóli­tíkur eins og þeirrar sem Kópa­vogur er að setja á dag­skrá. Þá munu prófin skerða nám. Alveg eins og útgerð­ar­maður myndi kaupa þotu­hreyfil og mylja örvandi efni út í skips­kost­inn ef hann væri að keppa við aðra í full­komnu sam­keppn­isum­hverfi, munu áherslur skóla í Kópavogi fær­ast inn á það sem er mælt.”

Hann segir líka að það sé „fjöl­margt sem MMS er ekki að fara að mæla með mats­ferli og getur ekki mælt – og það var aldrei hug­myndin að hann yrði að ein­hvers­konar þunga­miðju alls náms. Það mun samt ger­ast þegar skólar verða settir í gapa­stokka á grund­velli þessa ein­falda mæli­tækis. Þetta er álíka gáfu­legt og að setja rimla í skóla­stof­urnar og segja nem­endum að naga þá því bæj­ar­stjór­inn hefur frétt það ein­hvers­staðar að járn sé gott fyrir blóðið. Loks mun Kópa­vogur tapa stöðu sinni sem leið­andi sveit­ar­fé­lag á lands­vísu.”

Ragnar segir að skól­arnir í Kópavogi séu góðir og að þeir hafi lengi verið góðir.

„Nemendur voru mjög háir á sam­ræmdum prófum en ekki vegna þess að bæj­ar­stjór­inn hefði misst vitið og krýnt sig ein­ræð­is­herra mennt­unar – heldur vegna þess að þar hafa farið saman góðir skóla­menn, góðir for­eldrar og góð börn. Oft hafa kenn­arar í nágranna­sveit­ar­fé­lög­unum horft yfir læk­inn og hugsað sér að það sé gott að kenna í Kópavogi. Bæj­ar­stjór­inn er í ein­hvers­konar her­ferð til að sjá til þess að svo verði ekki. Í stað þess ætlar hún að breyta stönd­ugum og rót­grónum skólum í ómerki­legar nið­ur­suðu­verk­smiðjur. Það mun skóla­fólk ekki láta bjóða sér og ef bæj­ar­stjór­inn fær ekki upp­reisn beint í and­litið … þá ger­ist aðeins eitt. Fólkið sem raun­veru­lega hefur vit á mennta­málum og hæfni á því sviði mun þakka fyrir sig og yfir­gefa sviðið.”

Ragnar nefnir að end­ingu að „svona skrípa­leikur er fyrir neðan virð­ingu góðra skóla. Góðir skólar eru ekki sjálf­sagðir og góð menntun er það ekki heldur og það þarf ekki marga vonda stjórn­mála­menn til að skemma hvort tveggja. Ég vona að Kópa­vogs­leið­inn leggi ekki fúla leið sína yfir fleiri sveit­ar­fé­lög en ótt­ast það versta. Það er eng­inn skortur á vondum stjórn­mála­mönnum á Íslandi.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina