Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Öllum nemendum tryggt jafnt aðgengi að mikilvægri þjónustu

Mennta- og barna­mála­ráðu­neytið kynnti í gær áform um nýtt skipu­lag fyrir opin­bera fram­halds­skóla sem miða að því að efla stuðn­ing við fram­halds­skóla, starf þeirra og þjón­ustu við nem­endur

Öllum nemendum tryggt jafnt aðgengi að mikilvægri þjónustu
Guð­mundur Ingi Krist­ins­son mennta- og barna­mála­ráð­herra Kynnti áform um nýtt skipu­lag fyrir opin­bera fram­halds­skóla Mynd: Víkingur

Mennta- og barna­mála­ráðu­neytið kynnti í gær áform um nýtt skipu­lag fyrir opin­bera fram­halds­skóla, en áformin miða að því að efla stuðn­ing við fram­halds­skóla, starf þeirra og þjón­ustu við nem­endur.

Næsta skrefið er málið varðar er það að eiga sam­ráð við skóla­meist­ara, kenn­ara, starfs­fólk, nem­endur og nær­sam­fé­lag skóla við mótun skipu­lags­ins.

Nýtt stjórn­sýslu­stig mun verða sett á lagg­irnar þar sem stjórn­sýsla og þjón­usta fær­ast frá ráðu­neyt­inu og skólum yfir til fjög­urra til sex svæð­is­skrif­stofa:

„Svæð­is­skrif­stof­urnar verða stað­settar í nærum­hverfi og hafa það hlut­verk að halda utan um rekstur skól­anna og veita þeim stuðn­ing og þjón­ustu. Engir fram­halds­skólar verða lagðir niður og munu skól­arnir halda áfram sínum sér­kennum, nafni og fag­legri stjórnun,” segir Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, mennta- og barna­mála­ráð­herra, sem segir einnig að hér sé um að ræða „veru­lega þjón­ustu­aukn­ingu fyrir fram­halds­skóla­stigið.”

Samkvæmt ráð­herra mætir fram­halds­skóla­kerfið í dag „ekki nægi­lega vel áskor­unum sam­tím­ans” og segir að það sé „þörf á stærri og sveigj­an­legri stjórn­sýslu­ein­ingum sem eru betur í stakk búnar til að takast á við breytt umhverfi og geti veitt fram­halds­skól­unum öfl­ugri stuðn­ing, bæði fag­lega og félags­lega.”

Það er ljóst að þjóðin vex áfram og hlut­fall barna er inn­rit­ast í fram­halds­skóla hefur eðli­lega hækkað vegna þessa.

Bendir ráð­herra á að í skól­unum hafi fjöldi barna í við­kvæmri og erf­iðri stöðu auk­ist og „hefur það aukið þörf á þjón­ustu sem hefur ekki tek­ist að mæta sem skyldi, og þá er lítil sam­ræm­ing á milli skóla, og vís­bend­ingar um að sú þjón­usta og það nám sem stendur nem­endum til boða sé afar ólíkt.”

Guð­mundur Ingi telur klárt mál að „með hinu nýja fyr­ir­komu­lagi náum við að nýta betur mannauð­inn og getum á sama tíma veitt starfs­fólki aukin tæki­færi til starfs­þró­unar og sér­hæf­ingar. Við getum einnig haldið úti fjöl­breyttri sér­fræði­þjón­ustu sem minni stjórn­sýslu­ein­ingar hafa ekki bol­magn til að veita.“

Hann bendir á að börnum fylgi ríkar skyldur er varða alla þjón­ustu:

„Við megum ekki missa sjónar á því að mark­miðið með breyt­ing­unum er að sam­ræma og tryggja gæði náms og að öllum nem­endum verði tryggt jafnt aðgengi að mik­il­vægri þjón­ustu óháð búsetu eða stærð skóla.“

Breyt­ingar þessar miða að því að tryggja skil­virk­ari þjón­ustu í nærum­hverfi fram­halds­skóla, svo kenn­arar, skóla­stjórn­endur og annað starfs­fólk geti ein­beitt sér að fag­lega þætt­inum frekar en skrifræði og horft er til þess að mannauðs- og rekstr­ar­mál fær­ist yfir á svæð­is­skrif­stof­urnar sem eykur skil­virkni og eflir þjón­ustu.

Minni skólar geti því samnýtt sér­hæfða starfs­krafta eða sér­fræði­ráð­gjöf, til að mynda störf sál­fræð­inga, hjúkr­un­ar­fræð­inga, náms- og starfs­ráð­gjafa, þroska­þjálfa og ann­arra sér­fræð­inga eftir aðstæðum:

Segir ráð­herra að „með breyt­ing­unum verða boð­leiðir styttri og stuðn­ingur mark­viss­ari. Í stað þess að leita til ráðu­neyt­is­ins hafa skólar beint sam­tal við sína svæð­is­skrif­stofu sem þekkir vel til aðstæðna hvers skóla.“

Þetta nýja stjórn­sýslu­stig tryggir jafn­framt að nú er það ekki lengur sami aðili er veitir fram­halds­skólum þjón­ustu og hefur eft­ir­lit með henni; sam­ráð við skóla­sam­fé­lagið Mótun hins nýja kerfis er á frum­stigi og hefst nú „ítar­legt sam­ráð við skóla­meist­ara, kenn­ara, starfs­fólk skóla og nem­endur um þá þjón­ustu sem svæð­is­skrif­stof­urnar muni veita og hvar og hvernig henni verður best fyrir komið” og þá verður rætt um til­högun þeirra verk­efna sem munu fær­ast frá ráðu­neyt­inu og skólum yfir til svæð­is­skrif­stof­anna.

Nið­ur­stöður þessa sam­ráðs munu verða lyk­ill­inn að útfærslu breyt­ing­anna, sagði Guð­mundur Ingi enn­fremur.

Á næstu vikum mun mennta- og barna­mála­ráð­herra heim­sækja alla opin­bera fram­halds­skóla á land­inu, og funda með starfs­fólki og kenn­urum.

Segir Guð­mundur Ingi að áformin falli vel að áherslum stjórn­valda á aukna skóla­þjón­ustu - jöfn tæki­færi til náms óháð búsetu; inn­gild­ingu og sam­þætt­ingu þjón­ustu á grund­velli far­sæld­ar­lag­anna:

„Skóla­stjórn­endur munu geta ein­beitt sér að fag­legri for­ystu, kenn­arar og starfs­fólk skóla fá betri mögu­leika til starfs­þró­unar og sér­hæf­ingar og nem­endur njóta góðs af sterku og sam­ræmdu skóla­starfi með sömu gæðum um allt land,“ segir Guð­mundur Ingi og bendir á að þetta sé ekki gert eða sett fram í „hag­ræð­ing­ar­skyni“ en hins vegar „bindum við vonir við að þetta leiði til skil­virk­ari stjórn­sýslu og betri þjón­ustu.“

Segir ráð­herra að end­ingu að gengið sé út frá því að halda í mannauð í skóla­kerf­inu og að „skóla­stjórn­endur og kenn­arar starfi áfram innan fram­halds­skóla­kerf­is­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina