Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bubbi um gervigreind í tónlist: „Öll lög eru farin að hljóma eins“

Bubbi Morthens hefur áhyggjur af fram­tíð tón­listar

Bubbi um gervigreind í tónlist: „Öll lög eru farin að hljóma eins“
Bubbi Morthens Bubbi er ekk­ert sér­stak­lega ánægður með gervi­greind­ina Mynd: Instagram-skjáskot

Tón­list­ar­mað­ur­inn Bubbi Morthens birti í dag hug­leið­ingu á Facebook þar sem hann fjallar um áhrif gervi­greindar á tón­list og hvernig tæknin sé að breyta list­form­inu, bæði til hins betra og verra.

„Á tímum þegar gervi­greind er hægt og rólega að breyta tón­list­inni til hins verra og betra og Spotify býr til dæmis til plat hljóm­sveitir sem hirða tekjur frá venju­legu tón­list­ar­fólki,“ skrifar Bubbi og segir Spotify hafa gjör­breytt lands­lag­inu.

Að hans mati hefur stór hluti tón­listar orðið merk­ing­ar­laus. „Stór hluti tón­listar hefur ekk­ert að segja, skiptir öngu máli nema vera suð bak­við dag­inn. Ef 15 sek­úndur duga ekki til að ná hlustun þá ertu á vit­lausum stað. Lög sem eru lengri en 3 mín­útur eru nán­ast and­vana fædd. Öll tón­list er farin að hljóma eins.“

Hann nefnir þó að tón­list­ar­konan Laufey hafi tek­ist að brjóta múr­inn „á eigin for­sendum sem í raun er ekk­ert annað en stór­brotið.“

Bubbi gagn­rýnir einnig hvernig gervi­greind geri fólki sem hvorki syngur né spilar á hljóð­færi kleift að gefa út tón­list. „Það er svipað því og þú létir hana skrifa fyrir þig bók og titl­aði þig höf­und vegna þess að þú baðst hana að skrifa bók um til­tekið efni.“

Hann segir þó tækn­ina einnig geta verið gagn­lega sem „krydd þegar verið er að vinna lög“ og lýsir nýju efni sem hann vinnur að, þar sem hljóð­færa­leik­arar taka þátt í sköp­un­ar­ferl­inu.

„Ég upp­götv­aði að það að spila svona hrátt rokk vekur ótrú­lega góða til­finn­ingu. Blind­sker er þannig lag, það vaknar eitt­hvað hreint og frum­stætt inní manni, þú verður nak­inn inní þér og fattar þetta er upp­hafið. Að spila með öðrum á sviði með hljóm­sveit er galdur,“ skrifar hann og bætir við: „Kannski er þetta deyj­andi form. Hljóm­sveitir verða sirk­us­dýr þar sem sessu­nautur þinn hvíslar að þér: Váá þessi er að spila í alvöru á gítar – eða ekki.“

Þrátt fyrir breyt­ing­arnar telur Bubbi að enn sé von: „Vin­sælasta rokk­hljóm­sveit heims­ins, Oasis, er að gera allt vit­laust... nokkrir gaurar að spila hrátt rokk. Þannig að þetta er ekki búið.“

Hann bendir á að tekjur tón­list­ar­manna frá Spotify séu nán­ast engar. „Eina leiðin til að hafa tekjur er að spila á sviði með gervi­greind á bak­við þig eða hljóm­sveit.“

Að lokum leggur hann áherslu á að tón­list eigi að hafa til­gang og segja eitt­hvað um sam­tím­ann. „Einu sinni spegl­uðu menn sam­tíma sinn í tón­list, ögr­uðu vald­höfum, litu á tón­list­ina sem tæki til að hafa áhrif og breyta heim­inum. Þeir sem gera það í dag eru skráðir af leyni­þjón­ustum og kall­aðir hryðju­verka­menn og yfir­völd ráð­ast á þá, þeim er bannað að halda tón­leika, meinað að koma inní lönd. Tónlist á að ögra. Tónlist á ekki að þegja, hún á að hafa eitt­hvað fram að færa, sér­stak­lega á tímum sem þessum.“

Bubbi endar færsl­una á hug­leið­ingu um fram­tíð­ina: „Ennþá er það hið mann­lega sem stjórnar en hversu lengi það verður er svo annað mál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu