Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ugla Stefánía segir ótta við gistiskýli byggður á fordómum

„Fólk í þessum aðstæðum þarfn­ast hjálpar og þjón­ustu, ekki tor­tryggni og andúðar“

Ugla Stefánía segir ótta við gistiskýli byggður á fordómum
Ugla Stefanía Krist­jönu­dóttir Jóns­dóttir Ugla Stefanía tekur upp hansk­ann fyrir heim­il­is­lausa Mynd: Móa Hjartardóttir

Ugla Stefánía Krist­jönu­dóttir Jóns­dóttir, rit­höf­undur og trans aðgerð­ar­sinni, gagn­rýnir harð­lega and­stöðu við þjón­ustu og gisti­skýli fyrir heim­il­is­laust fólk og fólk með vímu­efna­vanda. Í færslu á Facebook segir hún umræð­una oft ein­kenn­ast af ótta sem eigi sér litla stoð í raun­veru­leik­anum og bendir á rann­sóknir sem sýni að slík þjón­usta auki hvorki glæpa­tíðni né óör­yggi í nærum­hverfi.

Ugla segir eigin reynslu sína sýna hið gagn­stæða við það sem haldið er fram í umræð­unni

„Nú hef ég búið á alls­konar stöðum – meðal ann­ars í grennd við þjón­ustu og gisti­skýli fyrir heim­ils­laust fólk eða fólk sem glímir við vímu­efna­vanda. Það olli engum vanda­málum, og ótt­að­ist ég aldrei um öryggi mitt,“ skrifar hún og bætir við:

„Fólk í þessum aðstæðum þarfn­ast hjálpar og þjón­ustu, ekki tor­tryggni og andúðar.“

Hún seg­ist skilja að fólk geti fundið fyrir ótta, en leggur áherslu á að slíkur ótti sé oft ekki studdur stað­reyndum.

„Auðvitað hef ég skiln­ing á því að fólk verði kannski ótta­slegið, en oft á tíðum er sá ótti einmitt bara ótti,“ skrifar Ugla og bendir á að vanda­mál geti komið upp hvar sem er í sam­fé­lag­inu.

„Ég hef lent í meiri vanda­málum er varðar ofbeldi og glæpi í hverfum þar sem engin slík þjón­usta er stað­sett.“

Ugla vísar jafn­framt til rann­sókna sem sýni að áhrif gisti­skýla og sam­bæri­legrar þjón­ustu á glæpa­tíðni séu lítil sem engin.

„Ef skoð­aðar eru rann­sóknir á hverfum þar sem skýli og sam­bæri­leg þjón­usta er til staðar, þá sést að áhrif á glæpa­tíðni eru lítil sem engin, eða jafn­vel lækkar tíðnin,“ segir hún.

Hún telur ástæð­una meðal ann­ars þá að slík svæði séu betur vöktuð og við­bragð hrað­ara

„Svæðin eru oftar betur vöktuð, virk­ari við­bragðs­að­ilar og annað. Þannig að ef rétt er staðið að þeim málum þá er því lítið að ótt­ast, burt­séð frá hvers­konar þjón­usta er í boði.“

Ugla hafnar alfarið þeirri hug­mynd að hægt sé að „færa vand­ann annað“.

„Ein­hver­staðar verður fólk að fá að vera. Við getum ekki bara sett þessa þjón­ustu í ein­hver iðn­að­ar­hverfi, út í sveit eða bara út í skurð,“ skrifar hún og segir slíkar kröfur bæði óraun­hæfar og ómann­úð­legar.

„Þessi krafa að fólk sem nýti sér þessa þjón­ustu eigi bara að „vera ein­hver­staðar ann­ar­staðar“ [er] mjög ómann­úð­leg. Við erum öll hluti af sama sam­fé­lag­inu.“

Ugla hvetur til þess að umræðan snú­ist frekar um lausnir en úti­lokun.

„Ef fólk hefur virki­lega áhyggjur af þessu, þá er það betra að sýna stuðn­ing við svona þjón­ustu, og setja kröfur á stjórn­völd að taka á þessum málum betur,“ skrifar Ugla og nefnir sér­stak­lega skaða­minnk­andi úrræði.

„Það er til dæmis hægt með skaða­minnk­andi úrræðum, þar sem fólki er mætt með hlýju, skiln­ingi og mannúð.“

Hún segir ábyrgð­ina liggja hjá stjórn­völdum og við­bragðs­að­ilum að byggja upp traust og gagn­sæi.

„Það er hlut­verk stjórn­valda og við­bragðs­að­ila að sjá til þess að rétt sé að þessu staðið, við­eig­andi upp­lýs­ingum sé komið á fram­færi, og byggt upp sé traust og gagn­sæi um þessi mál,“ skrifar Ugla að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina