Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ákærði í Hafnarfjarðarmálinu segist saklaus af barnaníði

„Ég finn til með barn­inu og fjöl­skyldu þess“

Ákærði í Hafnarfjarðarmálinu segist saklaus af barnaníði
Hafn­ar­fjörður Maðurinn segir sak­laus af ódæð­inu. Mynd: Víkingur

Karl­mað­ur­inn sem ákærður er fyrir hús­brot og kyn­ferð­is­brot gegn tíu ára dreng í Hafn­ar­firði, hafnar ásök­unum og segir ákæruna ekki stand­ast þau gögn sem liggi fyrir í mál­inu. Hann heldur því fram að hann hafi verið í alvar­legu áfengis „blackout-ástandi“ umrætt kvöld en telji sig engu að síður ekki færan um að fremja það brot sem honum er gefið að sök.

Heim­ildin tók ítar­legt við­tal við for­eldra drengs­ins í októ­ber.

Í yfir­lýs­ingu sem mað­ur­inn hefur sent fjöl­miðlum segir hann að þögn hans hingað til hafi orðið til þess að dregnar hafi verið álykt­anir um sekt hans. Hann seg­ist hafa fallið á bind­indi sínu umrætt kvöld og vaknað síðar án minnis um atburði næt­ur­innar, eftir að hafa fund­ist sof­andi heima hjá sér.

Þrátt fyrir þetta ástand segir mað­ur­inn sig ekki hafa í sér að beita barn kyn­ferð­is­of­beldi og full­yrðir að hann sé sak­laus af ákærunni. Hann telur jafn­framt að ákæran sé í ósam­ræmi við máls­gögn, þó hann við­ur­kenni að afleið­ingar máls­ins séu alvar­legar og hafi haft djúp­stæð áhrif á líf hans og fjöl­skyldu.

Maðurinn tekur fram að hann for­dæmi allt kyn­ferð­is­of­beldi gegn börnum og hafi aldrei haft slíkar hvatir. Hann segir ásak­an­irnar óskilj­an­legar og að málið hafi lagt líf hans í rúst. Jafn­framt lýsir hann samúð með barn­inu og fjöl­skyldu þess vegna ótta og sárs­auka sem málið hafi valdið.

Hann segir að hann muni aldrei geta aft­ur­kallað bakslag sitt í bind­ind­inu en ítrekar að hann beri ekki ábyrgð á þeim brotum sem honum eru gefin að sök. Maðurinn segir sig frá upp­hafi hafa átt í sam­starfi við yfir­völd og að hann hafi leitað sér sér­fræði­að­stoðar til að koma í veg fyrir að slíkt end­ur­taki sig.

Hér má lesa yfir­lýs­ingu hans í heild:

„Ég hef lengi velt því fyrir mér hvort ég eigi yfir höfuð að stíga fram með ein­hver orð í þessu máli. Ég geri það nú af þeirri ein­földu ástæðu að þögn mín hefur skapað rými fyrir þá ályktun að ég hafi vís­vit­andi framið ólýs­an­legt brot gegn barni.

Umrætt kvöld féll ég á bind­indi mínu og var um nótt­ina kom­inn í svo­kallað blackout-ástand og virð­ist ekki hafa verið með sjálfum mér enda fannst ég sof­andi áfeng­is­dauða í vaska­hús­inu heima hjá mér án þess að muna hvernig ég komst þangað.

Þó að ég hafi verið í þessu ástandi þá hef ég það ein­fald­lega ekki í mér að vera fær um að gera það sem ég er sak­aður um og er sak­laus af þeirri ákæru. Þá er ákæran sjálf í miklu ósam­ræmi við gögn máls­ins að mínu mati. Það breytir þó engu um þá stað­reynd að afleið­ing­arnar eru raun­veru­legar, alvar­legar og skelfi­legar.

Ég vil taka það skýrt fram að ég for­dæmi allt kyn­ferð­is­of­beldi gegn börnum og hef aldrei haft slíkar hvatir eða hugs­anir. Það sem ég er sak­aður um að hafa gert er mér sjálfum óskilj­an­legt og hefur sett líf mitt og fjöl­skyldu minnar í rúst. Það eina sem ég veit er að í því húsi sem sagt er að ég hafi farið inn í þessa nótt býr kona sem ég taldi á þessum tíma­punkti bestu vin­konu mína. Ég skil að orð mín breyta ekki þeirri upp­lifun og þeim ótta sem barn og fjöl­skylda þess bera. Ég finn til með barn­inu og fjöl­skyldu þess vegna þess ótta og sárs­auka sem þau upp­lifa í dag.

Ég mun aldrei geta aft­ur­kallað það að hafa fallið á bind­indi mínu, en tek aftur fram að ég er ekki sekur um það sem ég er ákærður fyrir. 

Ég hef frá fyrsta degi verið í sam­starfi við yfir­völd og mun halda því áfram. Ég hef jafn­framt leitað sér­fræði­að­stoðar og er í með­ferð til að tryggja að slíkt bakslag end­ur­taki sig ekki.

Ég skil að þetta mál vekur sterk við­brögð. Ég bið þó um að máls­með­ferð fái að fara sinn lög­bundna far­veg og að dómur verði ekki kveð­inn upp í fjöl­miðlum.

–

Þetta er martröð sem ég mun bera með mér alla ævi. Það eina sem ég get gert er að axla ábyrgð á falli mínu og sýna iðrun í verki.“

Yfirlýsing verjandans

Í yfir­lýs­ingu lög­manns manns­ins, Oddgeirs Ein­ars­sonar hæsta­rétt­ar­lög­manns, kemur fram að verj­and­inn telji umfjöllun um málið hafa verið ein­hliða og að mik­il­væg sjón­ar­mið sem bendi til sak­leysis skjól­stæð­ings hans hafi ekki komið fram. Hann segir að ákæran verði að fá úrlausn fyrir dóm­stólum þar sem öll gögn máls­ins og sjón­ar­mið beggja aðila verði metin.

Oddgeir bendir jafn­framt á að grund­vall­ar­regla rétt­ar­rík­is­ins gildi enn, þess efnis að maður skuli telj­ast sak­laus uns sekt hans hafi verið sönnuð fyrir dómi, og lýsir trausti á að málið fái hlut­læga og óhlut­dræga með­ferð fyrir dóm­stólum.

Hér má sjá yfir­lýs­ing­una í heild sinni:

„Ég er verj­andi manns sem sak­aður hefur verið um kyn­ferð­is­brot gegn barni í Hafn­ar­firði síð­ast­liðið haust.

Þrátt fyrir mikla fjöl­miðlaum­fjöllun um þetta við­kvæma mál, meðal ann­ars fyrir til­stilli lög­reglu og sak­sókn­ara, sem hófst löngu áður en dóm­stólar svo mikið sem byrj­uðu að skoða málið hefur skjól­stæð­ingur minn ekki viljað lýsa sinni afstöðu opin­ber­lega hingað til. Það er þó þannig að í allri þeirri umfjöllun hefur algjör­lega verið skautað hjá mik­il­vægum sjón­ar­miðum sem benda til sak­leysis í mál­inu auk þess að þar eru atriði sem bein­línis eru ekki sann­leik­anum sam­kvæm.

Vegna nafn- og mynd­birt­inga í kjöl­far þess að hér­aðs­dómur hafn­aði á föstu­dag kröfu sak­sókn­ara um gæslu­varð­hald sér skjól­stæð­ingur minn sig knú­inn til að upp­lýsa að hann telji ákæru þá sem hann sætir í mál­inu í miklu ósam­ræmi við gögn máls­ins og að hann sé sak­laus af ákæru um að hafa brotið kyn­ferð­is­lega gegn barni.

Úr þessu verður ein­fald­lega leyst fyrir dómi þar sem öll gögn máls­ins og sjón­ar­mið beggja aðila, en ekki ein­ungis ákæru­valds­ins, koma til skoð­unar.  Þrátt fyrir ein­hliða umfjöllun um málið und­an­farna mán­uði sem skjól­stæð­ingur minn hefur ekki viljað blanda sér í treystir hann því að dóm­stólar fjalli um málið af hlut­lægni og á óhlut­drægan hátt. Loks er rétt að minna á að sú grund­vall­ar­regla rétt­ar­rík­is­ins gildir enn að sak­born­ingur skal álit­inn sak­laus uns sekt er sönnuð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi