Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Gangandi kraftaverk“ eftir fjórða stigs krabbamein

Thelma Björk eign­að­ist barn með Downs sem varð ljós lífs­ins.

„Gangandi kraftaverk“ eftir fjórða stigs krabbamein
Thelma Björk Jóns­dóttir Lifði í gegnum krabba­mein og tók allt líf sitt í gegn. Mynd: Youtube / Sölvi Tryggvason

Thelma Björk Jóns­dóttir, fata­hönn­uður, lista­kona og yoga­kenn­ari seg­ist hafa tekið djúpa ákvörðun um að lifa í gleði og þakk­læti eftir að hafa greinst með 4. stigs krabba­mein. Thelma, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, tók lífs­stíl­inn og hug­ar­farið í gegn og hefur náð ótrú­legum bata á skömmum tíma. Thelma ræðir í þætt­inum einnig um þá reynslu að eiga barn með Down´s heil­kenni og vill að sam­fé­lagið taki alvöru umræðu um fjöl­breytni. Hún segir Jón Árna, son sinn, hafa sett mikla birtu í líf allrar fjöl­skyld­unnar og að hann kenni þeim stöðugt alls konar hluti um lífið og til­ver­una.

Ljósið með Downs

„Við hjónin horfðum strax á þetta þannig að þetta væri nákvæm­lega eins og þetta ætti að vera. Mér líður eins og hann hafi komið í heim­inn fyrir okkur öll. Mig, Össa (eig­in­mann Thelmu) og bræður sína. Hann er rosa­legt ljós inn í þennan heim sem átti að koma akkúrat þarna. Hann er með mjög háa til­finn­inga­greind og finnur og skynjar hluti sem flestir í kringum mig gera ekki. Það er margt sem hann tekur eftir og gerir sem maður áttar sig ekki á fyrr en eftir á. Hann á það til dæmis til að taka fyrir pabba á leik­skól­anum sem eru eitt­hvað nið­ur­dregnir og ákveður að faðma þá á hverjum degi í mánuð. Hann velur sér ákveðna menn og það er ekki til­viljun hvernig hann gerir það. Hann er búinn að glæða líf okkar svo mik­illi gleði og hlýju að það er erfitt að koma því í orð. Það er ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að geta lifað frá­bæru lífi með Down´s syndrome. Ein­stak­lingar með þetta heil­kenni geta unnið og funkerað mjög vel í sam­fé­lag­inu okkar,” segir Thelma, sem sjálf ákvað að láta ekki skima fyrir mögu­legum heil­kennum á með­göng­unni.

Thelma Björk í við­tali við Sölva Tryggva­son.

Nær 100% fóstureyðing á einstaklingum með Down´s

„Ég ákvað í öllum með­göng­unum mínum að fara ekki í hnakka­þykkt­ar­mæl­ingu, en það var ýtt tals­vert á mig að gera það af fólk­inu á spít­al­anum og þeim fannst það mjög skrýtið. Staðan er sú að það er nán­ast 100% fóst­ur­eyð­ing á Íslandi ef að fjöl­skylda fær þessar fréttir og fólk ákveður að láta skima fyrir þessu. Ég held að það séu tvær fjöl­skyldur á Íslandi sem hafa klárað með­göng­una eftir að hafa fengið jákvætt úr skimum fyrir Down´s. Það vekur upp spurn­ing­una í hvernig sam­fé­lagi við viljum búa. Það er bara skannað fyrir þrennu. Down´s er eitt, svo er það heil­kenni þar sem barni er vart hugað líf og svo annað þar sem fötl­unin er gríð­ar­lega mikil bæði and­lega og lík­am­lega. Það að Down´s sé sett undir þennan hatt vekur upp alls konar spurn­ingar. Ættum við þá að skima fyrir ein­hverfu, eða öðru sem fellur ekki alveg inn í normið? Undir hvaða kring­um­stæðum þykir okkur eðli­legt að láta mæla hugs­an­lega hluti hjá ófæddu barni og fara svo í fóst­ur­eyð­ingu ef það kemur út jákvætt úr skimum. Tækninni fleytir stöðugt fram og við verðum að eiga um þetta heild­stætt sam­tal sem sam­fé­lag. Er eðli­legt að við séum að leika guð með þessum hætti og ákveða hverjir eru vel­komnir í heim­inn og hverjir ekki? Viljum við búa í sam­fé­lagi þar sem eru engir fatl­aðir ein­stak­lingar. Við tölum mikið um mik­il­vægi fjöl­breytni í sam­fé­lag­inu á tylli­dögum, en svo virð­ist það ekki alltaf eiga við.”

Eig­in­maður Thelmu, Örn Árnason er góður vinur Sölva og í þætt­inum segir Thelma sög­una af því hvernig þau hjónin kynnt­ust.

Eiginmaðurinn sofnaði á fyrsta stefnumóti

„Ég hafði hitt ykkur í fyrsta skipti á Systra­sam­lag­inu sem þá var hjá sund­laug­inni á Sel­tjarn­ar­nesi. Það er til mynd af okkur þennan morgun þar sem við hitt­umst fyrst. Fyrsta stefnu­mótið var svo bara fljót­lega eftir það. Gæinn sækir mig og við förum í bíó, þar sem hann steinsofn­aði á fyrsta deit­inu okkar. Þetta var eftir að ég bauð ykkur báðum í yoga­tíma hjá mér og þið mættuð ekki. Hann sendi mér skila­boð eftir tím­ann og spurði hvernig hann gæti bætt mér það upp að hafa ekki mætt og ég sagði honum að hann gæti boðið mér í bíó. Hann spurði hvort ég væri laus þetta sama kvöld og við end­uðum á að fara saman á James Bond. Svo er myndin hálfnuð þegar ég tek eftir því að hann er steinsofn­aður. Svo var hann líka í öfugum bol og sitt hvorum sokknum og ver­andi fata­hönn­uður hélt ég að hann væri að ,,pulla” ein­hvern stíl, en það var ekki málið. Hann hafði bara farið í bol­inn öfugan og þurfti svo að snúa honum við og sokk­arnir voru líka bara til­viljun,” segir Thelma og hlær:

„Svo fórum við á rosa­lega langan rúnt eftir bíóið þar sem ég vissi ekki hvað var í gangi, en á end­anum bað hann mig um að koma heim til sín og hjálpa sér að setja upp jóla­seríu, sem ég og gerði! Ég man að hugs­aði að annað hvort væri hann snar­geð­veikur, eða þetta væri ein­hver snill­ingur. Ég hafði alla­vega aldrei lent í þessu áður á fyrsta deiti og þetta virk­aði greini­lega hjá honum. Eftir á að hyggja var þarna bara á ferð­inni maður í fullu flæði og við höfum eig­in­lega bara verið saman síðan.”

Thelma fékk risa­stórt verk­efni í hend­urnar í byrjun árs 2024, þegar hún greind­ist með fjórða stigs krabba­mein sem var metið ólækn­andi. Hún hafði nokkrum mán­uðum áður fundið hnút í öðru brjóst­inu og pant­aði strax tíma á heilsu­gæsl­unni til að láta skoða sig.

Erfitt að lýsa áfallinu

„Ég var í sturtu og fann bara kúlu í brjóst­inu á mér og fannst það skrýtið. Lækn­ir­inn sem ég hitti á heilsu­gæsl­unnni þreif­aði á mér, en sagði mér að ég þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur og ætti bara að fara heim, Þetta væri lík­leg­ast bara stíflaður mjólk­ur­kirt­ill. Þetta var í lok árs 2023 og svo komu bara jólin og ára­mótin, en ég var alls ekki sann­færð og ákvað á end­anum að hlusta á inn­sæið. Þannig að ég ákvað að hringja aftur og þurfti á end­anum að væla út mynda­töku. Um leið og mynda­takan var búin sá ég bara og fann að þetta væri alvar­legt. Svo bara segir lækn­ir­inn við mig að þetta sé brjóstakrabba­mein og það var fyrsta áfallið. Svo komu frétt­irnar um að þetta væri búið að dreifa sér og væri fjórða stigs krabba­mein. Þetta er svo mikið áfall að það er erfitt að lýsa því. Þetta eru bara fréttir sem þú vilt aldrei fá. Eitthvað sem þú heldur að komi fyrir hina, en ekki þig. En svo þegar þú færð að heyra þetta, þá ger­ist eitt­hvað. Mér finnst gott að lýsa þessu á svip­aðan hátt og góð kona gerði í Ljósinu. Þetta er svo­lítið eins og að við værum í þyrlu­flugi, ég Össi og strák­arnir mínir og við erum að fljúga yfir sjó og svo bara dettur botn­inn undan sæt­inu mínu og ég fell í sjó­inn. Hvað gerir þú þá? Jú, þú byrjar að synda. Kannski hoppar fjöl­skyldan út í og syndir hluta með þér, kannski fer hún í bát til að hvetja þig áfram, svo ef þú ert hepp­inn, þá sérð þú eyju og gerir það sem þarf til að kom­ast upp á hana. Þar ertu svo renn­blaut og fólkið sem synti með þér klappar þér á bakið og segir: ,,Ég vissi að þú gætir þetta”. En svo fara allir, en þú situr eftir renn­andi blaut, rétt að ná and­anum, stödd á eyju sem þú þekkir ekki á neinn hátt. Ég upp­lifði tíma­bilið þegar ég fékk frétt­irnar á þennan hátt. Nýja lífið mitt er að lifa í óvissu og hafa hug­rekkið til að þora því og gera allt sem í mínu valdi stendur til að taka ábyrgð á því sem ég get tekið ábyrgð á.”

Thelma ákvað frá byrjun að gera allt sem hún gæti þegar kemur að lífs­stíl og jákvæðu hug­ar­fari. Hún seg­ist hafa búið að því að hafa verið dug­leg að leggja inn á sinn and­lega banka í mörg ár.

Tók allt í gegn

„Það kikk­aði bara strax inn að ég ætl­aði að gera allt. Hvort sem það væri mat­ar­ræðið, hug­ar­farið, rétt hvíld, hreyf­ing, teng­ing við nátt­úru eða annað. Ég tók allt í gegn. Ég tók strax út allan sykur og ég varð strax stokk­bólgin þegar ég tók allar sykrur út og það var eins og lík­am­inn væri að hreinsa sig. Ég tek skot af hveitigrasi á hverjum degi, fer í súr­efnis- og rauð­ljósameð­ferðir hjá Greenfit, fer í gufu og sund og út að labba. Ég ákvað strax að ég myndi gera alla þessa hluti sam­hliða lyfja­gjöf­inni. Strax í skanna númer tvö eftir lyfja­gjöf sást ekki neitt lengur, nema smá í brjóst­inu. Svo voru næstu skannar á eftir bara alveg hreinir, sem voru auð­vitað stór­kost­legar fréttir. Ég upp­lifði að ég væri gang­andi krafta­verk,” segir Thelma, sem seg­ist horfa algjör­lega nýjum augum á lífið.

„Ég get ekki horft á þetta eins og kúr eða  tíma­bundið verk­efni. Ég verð í lyfja­gjöf það sem eftir er, þannig að nú lifi ég bara nýrri teg­und af lífi og horfi björt fram á veg­inn. Ég er ekki í neinni afneitun og algjör­lega jarð­tengd, en tek ákvörðun á hverjum degi um að setja athygl­ina á það sem er jákvætt og gott. Ég ætla að lifa í gleði og lifa í þakk­læti. Hug­ar­farið skiptir öllu máli og ég trúi því að við lifum lengur þegar við erum í jákvæðni og þakk­læti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una