Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sprenging í sjálfsvígssamtölum til 1717

Rauða kross­inum er brugðið yfir aukn­ing­unni

Sprenging í sjálfsvígssamtölum til 1717
Aukning í van­líðan 67% aukn­ing hefur orðið á sjálfs­vígs­sam­tölum við 1717 milli ára Mynd: Shutterstock

Aldrei hafa borist jafn mörg sam­töl vegna sjálfs­vígs­hugs­ana til Rauði kross­inn á Íslandi og á síð­asta ári. Alls var haft sam­band við Hjálp­ar­sím­ann 1717 1.728 sinnum vegna sjálfs­vígs­hugs­ana árið 2025, sem er 67% aukn­ing frá árinu á undan, þegar slík sam­töl voru 1.035 tals­ins. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu Rauða kross­ins.

„Þrátt fyrir að hafa reglu­lega yfir árið tekið saman tölur um fjölda sjálfs­vígs­sam­tala sem ber­ast 1717, og vera með­vituð um að sam­tölin hafa verið að þyngj­ast og verða alvar­legri, þá er okkur brugðið yfir heild­ar­sam­an­tekt árs­ins,“ segir Elfa Dögg S. Leifs­dóttir, sál­fræð­ingur og teym­is­stjóri heil­brigð­is­verk­efna hjá Rauða kross­inum.

Aukn­ingin birt­ist ekki aðeins í fjölda sam­tala heldur einnig í alvar­leika þeirra. „Við höfum séð ákveð­inn stíg­anda í þessa átt í sam­töl­unum und­an­farin ár en það er eig­in­lega ekki hægt að orða það öðru­vísi en að spreng­ing hafi nú orðið milli ára, bæði hvað varðar fjölda sjálfs­vígs­sam­tala en einnig í alvar­leik­anum,“ segir Sandra Björk Birg­is­dóttir, verk­efna­stjóri hjá Hjálp­ar­sím­anum 1717.

Í 229 til­vikum á síð­asta ári töldu starfs­menn og sjálf­boða­liðar sem svör­uðu sím­anum að við­kom­andi væri í lífs­hættu og var þá haft sam­band við Neyð­ar­lín­una 112.

Yfir 20 þúsund samtöl á árinu

Heild­ar­fjöldi sam­tala við Hjálp­ar­sím­ann 1717 árið 2025 var 20.233. Um það bil jafn­margir leit­uðu sér aðstoðar í síma og í gegnum net­spjallið 1717.is. Ungt fólk er mun lík­legra til að nota net­spjallið, sér­stak­lega á nótt­unni þegar önnur úrræði eru lokuð.

Af þeim sam­tölum þar sem aldur var gef­inn upp voru 21% frá ein­stak­lingum yngri en 18 ára. Í þeim hópi sneru 278 sam­töl að sjálfs­vígs­hugs­unum og 161 að sjálfs­skaða. Hjá ald­urs­hópnum 19–25 ára var haft sam­band 248 sinnum vegna sjálfs­vígs­hugs­ana og 103 sinnum vegna sjálfs­skaða. Oft voru fleiri en ein ástæða skráð fyrir hvert sam­tal.

Helstu ástæður þess að börn undir 18 ára hafa sam­band eru almenn van­líðan, en einnig eru ofbeldi, þar á meðal staf­rænt ofbeldi, kvíði, sjálfs­skaði og félags­leg ein­angrun algeng umfjöll­un­ar­efni.

Þjónusta sem skiptir sköpum

Hjálp­ar­sím­inn 1717 er lág­þrösk­ulda þjón­usta þar sem fólk getur leitað sér aðstoðar í fullum trún­aði án þess að gefa upp per­sónu­upp­lýs­ingar. Starfs­fólk og sjálf­boða­liðar hafa hlotið sér­hæfða þjálfun í virkri hlustun og sál­rænum stuðn­ingi. Samtölin geta verið allt frá óljósum sjálfs­vígs­hugs­unum yfir í aðstæður þar sem við­kom­andi hefur gert aðgerða­plan eða skaðað sig.

„Margir eiga engan að til að deila með áhyggjum sínum, kvíða eða van­líðan,“ segir Elfa Dögg. „Þá skiptir öllu að geta hringt eða sent skila­boð í fullum trún­aði og fengið sam­tal við mann­eskju sem mætir þér af virð­ingu og hlýju.“

Rauði kross­inn bendir á að aug­ljós og vax­andi þörf sé fyrir Hjálp­ar­sím­ann 1717 og að lyk­il­at­riði sé að þjón­ustan sé í boði allan sól­ar­hring­inn. Rekstur slíkrar þjón­ustu sé kostn­að­ar­samur, en með stuðn­ingi ráðu­neyta og fram­lögum Mannvina Rauða kross­ins hafi tek­ist að halda úti næt­ur­þjón­ustu.

Ætíð er hægt að hafa sam­band við Hjálp­ar­sím­ann 1717, allan sól­ar­hring­inn, allt árið um kring.

Hér fyrir neðan má sjá töl­fræð­ina fyrir árið 2025:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina