Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heiða Björg man ekki eftir að hafa sent skilaboð um Pétur

„En ég ætla ekki að úti­loka það“

Heiða Björg Hilmisdóttir
Heiða Björg Hilm­is­dóttir Heiða Björg er ekki viss hvort hún hafi sent skila­boðin Mynd: Víkingur

Heiða Björg Hilm­is­dóttir, borg­ar­stjóri Reykja­víkur, seg­ist ekki muna eftir að hafa sent skila­boð þar sem hún biður um stuðn­ing gegn „frægum karli“. Þetta kom fram í Pall­borð­inu á Vísi þar sem rætt var við Heiðu og Pétur Mart­eins­son, sem bæði sækj­ast eftir odd­vita­sæti Sam­fylk­ing­ar­innar í borg­inni en gengið verður til kosn­ina á morgun.

Gríð­ar­lega margir hafa skráð sig í Sam­fylk­ing­una und­an­farið eða um 3.000 í Reykja­vík og eru nú orðnir um 7.000. Þátta­stjórn­andi Pall­borðs­ins birti skjá­skot af ann­ars vegar skila­boðum frá stuðn­ings­mönnum Péturs og ann­ars vegar skila­boð sem virð­ast koma frá borg­ar­stjór­anum sjálfum. Í skila­boðum frá stuðn­ings­fólki Péturs er við­tak­endur hvattir til þess að velja fram­bjóð­endur eftir lista sem búið er að setja upp, þar sem Pétur er í fyrsta sæti. Í skila­boð­unum sem virð­ast koma frá Heiðu borg­ar­stjóra er beðið um stuðn­ing gegn frægum karli. Þar stendur meðal ann­ars orð­rétt:

„Mér finnst þetta mjög erfið bar­átta þar sem karl með enga reynslu en frægur á að koma í stað mín. Ég ótt­ast um okkar mál og áherslur.“

Með skila­boð­unum fylgir hlekkur á auð­kenn­ing.umsjá.is þar sem fólk gat skráð sig í flokk­inn þar til á mið­nætti í gær­kvöldi.

Aðspurð í Pall­borð­inu hvort skila­boðin séu frá henni, seg­ist Heiða Björg þó ekki mun eftir að hafa sent þessi skila­boð.

„Ég nefni­lega man ekki eftir að hafa sent þau. Nei, ég man ekki eftir því. En ég ætla ekki að úti­loka það, ég hef sent þónokkur skila­boð og þessi virka bara ... ef ég hef sent þau þá,“ en þarna grípur þátta­stjórn­and­inn fram í fyrir henni og spyr hana hvort henni finn­ist frægð Péturs hafa áhrif.

„Pétur hefur held ég sagt það sjálfur að hann er að koma nýr inn í þetta með enga reynslu og mér finnst skrítið ef flokk­ur­inn velur það umfram konu með mikla reynslu og hefur sýnt að hún getur náð miklum árangri. En síðan er það flokks­ins að velja en svo er það spurn­ing, ef það er satt hjá þér að það eru 3.000 nýjir búnir að skrá sig er spurn­ing hvort það sé flokk­ur­inn sem sé að velja. Það kemur þá bara í ljós.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

„Ég var orðinn kynlífsfíkill“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

„Ég á betra skilið, allir innflytjendur eiga betra skilið og allir Íslendingar eiga betra skilið en þetta.“
  • Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

  • Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

  • Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

  • „Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“