Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dóra leiðréttir misskilning fjölmiðla

„Ég bað aldrei um að ser­ían yrði tekin niður“

Dóra leiðréttir misskilning fjölmiðla
Dóra Jóhanns­dóttir Dóra er afar ósátt með stöð­una Mynd: Leiklistarvefurinn

Dóra Jóhanns­dóttir, leik­kona og hand­rits­höf­undur, hefur stigið fram og leið­rétt það sem hún segir vera mis­skiln­ing í umfjöllun fjöl­miðla síð­ustu daga um sjón­varps­s­er­í­una Húsó. Í færslu á sam­fé­lags­miðlum segir hún að það hafi ekki verið frum­kvæði RÚV að fjar­lægja ser­í­una af miðlum stofn­un­ar­innar heldur beiðni frá fram­leið­and­anum, Glass­ri­ver.

„Það var fram­leið­and­inn, Glass­ri­ver, sem fór fram á að sjón­varps­s­er­ían Húsó yrði fjar­lægð af miðlum RÚV. Það var ekki af frum­kvæði RÚV, en stofn­unin varð við beiðni fram­leið­and­ans án nokk­urra skýr­inga til áhorf­enda. Ég bað aldrei um að ser­ían yrði tekin niður,“ skrifar Dóra.

Hún segir jafn­framt að Glass­ri­ver hafi stað­fest að Húsó hafi hvorki verið seld erlendis né send á erlendar hátíðir. Samt sem áður muni fyr­ir­tækið kynna aðra þátta­röð á Berl­inale Series Market í febr­úar. Dóra bendir á að sú hátíð sé jafn­framt vett­vangur þar sem hún sjálf hefur verið boðin til þátt­töku.

„Fyr­ir­tækið mun hins vegar kynna aðra þátta­röð á Berl­inale Series Market í febr­úar, sömu hátíð og mér hefur verið boðið að taka þátt í panel sem creator Húsó, án þess að ég hafi aðgang að eigin verki né myndefni úr því til kynn­ingar,“ segir hún.

Dóra greinir einnig frá því að hún hafi ítrekað óskað eftir leið­rétt­ingum á kredit­lista ser­í­unnar, bæði hjá RÚV og Glass­ri­ver, en lítil sem engin við­brögð fengið. Hún segir RÚV hafa vísað ábyrgð­inni alfarið á fram­leið­and­ann, þrátt fyrir að stofn­unin hafi vitað af ágrein­ingi um höf­unda­rétt áður en tökur hófust.

„Þau svör sem borist hafa frá RÚV vísa ábyrgð­inni alfarið á fram­leið­and­ann, þrátt fyrir að RÚV hafi verið upp­lýst um að höf­unda­réttur minn væri ekki virtur frá því áður en tökur hófust,“ skrifar hún og bætir við að RÚV hafi lagt til 95 millj­ónir króna af almannafé í verk­efnið og eigi 15 pró­senta eign­ar­hlut í því.

Að sögn Dóru hefur Glass­ri­ver stað­fest að hægt sé að leið­rétta „kredit hennar sem creator og höf­undar“ verks­ins, en slíkt hafi engu að síður ekki verið gert.

„Málið snýst ekki um ágrein­ing milli höf­unda, en leið­rétt­ing á kredit­lista hefur engu að síður ekki verið fram­kvæmd heldur ítrekað gerð óheim­ilum skil­yrðum háð, sem sam­ræm­ist ekki lög­bundnum sæmd­ar­rétti,“ segir hún.

Hún hafnar því að fjar­læg­ing ser­í­unnar leysi málið og segir að hún valdi henni þvert á móti fag­legu tjóni, meðal ann­ars í tengslum við þátt­töku hennar á Berl­inale-hátíð­inni.

„Að fjar­lægja Húsó af miðlum RÚV leysir því ekki málið. Þvert á móti veldur það mér mæl­an­legu fag­legu tjóni, meðal ann­ars þar sem ég hef verið beðin um að leggja fram ein­tak af ser­í­unni vegna Berl­inale pan­els­ins, en þrátt fyrir ítrek­aðar beiðnir til Glass­ri­ver og RÚV hef ég hvorki fengið aðgang að eigin verki né myndefni úr því,“ skrifar Dóra.

Hún segir stöð­una óeðli­lega í verk­efni sem nýtur opin­bers stuðn­ings og lýkur færsl­unni á per­sónu­legri nótu:

„Þetta er ekki eðli­leg staða í rík­is­styrktu verk­efni. Ég hef varið óhóf­legri orku og fjár­munum í allt of langan tíma í að fá grund­vall­ar­rétt höf­unda virtan. Mig langar ekk­ert meira en að geta nýtt ork­una í upp­byggi­leg skap­andi og skemmti­leg verk­efni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi