Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Hún misnotaði mig kynferðislega og barði mig sundur og saman“

Guð­mundur Freyr Magn­ús­son lýsir ofbeld­inu sem hann varð fyrir á Bakka­koti í sím­tali úr fang­elsi á Spáni.

„Hún misnotaði mig kynferðislega og barði mig sundur og saman“
Bakkakot Kristín end­aði á að ræna syni sínum til að bjarga honum frá kvöl­inni á Bakka­koti Mynd: Skjáskot/RÚV

Guð­mundur Freyr Magn­ús­son er einn þeirra sem kom fram í Kveik-þætti gær­kvölds­ins á RÚV, en hann var tek­inn af móður sinni, Kristínu Guð­munds­dóttur árið 1988 og sendur á sveita­bæ­inn Bakkakot í fóstur og var þar til 1991, frá átta ára aldri til ell­efu ára ald­urs. Þar seg­ist hann hafa verið beittur grófu ofbeldi af hálfu Þóru Elísa­betu Bern­ód­us­dóttur, hús­ráð­anda á heim­il­inu.

Guð­mundur afplánar nú 17 ára fang­els­is­dóm í Murcia á Spáni fyrir að hafa orðið kærasta móður sinnar að bana í Tor­revi­eja árið 2020. Samkvæmt þætt­inum reyndi Kveikur í marga mán­uði að fá við­tal við hann, en hingað til hafa spænsk fang­els­is­yf­ir­völd ekki veitt heim­ild til slíks sam­tals.

Móðir Guð­mundar hefur þó fengið að tala við son sinn í stuttan tíma á hverjum degi. Í fjórum mynd­sím­tölum sem hún hljóð­rit­aði fyrir Kveik ræddi hún meðal ann­ars við hann um reynslu hans í Bakka­koti. Eft­ir­far­andi frá­sagnir Guð­mundar hér byggja því á sam­tölum hans við móður sína, sem fóru fram í gegnum mynd­sím­töl úr fang­els­inu.

„Þóra Elísabet Bern­ód­us­dóttir sem var yfir­mann­eskjan í Bakka­koti fór verst með mig. Hún mis­not­aði mig kyn­ferð­is­lega og barði mig sundur og saman,“ segir Guð­mundur við móður sína.

Hann segir jafn­framt að Þóra hafi kraf­ist þess að hann kall­aði sig mömmu og að neitun hefði haft í för með sér bar­smíðar. Að hans sögn tal­aði hún einnig niðr­andi um Kristínu, móður hans.

„Hún tal­aði um þig þannig að þú værir bara svona kerl­ing í pill­unum. Svona pillu­kerl­ing. Og að þú vildir ekk­ert með okkur hafa,“ segir Guð­mundur.

„Hún sagði að ég gæti gleymt því að ég færi aftur til mömmu. Ég yrði hjá henni þangað til ég yrði 16 ára.“

Sigurður, sem einnig var vistaður í Bakka­koti á sama tíma og Guð­mundur, segir að með­ferðin sem Guð­mundur hafi sætt hafi verið sér­stak­lega hörð.

„Hann fékk rosa­lega útreið þarna, sem aldrei fékk að heyr­ast. Og það rifj­að­ist mikið upp fyrir mér þegar Guð­mundur fékk dóm, eða framdi sinn glæp og fékk dóm fyrir það. Og hvernig fólk tal­aði um hann. Það særði mig svo mikið að sjá þetta og heyra hvernig fólk tal­aði. Því fólk veit ekki alla sög­una. Fólk veit ekki hvað hann og ég og fleiri upp­lifðum þarna. Það veit það ekki. Og það er ein­hver sem ber ábyrgð á því. Það er ein­hver sem ber ábyrgð á því hvað var gert við okkur þarna. Einhver sem hefur kom­ist upp með það,“ segir Sigurður, sem átti aug­sýni­lega erfitt með að rifja upp dvöl Guð­mundar í Bakka­koti.

Dvöl Guð­mundar í Bakka­koti lauk árið 1991, þegar hann var aðeins 11 ára gam­all, mun fyrr en áætlað hafði verið. Kristín segir að hún hafi þá sótt son sinn í skól­ann, ekið með hann á brott, án þess að horfa til baka.

Þannig að þú í raun tókst hann í burtu í leyf­is­leysi?

„Já ég rændi honum. Hvað átti ég að gera? Átti ég að láta hana eyði­leggja hann? Nei.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ