Sautján ára piltur lést í umferðarslysinu á Miklubraut i Reykjavík í gærkvöld, en hann var farþegi í bifreið sem var ekið austur Miklubraut þegar slysið varð, á móts við hús Hjálpræðishersins. Kemur þetta fram í tilkynningu frá lögreglu.
Ökumaðurinn, piltur á sama aldri, slasaðist töluvert og er líðan hans eftir atvikum.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.































Athugasemdir