Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stjórn Bifrastar boðar sáttaferli eftir niðurstöðu siðanefndar

„Við hörmum að málið hafi ratað í fjöl­miðla.“

Stjórn Bifrastar boðar sáttaferli eftir niðurstöðu siðanefndar
Háskól­inn á Bifröst Stjórn háskól­ans leitar nú sátta Mynd: bifrost.is

Stjórn Háskól­ans á Bifröst hefur sent starfs­fólki og nem­endum til­kynn­ingu í kjöl­far nið­ur­stöðu siða­nefndar skól­ans, þar sem kemur fram að þrír akademískir starfs­menn telj­ist ekki hafa brotið gegn siða­reglum. Til­kynn­ingin var send út eftir að siða­nefnd lauk umfjöllun sinni um málið, sem hefur verið til umtals í sam­fé­lag­inu und­an­farnar vikur.

Í til­kynn­ing­unni segir: „Siða­nefnd Háskól­ans á Bifröst hefur úrskurðað í málum þriggja akademískra starfs­manna og er nið­ur­staða nefnd­ar­innar að þeir telj­ast ekki brot­legir við siða­reglur. Siða­nefnd hefur einnig kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að rétt hafi verið að taka málið til efn­is­legrar umfjöll­unar.“

Þá er fjallað sér­stak­lega um hlut­verk stjórn­enda í mál­inu. „Hvað varðar hlut stjórn­enda þá kemst siða­nefndin að þeirri nið­ur­stöðu að ekk­ert í gögnum máls­ins bendi til þess að efa­semdir um fram­lag höf­unda hafi ein­kennst af hvat­vísi eða verið settar fram af ann­ar­legum ástæðum.“ Jafn­framt kemur fram að nefndin geri „ekki athuga­semdir við störf dr. Mar­grétar Jóns­dóttur Njarðvík, dr. Guðrúnar Johnsen og dr. Kaspers Kristen­sen.“ Að lokum þakkar stjórnin siða­nefnd fyrir störf hennar.

Í áfram­hald­andi skila­boðum til nem­enda og starfs­fólks segir stjórnin sig með­vit­aða um áhrif umræð­unnar síð­ustu vikna. „Við vitum að umræður síð­ustu vikna hafa haft mikil og djúp­stæð áhrif á starfs­fólk og nem­endur háskól­ans. Við hörmum að málið hafi ratað í fjöl­miðla.“

Stjórnin leggur áherslu á mik­il­vægi þess að hægt sé að leita til siða­nefndar án ótta.

„Stjórn­endur, starfs­fólk og nem­endur innan skól­ans og utan, þurfa að geta leitað til siða­nefndar eða verið þar til umfjöll­unar án ótta. Því telur stjórn rétt að hefja skoðun á ferlum og siða­reglum með það að leið­ar­ljósi að tryggja að ferlar séu skýrir, að skiln­ingur ríki um þá, og um leið að siða­nefnd hafi vinnu­frið.“

Í til­kynn­ing­unni er einnig minnt á lög­bundið hlut­verk siða­nefnda innan háskóla. „Starf­semi siða­nefnda er hluti af innra gæða­eft­ir­liti háskóla, sem kveðið er á um í lögum. Alkunna er að eft­ir­lit með gæðum náms, kennslu og rann­sókna er sam­ofið starf­semi háskóla, enda eiga nem­endur og sam­fé­lagið allt að geta treyst störfum háskól­anna.“

Þá segir stjórnin að það eitt að vísa máli til siða­nefndar jafn­gildi ekki árás. „Vísun máls til siða­nefndar getur ekki talist aðför, enda eru slík mál ekki gerð opin­ber af hálfu háskóla. Háskól­inn á Bifröst hefur enga heim­ild til að reka sið­ar­nefnd­ar­mál opin­ber­lega. Viðbrögð Háskól­ans á Bifröst við umfjöllun í fjöl­miðlum síð­ustu vikna verða því að skoð­ast í því ljósi.“

Að sögn stjórnar tekur nú við sátta­ferli. „Eins og fram hefur komið tekur nú við sátta­ferli sem er á for­ræði stjórnar. Við ætlum að taka það föstum tökum og gerum okkur grein fyrir hversu mik­il­vægt er að ná sáttum innan háskól­ans.“ Unnið sé að því að finna aðila til að leiða ferlið. „Við vinnum nú að því að finna aðila sem nýtur trausts til að leiða sátta­ferlið með þátt­töku allra starfs­manna. Stjórnin óskaði m.a. eftir til­lögum frá Félagi akademískra starfs­manna Bif­rastar.“

Í lok til­kynn­ing­ar­innar þakkar stjórnin starfs­fólki og nem­endum fyrir þol­in­mæði og still­ingu. „Stjórnin vill þakka ykkur, starfs­fólki og nem­endum, það æðru­leysi og þá bið­lund sem þið hafið sýnt í þessu máli. Við vinnum öll að sama mark­miði og nú þarf að end­ur­nýja traust innan háskól­ans.“

Til­kynn­ingin er und­ir­rituð af Ársæli Harð­ars­syni, stjórn­ar­for­manni Háskól­ans á Bifröst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi