Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Össur hæðist að færslu Jóns Péturs

„Er nema von að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn visni einsog vor­blóm í hreti?“

Össur hæðist að færslu Jóns Péturs
Össur Skarp­héð­ins­son Össur er ekki hrif­inn af færslu Jóns Péturs Mynd: Facebook

„Plast­tappa­kall­inn á þing­inu

Jón Pétur Ziemsen, hinn gagn­merki þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem frægur varð af endemum í mál­þóf­inu á Alþingi með maka­lausri ræðu um plast­tappa, er enn að gera garð­inn frægan.“

Þannig hefst Facebook-færsla Össurar Skarp­héð­ins­sonar, fyrr­ver­andi ráð­herra, þar sem hann gagn­rýnir harð­lega ummæli þing­manns Jón Pétur Zimsen og segir þau gefa til­efni til alvar­legrar umræðu um við­horf til kvenna í sam­fé­lag­inu.

Í færsl­unni, sem er löðr­andi í kald­hæðni, vísar Össur til nýlegrar umræðu um ummæli Zimsen á sam­fé­lags­miðl­inum X þar sem hann fjall­aði um geð­heilsu ungra kvenna og tengdi hana meðal ann­ars við aukna þátt­töku þeirra í háskóla­námi og stjórn­un­ar­stöðum.

Össur gagn­rýnir sér­stak­lega orða­lag Zimsen þar sem hann segir: „Við bælum ekki niður árþús­unda nátt­úru­val vegna skoð­ana fram­sæk­inna háskóla­manna af hug­vís­inda­deildum.“ Að mati Össurar má túlka þessi orð sem vís­bend­ingu um að þing­mað­ur­inn telji konur síður hæfar til stjórn­un­ar­starfa og að menntun þeirra kunni að hafa nei­kvæð áhrif á geð­heilsu þeirra.

„Varla er þó hægt að túlka þetta öðru vísi en svo að þing­mað­ur­inn sé þeirrar skoð­unar að konur séu erfða­fræði­lega miður hæfar til að gegna stjórn­un­ar­störfum og að menntun þeirra kunni að eiga sök á versn­andi geð­heilsu. Þetta eru sem­sagt skila­boð Sjálf­stæð­is­flokks­ins til ungra kvenna á fyrsta fjórð­ungi 21. ald­ar­innar.“

Hann segir að slíkur mál­flutn­ingur end­ur­spegli ákveðin skila­boð til ungra kvenna í sam­tím­anum og setur þau í sam­hengi við eldri við­horf til hlut­verks kvenna í sam­fé­lag­inu. „Rifjast þá upp ummæli þekkts leið­toga úr skyldum flokki sem af öðru til­efni lét svo um mælt að staða kon­unnar væri á bak­við elda­vél­ina!“ skrifar hann.

Í lok færsl­unnar gagn­rýnir Össur einnig stöðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins og telur að slíkur mál­flutn­ingur geti haft áhrif á fylgi flokks­ins. Þá nefnir hann einnig Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir í sam­hengi við póli­tíska stöðu og mögu­legar breyt­ingar á vett­vangi stjórn­mál­anna.

„Er nema von að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn visni einsog vor­blóm í hreti og að væn kona einsog Þórdís Kolbrún taki sprett­inn úr Sjálf­stæð­is­flokknum yfir í viðeisn­arfaðm Þor­gerðar Katrínar eftir lengstu umsókn um sendi­herra­stöðu sem sögur fara af?“

Afsökunarbeiðni Jóns Péturs

Jón Pétur baðst afsök­unar í morgun á færsl­unni, í ræðu­stól Alþingis, að því er fram kemur í frétt Vísis, þar sem hann sagði meðal ann­ars:

„Ég vil nota þetta tæki­færi til að bregð­ast við þeirri umræðu sem skap­að­ist í kjöl­far færslu sem ég birti á sam­fé­lags­miðlum síð­ast­liðið sunnu­dags­kvöld. Færslan fór öfugt ofan í marga og það með réttu. Mér þykir það mjög miður. Færslan og sá skiln­ingur sem lagður hefur verið í hana er ekki í sam­ræmi við það sem ég vil standa fyrir né það sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stendur fyrir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum