Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Heimur

Alanis Moris­sette kemur út sem pankyn­hneigð

Heimur

Fyrsti dagur Brands í Wandsworth-fang­els­inu sagður nið­ur­lægj­andi

Minning

Sæmi Rokk er fall­inn frá

Heimur

Ungur maður lést í umferð­ar­slysi á Kanarí­eyjum

Heimur

Þjóðerni fórn­ar­lamba skotárás­ar­innar í Kraká stað­fest

Fólk

Garðar var sendur til Kabúl eftir árás­ina í Kjúklinga­stræti

Innlent

Kristrún segir ekki þörf á fastri við­veru banda­rísks her­liðs á Íslandi

Innlent

Lang­tíma­spá bendir til þurr­ari vetrar á Íslandi

Heimur

Huckabee segir Satan stjórna and­stæð­ingum Íran­stríðs­ins

Segir Bandaríkin vera auðræði

„Ísland er í raun óvarið land í dag.“

Segir Bandaríkin vera auðræði
Haraldur Sig­urðs­son Haraldur telur brýnt að halda aðild­ar­við­ræðum við ESB áfram Mynd: Graduate School of Oceanography

Haraldur Sig­urðs­son, jarð- og jarð­efna­fræð­ingur, segir brýnt að Ísland haldi áfram aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið í ljósi breyttra alþjóða­að­stæðna.

Í Facebook-færslu fjallar hann um fyr­ir­hug­aða þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu og mik­il­vægi hennar:

„Það verður þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla á Íslandi hinn 29. ágúst um hvort halda skuli áfram aðild­ar­við­ræðum varð­andi inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið. Þetta er stórt mál fyrir Ísland, einkum nú, þegar tengsl við Banda­ríkin eru óviss og væg­ast sagt óáreið­an­leg.“

Hann bendir á breytta stöðu alþjóða­mála og segir að klofn­ingur hafi mynd­ast milli Evrópu og Banda­ríkj­anna:

„Nýlega hefur orðið klofn­ingur milli Banda­ríkj­anna og Evr­ópu­þjóða, og því kalla margir eftir sterk­ari sam­böndum meðal þjóða sem hafa tekið þátt í NATO hern­að­ar­banda­lag­inu.“

Haraldur, sem búið hefur í Banda­ríkj­unum í 53 ár, segir stöðu NATO hafa veikst og gagn­rýnir þró­un­ina í Banda­ríkj­unum:

„Það banda­lag stendur nú á mjög veikum fótum þar sem Trump og þar með Banda­ríkin hafa mikið dregið úr þátt­töku og jafn­vel lýst yfir þeirri skoðun að leggja niður NATO.“

Hann telur að Ísland geti ekki treyst á Banda­ríkin til fram­tíðar og að þau séu nú orðin að auð­ræði:

„Ameríka er því náungi sem þú þekkir, en af nýlegri reynslu og almennri fram­komu er þetta ekki náungi sem þú treystir. Ameríka er nú oligarchy.“

Þá segir hann Ísland standa varn­ar­laust án sterkra banda­laga:

„Ísland er í raun óvarið land í dag.“

Að mati Haraldar er því mik­il­vægt að horfa til Evrópu:

„Þá ber fyrst að kanna hvar eru vinir og frændur Íslend­inga. Uppruni Íslend­inga, forn og ný menn­ing­ar­tengsl eru tví­mæla­laust í Norður Evrópu.“

Hann dregur af þessu þá nið­ur­stöðu að halda þurfi áfram við­ræðum:

„Það er því mín skoðun að nú sé brýnt að halda áfram aðild­ar­við­ræðum varð­andi inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

5
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Landið

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Kolbrún Sverrisdóttir náði myndskeiði af dýrinu og hvetur fólk til að snerta það ekki ef það finnst.
Peningar

Fyr­ir­tæki sem eig­in­maður Kristrúnar á hlut í orðið gjald­þrota

Heimur

Þrjár háskóla­stúlkur sak­aðar um kyn­þátta­for­dóma eftir að upp­taka fór á flug á net­inu

Heimur

Gefur and­virði 300 ára gam­als ætt­ar­óð­als til barna á Gaza

Innlent

Mat­vöru­verð hækkar þrátt fyrir boð­aðar verð­lækk­anir

Pólitík

Pólitík

„Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

Björn Þorláksson segir málflutning fyrrverandi ráðherra geta skaðað bæði Morgunblaðið og Sjálfstæðisflokkinn.
  • Pólitík

    Segir fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs eðli­legar en hafnar sam­an­burð­inum við Pírata

  • Pólitík

    Jódís segir Sverri snúa út úr orðum sínum

  • Pólitík

    Daði Már segir svar um fundi án for­stjóra hafa verið óná­kvæmt

  • Pólitík

    Vill stofna sann­girn­is­bóta­sjóð vegna illrar með­ferðar á börnum í vistun

  • Pólitík

    „Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“