Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sakar Samfylkinguna um hræsni

„Sam­fylk­ing­ar­fólk náði ekki upp í nef sér af hneykslun“

Sakar Samfylkinguna um hræsni

Stefán Pálsson er tíð­rætt um sjö ára rík­is­stjórn­ar­sam­starf Vinstri­hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs (VG) yfir miðj­una, ásamt Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki sem mark­að­ist af stöð­ugum póli­tískum átökum á Facebook síðu sinni. Skýrasta dæmið um þá djúpu gjá sem á milli flokk­anna skildi var mála­flokkur útlend­inga- og alþjóð­legrar verndar. Björn Leví Gunn­ars­son, tölv­un­ar­fræð­ingur og fyrr­ver­andi þing­maður Pírata, og Jódís Skúla­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður VG, takast á um þessi mál undir pistli Stefáns.

„Í sjö ár var VG í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi yfir miðj­una með Sjálf­stæð­is­flokknum. Nánast allan tím­ann var helsta átaka­línan um útlend­inga­málin þar sem íhaldið heimt­aði í sífellu að þjar­mað yrði að hæl­is­leit­endum á allan hátt - VG stóð á móti og dró t.d. lín­una í sand­inn þegar kom að brott­far­arfang­elsi. Að lokum sprakk rík­is­stjórnin út af þessum málum.“

Á meðan á þessu stjórn­ar­sam­starfi stóð fengu VG mikla gagn­rýni. VG var sakað um að ganga erinda hægri manna og fórna hug­sjónum sínum í sam­starfi við ráð­herra á borð við Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur og Jón Gunn­ars­son. Og sér­stak­lega voru það full­trúar Sam­fylk­ing­ar­innar sem gagn­rýndu stefn­una harð­lega og lýstu yfir mik­illi hneykslun á mála­miðl­unum stjórn­ar­innar.

„Samfylkingarfólki náði ekki upp í nef sér af hneykslun“

„Allan þennan tíma dundu á okkur VG-liðum skammir frá frjáls­lyndu fólki af vinstri vængnum fyrir að vera gengin í björg með Áslaugu Örnu, Jóni Gunn­ars­syni o.fl. Við vorum tögguð í sífellu að Sam­fylk­ing­ar­fólki sem náði ekki upp í nef sér af hneykslun.

Ég átti svo sem aldrei von á að krat­arnir í rík­is­stjórn myndu standa við stóru orðin - en að þau myndu bein­línis stæra sig svona af því að stíga yfir öll rauðu strikin frá fyrri stjórn kom mér samt örlítið á óvart.

En það var í lagi að henda fólki út á götu þegar VG var í stjórn. Og í fang­elsi svo sem líka eins og fram­kvæmdin hefur verið síðan á síð­asta kjör­tíma­bili.“

Fyrrverandi þingmenn rífast

Björn Leví seg­ist viss um að hafa sett fótin niður og segir, „en jú, vissu­lega var lína dregin um börn í læstar brott­far­ar­búðir. En línan var langt í burtu frá þeim stað fyrir síð­asta kjör­tíma­bil.“

Þá svarar Jódís Skúla­dóttir, „nei það var ekki í lagi.“

Björn Leví heldur stað­fastur áfram og segir, „það var samt það sem gerð­ist. Eins og við sögðum ykkur að myndi ger­ast. Eins og kom alveg skýrt fram á fund­unum sem við héldum með ráðu­neyt­inu.

Fólki var hent út á götu án þess að það væri skýrt hvort ein­hver myndi taka við þeim. Þvert ofan í það sem þáver­andi ráð­herra full­yrti í ræðu­stól Alþingis.“

Jódís Skúla­dóttir ítrekar að hafa sagt nei við þessu ákvæði, „enda sagði ég „nei það var ekki í lagi.“ Án þess að ætla að afsaka þann gjörn­ing voru við­brögð sveita­fé­laga mér mikil von­brigði.“

Björn Leví seg­ist einmitt hafa skilið hvert hún hafi verið að fara með þetta og segir, „ég skildi það þannig. Og við­brögð sveit­ar­fé­laga voru nákvæm­lega eins og okkur var sagt að þau yrðu.

Á þeim for­sendum er ekki hægt að reyna að varpa ábyrgð­inni á sveit­ar­fé­lögin.“

Þá svarar Jódís Skúla­dóttir fyrir sig, „enda er ég ekki að reyna það. Ég var bara ein af mörgum sem túlk­uðu lög um félags­þjón­ustu sveit­ar­fé­laga þannig að þeim bæri skylda til að veita öllum neyð­ar­að­stoð og félags­lega aðstoð sem væru staddir í mjög erf­iðri stöðu. Ég er reyndar enn á þeirri skoðun.

Samkvæmt jafn­ræð­is­reglu stjórn­ar­skrár og ekki síður rétti fólks til félags­legrar aðstoðar við ákveðnar aðstæður, plús Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu, og alþjóð­legum skuld­bind­ingum Íslands um mann­úð­lega með­ferð, er óhugs­andi að skilja fólk eftir alger­lega hús­næð­is­laust og tekju­laust án raun­hæfs mögu­leika á að sjá sér far­borða. Rök þáver­andi ráð­herra voru hins vegar að á þessum tíma­punkti hefu­rein­stak­ling­ur­inn fengið fulla máls­með­ferð, fengið end­an­lega synjun, hafi laga­lega skyldu til að yfir­gefa landið, og að rík­inu sé heim­ilt að tak­marka rétt­indi eftir að vernd­ar­ferl­inu lýkur. Miðað við fanga­búðir Obbu finnst mér þetta skárri kostur svo lengi sem sveit­ar­fé­lögin virði stjórn­ar­skrá og skyldur sínar sam­kvæmt öðrum lögum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum