Kristrún Frostadóttir
„Það verður að virða fullveldi og alþjóðalög“
Kristrún Frostadóttir
Minning

Gunnar Þór­ar­ins­son fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi lát­inn

Heimur

Nýjar nið­ur­stöður varpa ljósi á orsakir millj­óna krabba­meinstil­fella

Fólk

Hvenær verður daður að fram­hjá­haldi?

Innlent

Hekla inn­kallar til­tekna Audi-, Volkswagen- og Skoda-bíla

Heimur

Verkfall á Kanarí­eyjum getur raskað ferðum til og frá flug­völlum

Heimur

Ísra­elskir ferða­menn gagn­rýndir eftir að leið­sögu­manni var ýtt í sjó­inn

Peningar

Segir hluta­fjár­út­boð Bláa lóns­ins ótíma­bært vegna eldsum­brota

Innlent

Varað við neyslu á wasabi-hrískexi

Heimur

Katta­eig­endur sér­stak­lega varaðir við hættu­legri fuglaflensu

Heimur

David Walliams sak­aður um að hafa tælt ung­lings­stúlkur

Ræðst harkalega á nýja hreyfingu gegn ESB-viðræðum

„Hægri aft­ur­halds­öflin á Íslandi og íslenzka vinstrið hafa aftur náð saman“

Ólafur Ragnar Grímsson
Ólafur Ragnar Grímsson Sveinn Andri gagn­rýnir Ólaf Ragnar harð­lega Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Lög­mað­ur­inn Sveinn Andri Sveins­son gagn­rýnir harð­lega nýja hreyf­ingu sem hefur verið stofnuð gegn áfram­hald­andi samn­inga­við­ræðum Íslands við Evr­ópu­sam­bandið. Í færslu á Facebook sakar hann bæði hægri- og vinstri­menn um að reyna að hafa áhrif á þjóð­ina og koma í veg fyrir að hún fái sjálf að taka afstöðu til hugs­an­legs aðild­ar­samn­ings.

Í færsl­unni segir Sveinn Andri:

„Hægri aft­ur­halds­öflin á Íslandi og íslenzka vinstrið hafa aftur náð saman. Fyrst stóðu þau að verstu rík­is­stjórn Íslands­sög­unnar. Því næst reyndu þau að skikka kjós­endur til þess að kjósa Katrínu Jak­obs­dóttur sem for­seta. Íslend­ingar hunzuðu þau fyr­ir­mæli.“

Hann heldur því fram að sömu aðilar standi nú að nýrri and­stöðu við Evr­ópu­sam­bands­við­ræður.

„Nú reyna þessir sömu aðilar, aft­ur­haldið, elítan, fjár­magns- og kvóta­eig­endur, ásamt nyt­sömum vinstri­mönnum og verka­lýðs­rek­endum að segja þjóð­inni fyrir verkum. „Okkur einum er treystandi”, segja þau.“

Sveinn Andri gagn­rýnir einnig að Ólafur Ragnar Grímsson hafi verið feng­inn til liðs við mál­stað­inn.

„Dregin er fram á sjón­ar­sviðið klapp­stýra útrás­ar­vík­ing­anna sem settu Ísland á haus­inn, Ólafur Ragnar Grímsson, sem barð­ist hart gegn EES á sínum tíma og taldi aðild að ESB betri kost.“

Að lokum segir hann að Íslend­ingar þurfi ekki á leið­sögn valda­stéttar að halda þegar komi að ákvörðun um hugs­an­legan aðild­ar­samn­ing við Evr­ópu­sam­bandið.

„Hvorki í for­seta­kosn­ing­unum 2024 né þann 29. ágúst nk. þarf íslenzkur almenn­ingur á vel­laun­aðri yfir­stétt­ar­el­ítu að halda til að hafa vit fyrir sér. Íslend­ingum er treystandi til að kjósa um samn­ing sem kann að nást við ESB.“

Færsl­unni lýkur hann með skýrri afstöðu sinni:

„Áfram Ísland! Tökum upp­lýsta ákvörðun og segjum JÁ víð að sjá samn­ing við ESB.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hundruð skóla rýmdir vegna sprengju­hót­ana í Skotlandi og á Norður-Írlandi

Skilaboðin minna á hótun frá síðasta mánuði sem reyndist gabb. Svipaðar hótanir bárust einnig skólum á Ítalíu, en ekki er vitað hvort málin tengjast.
Minning

„Og nú er hann flog­inn á braut í morg­un­birt­unni, dáinn, horf­inn, harma­fregn“

Innlent

Þarf að greiða 834 þús­und eftir tap í máli gegn gisti­stað

Heimur

Bretland hvatt til að hraða und­ir­bún­ingi fyrir hugs­an­legt stríð

Heimur

Gam­an­leik­kona upp­lýsti Guardian um ásak­anir á hendur David Walliams

Pólitík

Pólitík

„Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

Björn Þorláksson segir málflutning fyrrverandi ráðherra geta skaðað bæði Morgunblaðið og Sjálfstæðisflokkinn.
  • Pólitík

    Segir fyr­ir­spurnir Guðlaugs Þórs eðli­legar en hafnar sam­an­burð­inum við Pírata

  • Pólitík

    Jódís segir Sverri snúa út úr orðum sínum

  • Pólitík

    Daði Már segir svar um fundi án for­stjóra hafa verið óná­kvæmt

  • Pólitík

    Vill stofna sann­girn­is­bóta­sjóð vegna illrar með­ferðar á börnum í vistun

  • Pólitík

    „Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“