Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vel gengur að fanga minkana í Mosfellsdal

For­eldrar beðnir að hafa börnin ekki úti í vögnum

Vel gengur að fanga minkana í Mosfellsdal
Björg­un­ar­sveit­ar­menn að störfum Vel gengur að fanga mink­ana sem sluppu úr búinu Mynd: Mosfellsbaer.is

Aðgerðir vegna minkanna sem sluppu úr minka­búi í Mos­fells­dal hafa gengið vel síð­asta sól­ar­hring­inn, að sögn yfir­valda Mos­fells­bæjar. Veiði­menn á vegum sveit­ar­fé­lags­ins hafa fangað fleiri minka og bendir margt til þess að dýrin hafi ekki farið langt frá búinu.

Í til­kynn­ingu Mos­fells­bæjar kemur fram að minkar hafi ein­göngu veiðst í gildrum sem stað­settar eru innan girð­ingar bús­ins en eng­inn hafi enn farið í gildrur utan hennar. Það sé vís­bend­ing um að flestir minkanna haldi sig enn í nágrenni bús­ins.

Þá segir að ábend­ingar frá íbúum Mos­fells­bæjar um minka hafi verið mjög fáar, sem þyki góðs viti. Nokkrar til­kynn­ingar hafi borist frá Norð­linga­holti, Graf­ar­holti og Graf­ar­vogi en talið sé ólík­legt að þeir minkar teng­ist atvik­inu í Mos­fells­dal.

Björg­un­ar­sveitin sinnti veg­lok­unum fram yfir mið­nætti í gær og hóf aftur gæslu klukkan átta í morgun. Minka­veiði­menn á vegum Mos­fells­bæjar verða áfram við störf næstu daga og vikur. Sveit­ar­fé­lagið bendir á að þeir séu auð­þekkj­an­legir í gulum eða app­el­sínu­gulum vestum merktum Mos­fellsbæ. Íbúar sem verða varir við ómerkta veiði­menn eru beðnir um að til­kynna það til bæj­ar­ins.

Mos­fells­bær hyggst halda gildrum utan girð­ingar bús­ins næstu daga og vikur og verða þær yfir­farnar reglu­lega til að tryggja vel­ferð dýr­anna.

Íbúar í næsta nágrenni við minka­búið eru jafn­framt beðnir um að láta börn ekki sofa utandyra í barna­vögnum næstu daga. Þeir sem búa fjær eru hvattir til að setja net yfir vagn­ana.

Einnig er mælt með því að íbúar í Mos­fells­dal haldi köttum sínum inni fram yfir helgi, fari með hunda í tauma­göngu og hafi alí­fugla innan girð­ingar.

Mos­fells­bær segir að eng­inn minkur hafi enn verið fang­aður í þétt­býli bæj­ar­ins og því sé ekki talin ástæða til að gera sér­stakar ráð­staf­anir vegna gælu­dýra í öðrum hverfum sveit­ar­fé­lags­ins. Gælu­dýra­eig­endur eru þó hvattir til að gæta fyllsta öryggis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina