Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sannleikurinn á bak við „ódýra“ danska lánið

Sagðist borga 80 þús­und af 90 millj­óna láni

Sannleikurinn á bak við „ódýra“ danska lánið
Halldór Jörgen Olesen Full­yrð­ingar um danskt fast­eigna­lán stand­ast ekki skoðun sam­kvæmt Hirti Mynd: Skjáskot

Upp­lýs­ingar um danskt fast­eigna­lán í mynd­skeiði sem Halldór Jörgen Olesen birti nýverið hafa vakið tals­verða athygli en lánið reynd­ist vera tíma­bundið neyð­ar­úr­ræði, sam­kvæmt heim­ildum Hjartar J. Guð­munds­sonar, sagn­fræð­ings og alþjóða­stjórn­mála­fræð­ings, inni á vef­síð­unni stjornmal.is.

Í mynd­band­inu full­yrðir Halldór að hann hafi greitt 80 þús­und íslenskar krónur á mán­uði af 90 millj­óna króna fast­eigna­láni sem hann tók í Danmörku fyrir fimm árum.

Hjörtur gagn­rýnir mynd­bandið og seg­ist hafa tekið fljót­lega eftir því að miðað við þá upp­hæð tæki rúm 93 ár að greiða upp höf­uð­stól láns­ins, að vöxtum und­an­skildum. Hjörtur segir að Halldór hafi varist upp­haf­lega sagna og sagt Íslend­inga almennt ekki skilja fjöl­breyti­leika lána­fram­boðs í Evr­ópu­sam­band­inu vegna slæmra kjara á inn­lendum mark­aði.

Fréttin hefur verið upp­færð þar sem bætt var við svari Halldórs við gagn­rýni Hjartar.

Halldór bregst við gagnrýni Hjartar

Halldór hefur nú svarað gagn­rýni Hjartar.

„Þetta er rangt. Afdrátt­ar­laus lán (afdrags­fri lån) eru staðlað lána­form í Danmörku sem hefur verið í boði í ára­tugi — ekki neyð­ar­úr­ræði. Um 60% danskra hús­eig­enda nota þau. Neikvæðu vext­irnir (-0,04%) end­ur­spegl­uðu mark­aðs­að­stæður í Evrópu, ekki neina neyð­ar­að­gerð.

Kjarninn er þessi: Ég greiði 4.040 DKK/mán (~86.000 ISK) af 103 millj­óna króna láni. Sam­bæri­legt lán á Íslandi kostar ~850.000 ISK/mán. Tífalt meira. Hvort sem þetta er „neyð­ar­úr­ræði” eða ekki — Íslend­ingar hafa aldrei fengið aðgang að slíkum kjörum. Og það er vanda­málið sem eng­inn vill ræða.

Og nei — ég „við­ur­kenndi” ekk­ert. Ég útskýrði hvernig lána­kerfið virkar. Það er munur.“

Halldór gagn­rýnir að ekki hafi verið kafað dýpra við heim­ilda­vinn­una.

„“Félagi minn taldi víst að skýr­ingin væri sú að Halldór hefði tekið sér­stakt lán sem í boði var í Danmörku á sínum tíma og var hugsað sem ákveðið neyð­ar­úr­ræði vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins sem ein­ungis þyrfti að greiða vexti af en ekk­ert inn á höf­uð­stól­inn fyrstu árin og með nei­kvæðum vöxtum á köflum.” Þar stendur að heim­ild Hjartar er “félagi minn”. Það var sem­sagt ekki farið dýpra en að styðj­ast við félaga eða var það bara skáld­skapur hjá Hirti?“

Halldór lætur fylgja með skjá­skot af lán­inu:

Viðurkenndi að um afborganalaust neyðarlán væri að ræða

Í sam­tali við Hjört inni á vef­síð­unni Stjórn­mál.is við­ur­kenndi Halldór síðar að umræddar tölur gæfu ekki rétta mynd af dæmi­gerðum dönskum fast­eigna­lánum. Lánið var tekið árið 2021 á meðan kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn stóð yfir, með 0,18% nei­kvæðum vöxtum.

Um var að ræða sér­stakt neyð­ar­úr­ræði þar sem lán­tak­endum bauðst að greiða ein­göngu lága vexti en ekk­ert inn á höf­uð­stól­inn fyrstu árin. Slík lán fela í sér að mán­að­ar­legar afborg­anir marg­fald­ast og hækka veru­lega þegar hinu afborg­ana­lausa tíma­bili lýkur, sem gerir þau sam­bæri­leg við svokölluð kúlu­lán.

Aðspurður um hvort rétt hefði verið að upp­lýsa fólk strax um rétt eðli láns­ins svar­aði Halldór því til að hann hygð­ist skýra málið nánar síðar en ætl­aði að draga það á lang­inn til þess að valda pirr­ingi hjá þeim sem gagn­rýndu full­yrð­ing­arnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi