Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Þórður Snær hvetur Íslendinga til að hlusta á Bjarna Ben

„Ekki vera hrædd. Verið spennt“

Þórður Snær Júlíusson
Þórður Snær Júl­í­us­son Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þórður Snær Júl­í­us­son, fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Sam­fylk­ing­ar­innar, hvetur lands­menn til að sam­þykkja næsta skref í Evr­ópu­málum Íslands í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu 29. ágúst. Í grein sinni á Vísi rifjar hann meðal ann­ars upp fyrri afstöðu for­ystu­manna Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks til aðild­ar­við­ræðna við Evr­ópu­sam­bandið.

Þórður vísar sér­stak­lega til ummæla Bjarna Bene­dikts­sonar frá árinu 2009, þegar Bjarni sagði engan gjald­mið­ils­kost jafn sterkan og evr­una með ESB-aðild og lagði áherslu á að þjóðin ætti að fá að taka afstöðu til máls­ins.

Þá rifjar Þórður upp að bæði Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur hafi á sínum tíma lagt ríka áherslu á að þjóðin ætti síð­asta orðið um fram­hald aðild­ar­við­ræðna. Hann nefnir einnig fyrri ummæli Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar um að for­dæmi væru fyrir sér­lausnum í aðild­ar­samn­ingum ríkja við Evr­ópu­sam­bandið.

„Og ég er sam­mála Guðrúnu Haf­steins­dóttur anno 2014 um að ég „treysti þjóð­inni alger­lega í þessu máli“, en þar af leið­andi að öllu leyti ósam­mála Guðrúnu Haf­steins­dóttur árið 2026 sem er komin á algjör­lega gagn­stæða skoðun,“ skrifar Þórður.

Þórður segir stöðu Íslands gagn­vart Evr­ópu­sam­band­inu hafa styrkst veru­lega frá því að aðild­ar­við­ræður fóru síð­ast fram. Efna­hags­staðan sé sterk­ari, alþjóð­leg þróun hafi aukið mik­il­vægi Íslands og íslensk fyr­ir­tæki séu betur í stakk búin til að nýta tæki­færi sem aðild gæti skapað.

Hann leggur áherslu á að Ísland muni krefj­ast sér­lausna vegna sjáv­ar­út­vegs, land­bún­aðar og yfir­ráða yfir auð­lindum sínum. Mark­miðið eigi að vera að fá fram hvað Íslandi standi raun­veru­lega til boða og leggja nið­ur­stöð­una síðan í hendur þjóð­ar­innar.

„Ekki vera hrædd. Verið spennt,“ skrifar Þórður og segir fyrsta skrefið vera að segja já í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni 29. ágúst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

„Þú getur treyst barninu sem þú varst. Jesús gerir það“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

„Ég á betra skilið, allir innflytjendur eiga betra skilið og allir Íslendingar eiga betra skilið en þetta.“
  • Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

  • Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

  • Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

  • „Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“