Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hætta að auglýsa á samfélagsmiðlum

„Ekki sjálf­krafa fyrsta val að kaupa birt­ingar á sam­fé­lags­miðlum“

Hætta að auglýsa á samfélagsmiðlum
Ráðherra hvetur stofn­anir til að snið­ganga tæknirisa og kaupa frekar áskriftir Mynd: Unsplash/Robin Worrall

Stjórn­ar­ráð Íslands hefur tekið ákvörðun um að beina aug­lýs­inga­kaupum sínum skipu­lega til inn­lendra fjöl­miðla í stað erlendra tæknirisa og sam­fé­lags­miðla. Breyt­ingin er liður í aðgerða­á­ætlun stjórn­valda í mál­efnum fjöl­miðla sem miðar að því að styrkja rekstr­ar­grund­völl rit­stýrðra fjöl­miðla á Íslandi.

Menn­ingar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráð­herra kynnti nýja verk­lagið fyrir rík­is­stjórn­inni á síð­asta ári og hafa öll ráðu­neyti nú til­einkað sér breyt­ing­arnar. Þá hefur ráðu­neytið sent erindi til und­ir­stofn­ana sinna þar sem þær eru hvattar til þess að fylgja sama for­dæmi. Þótt um til­mæli sé að ræða er lögð áhersla á að aug­lýs­inga­kaup á öðrum vett­vangi en í fjöl­miðlum séu ekki í sam­ræmi við stefnu stjórn­valda. Stofn­anir sem kjósa að aug­lýsa ann­ars staðar munu þurfa að sýna fram á skýran rök­stuðn­ing.

Áskoranir til opinberra stofnana

Auk breyttra aug­lýs­inga­kaupa hvetur ráðu­neytið opin­berar stofn­anir til þess að kaupa áskriftir að inn­lendum fjöl­miðlum. Með því megi auka aðgang starfs­fólks að vand­aðri frétta­flutn­ingi og sam­fé­lags­um­ræðu, auk þess sem það stuðli að sjálf­bærum rekstri fjöl­miðla í land­inu.

Logi Ein­ars­son, menn­ingar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráð­herra, segir mik­il­vægt að stofn­anir staldri við og velti fyrir sér hvar fjár­munum sé ráð­stafað.

„Það skiptir máli að það sé ekki sjálf­krafa fyrsta val að kaupa birt­ingar á sam­fé­lags­miðlum. Auðvitað geta komið upp til­vik þar sem ekki næst með góðu móti til ákveð­ins mark­hóps með birt­ingum í fjöl­miðlum en það er sann­ar­lega ekki alltaf,“ segir Logi. Hann hvetur kaup­endur aug­lýs­inga til að huga að upp­runa þeirra miðla sem verslað er við. „Er fréttin frá rit­stýrðum frétta­miðli og unnin af frétta­manni? Eða er fréttin af sam­fé­lags­miðli með óskýran upp­runa og án rit­stjórnar?“

Víðtækar aðgerðir í bígerð

Stefnu­breyt­ingin í aug­lýs­inga­málum er aðeins einn liður í umfangs­mik­illi aðgerða­á­ætlun stjórn­valda, sem unnin var í sam­ráði við fjöl­miðla lands­ins. Góður gangur er sagður í inn­leið­ingu hennar.

Alþingi sam­þykkti frum­varp um stuðn­ing við einka­rekna fjöl­miðla á liðnu vori og nýverið voru birtar reglur í Stjórn­ar­tíð­indum um tvo nýja sjóði: Tal­setn­ingar- og text­un­ar­sjóð fjöl­miðla­veitna ásamt nýjum nýsköp­unar- og þró­un­ar­sjóði fjöl­miðla. Stefnt er að því að úthluta úr báðum sjóðum fyrir árs­lok. Þá er gert ráð fyrir að frum­vörp um breyt­ingar á lögum um Rík­is­út­varpið og hækkun refsiramma höf­unda­laga verði lögð fram á Alþingi á nýju haust­þingi.

Í til­kynn­ingu stjórn­valda segir að mark­mið aðgerð­anna sé að verja sjálf­stæða og gagn­rýna blaða­mennsku, sem veiti stjórn­völdum og atvinnu­lífi nauð­syn­legt aðhald. Sterkir fjöl­miðlar séu ein helsta for­senda lýð­ræðis og varð­veislu íslenskrar tungu, og því hvíli rík ábyrgð á herðum rík­is­ins að styðja við bakið á þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi