Kristrún Frostadóttir
„Það verður að virða fullveldi og alþjóðalög“
Kristrún Frostadóttir
Minning

Gunnar Þór­ar­ins­son fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi lát­inn

Heimur

Nýjar nið­ur­stöður varpa ljósi á orsakir millj­óna krabba­meinstil­fella

Fólk

Hvenær verður daður að fram­hjá­haldi?

Innlent

Hekla inn­kallar til­tekna Audi-, Volkswagen- og Skoda-bíla

Heimur

Verkfall á Kanarí­eyjum getur raskað ferðum til og frá flug­völlum

Heimur

Ísra­elskir ferða­menn gagn­rýndir eftir að leið­sögu­manni var ýtt í sjó­inn

Peningar

Segir hluta­fjár­út­boð Bláa lóns­ins ótíma­bært vegna eldsum­brota

Innlent

Varað við neyslu á wasabi-hrískexi

Heimur

Katta­eig­endur sér­stak­lega varaðir við hættu­legri fuglaflensu

Heimur

Kim Kar­dashian neyð­ist til að end­ur­greiða við­skipta­vinum

Seðlabankinn þegir um mögulega rannsókn á leka til Morgunblaðsins

Reglu­vörður sagði ólög­mæta miðlun upp­lýs­inga væri að ræða

Morgunblaðshúsið í Árbænum
Morg­un­blaðs­húsið í Árbænum Mynd: Víkingur

Seðla­banki Íslands vill ekki upp­lýsa hvort leki á árs­reikn­ingi Reykja­vík­ur­borgar í lok apríl sé til skoð­unar eða rann­sóknar hjá fjár­mála­eft­ir­liti bank­ans. Málið snýr að mögu­legum mark­aðs­svikum vegna leka á inn­herj­a­upp­lýs­ingum til Morg­un­blaðs­ins frá borg­ar­full­trúum eða starfs­mönnum borg­ar­innar eftir reglu­verður borg­ar­innar til­kynnti málið til Seðla­bank­ans.

Mannlíf leit­aði upp­lýs­inga hjá Seðla­bank­anum um stöðu máls­ins. Í svari bank­ans kemur fram að ábend­ingar sem ber­ast fjár­mála­eft­ir­lit­inu séu metnar og kannað hvort til­efni sé til frek­ari athug­unar. Vegna ríkrar þagn­ar­skyldu geti bank­inn hins vegar ekki upp­lýst hvort ein­stök mál séu til skoð­unar eða rann­sóknar né tjáð sig efn­is­lega um þau.

Seðla­bank­inn bendir á að ef mál er tekið til athug­unar og nið­ur­staðan verður sú að brot hafi átt sér stað séu nið­ur­stöður að jafn­aði birtar opin­ber­lega í formi gagn­sæ­istil­kynn­ingar.

Reykja­vík­ur­borg og innri end­ur­skoðun borg­ar­innar hafa ekki svarað fyr­ir­spurnum Mannlífs um stöðu máls­ins.

Á fundi borg­ar­ráðs í maí kom fram að borg­ar­full­trúar hefðu heim­ilað reglu­verði Reykja­vík­ur­borgar fullan aðgang að tölvu­sam­skiptum sínum vegna rann­sóknar á lek­anum. Þar kom jafn­framt fram að árs­reikn­ing­ur­inn hefði verið bund­inn lög­mæltri trún­aðar- og þagn­ar­skyldu áður en hann var birtur og upp­lýs­ing­arnar teld­ust til inn­herj­a­upp­lýs­inga.

Heim­ildin fjall­aði um málið í maí. Þar kom fram að það mætti rekja til fréttar sem birt­ist á mbl.is 27. apríl og inni­hélt helstu upp­lýs­ingar og lyk­il­tölur árs­reikn­ings­ins.

Samkvæmt bréfi reglu­varðar hafði verið ákveðið að birta árs­reikn­ing­inn í Kauphöll klukkan 13.30. Vit­neskja um nákvæma tíma­setn­ingu birt­ing­ar­innar hefði aðeins verið hjá þeim sem sátu fund borg­ar­ráðs auk reglu­varðar.

Reglu­vörður sagði liggja fyrir að um ólög­mæta miðlun upp­lýs­inga til Morg­un­blaðs­ins hefði verið að ræða, enda hefði frétt mbl.is, þar sem þegar hafði verið unnið úr árs­reikn­ingnum, birst á sömu mín­útu og reikn­ing­ur­inn var birtur í Kauphöll.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Minning

„Og nú er hann flog­inn á braut í morg­un­birt­unni, dáinn, horf­inn, harma­fregn“

Vinir minnast Marðar Árnasonar með hlýju
Innlent

Þarf að greiða 834 þús­und eftir tap í máli gegn gisti­stað

Heimur

Bretland hvatt til að hraða und­ir­bún­ingi fyrir hugs­an­legt stríð

Heimur

Gam­an­leik­kona upp­lýsti Guardian um ásak­anir á hendur David Walliams

Heimur

Net­anyahu sak­aður um að nota kyn­þátta­hatur sem síð­asta tromp í valda­bar­átt­unn

Innlent

Innlent

Inn­köllun vegna eld­hættu í þremur teg­undum Volkswagen-raf­bíla

Eigendur hvattir til að hlaða bifreiðar sínar ekki umfram 80 prósent.
Innlent

Lang­tíma­spá bendir til þurr­ari vetrar á Íslandi

Innlent

Öskurapi í Vest­ur­bænum fannst ekki þrátt fyrir leit

Innlent

Krefjast opin­berrar afsök­un­ar­beiðni frá Morg­un­blað­inu

Innlent

Sonurinn áfram í gæslu­varð­haldi vegna mann­dráps í Breið­holti

Innlent

Mat­vöru­verð hækkar þrátt fyrir boð­aðar verð­lækk­anir