Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum

„Svona var aðkoman fyrir utan bíl­skúr­inn minn við Flyðru­granda í dag“

Rasískir skemmdarvargar herja á bíla í Vesturbænum
Vest­ur­bær Reykja­víkur Mynd: Reykjavíkurborg

Fjöldi íbúa í Vesturbæ Reykja­víkur seg­ist hafa orðið fyrir eigna­spjöllum á bílum sínum á und­an­förnum sól­ar­hringum. Bílar hafa meðal ann­ars verið rispaðir við Flyðru­granda, Keilu­granda, Hagamel og Kapla­skjóls­veg og hafa nokkrir íbúar birt ljós­myndir af skemmd­unum.

Kristján Ingi Ein­ars­son vakti athygli á mál­inu í hverf­is­hópi Vest­ur­bæjar á Facebook eftir að hafa komið að skemmdum fyrir utan bíl­skúr sinn við Flyðru­granda en haka­kross hafðu verið skor­inn í bíl Krist­jáns.

„Kæru Vest­ur­bæ­ingar. Svona var aðkoman fyrir utan bíl­skúr­inn minn við Flyðru­granda í dag. Langaði að kanna hvort ein­hver hafi orðið vitni að þessu eða hvort fleiri hafi lent í svip­uðu?“ skrif­aði Kristján.

Við­brögðin létu ekki á sér standa og lýstu fjöl­margir íbúar sam­bæri­legum atvikum.

„Það var líka verið að rispa bíl hjá okkur á Keilu­grand­anum í gær,“ skrif­aði Kristín Helga Karls­dóttir.

Theodóra Krist­jáns­dóttir sagð­ist einnig hafa orðið fyrir barð­inu á skemmd­ar­vörgum.

„Okkar var risp­aður í nótt á Hagamel,“ skrif­aði hún og birti mynd af skemmd­unum. Hún benti jafn­framt öðrum íbúum á að hægt væri að til­kynna eigna­spjöll til lög­reglu í gegnum Ísland.is.

Elín Jóna Gunn­ars­dóttir lýsti sam­bæri­legu atviki við Keilu­granda.

„Húddið á bílnum mínum var rispað í nótt. Ég er á Keilu­granda,“ skrif­aði hún og birti mynd.

Auður Ásta Bald­urs­dóttir sagði sömu sögu: „Sama hjá okkur, stór rispa aftan á bílnum okkar á Keilu­granda.“

Fleiri götur virð­ast hafa orðið fyrir barð­inu á skemmd­ar­vörgum. Atli Jónasson skrif­aði: „Lenti líka í þessu á Kapla­skjóls­vegi. Fræðum börnin.“

Ólöf Rut Stef­áns­dóttir birti jafn­framt mynd af skemmdum á bíl sínum og sagði þær hafa orðið fyrir utan Krónuna á Granda. Ester Bergmann birti einnig mynd af skemmdum á bíl og sagði atvikið hafa átt sér stað fyrir utan Fiski­slóð.

Marsibil P. Benja­míns­dóttir sagði eina bif­reið hafa verið skemmda við Keilu­granda 1 til 3 og velti því upp hvort sami ein­stak­lingur gæti staðið að baki fleiri til­vikum.

„Ein bif­reið skemmd við Keilu­granda 1-3. Hugs­an­lega sami aðili,“ skrif­aði hún.

Fullyrða að um TikTok trend sé að ræða

Nokkrir þátt­tak­endur í umræð­unni töldu að skemmd­irnar kynnu að tengj­ast hegðun ung­menna og jafn­vel svo­kall­aðri TikTok áskorun. Engar stað­festar upp­lýs­ingar liggja þó fyrir um að atvikin teng­ist TikTok eða að börn eða ung­lingar standi að baki þeim.

„Lentum í þessu líka - húddið allt rispað á Hagamel. Frétti í dag að þetta er eitt­hvað trend á TikTok, krakkar að rispa bíla til skemmt­unar og setja mynd­bönd af því inn. Góð ástæða til þess að tala við börnin sín um skað­semi þess,“ skrif­aði einn í Vest­ur­bænum.

Stella Sæmunds­dóttir tók í sama streng og taldi mögu­legt að um TikTok áskorun væri að ræða. Sú full­yrð­ing hefur ekki verið stað­fest.

Svava S. Steinars sagði sam­bæri­leg atvik jafn­framt hafa átt sér stað utan Vest­ur­bæjar.

„Þetta er líka að ger­ast í Hlíða­hverfi. Ung­lingar hafa náðst á mynda­vélum,“ skrif­aði hún.

Hjalti Sig­urð­ar­son tók undir það og sagði: „Náðu myndum í Hlíðunum af ger­and­anum.“

Gyða Jóns­dóttir greindi einnig frá skemmdum í Hlíðunum og sagði að Tesla bif­reið hefði verið rispuð í Stór­holti fyrr í vik­unni.

Hakakrossar vekja óhug

Umræðan sner­ist ekki ein­göngu um rispur á lakki. Ragn­hildur Hólm­geirs­dóttir sagði að haka­krossar hefðu sést í hverf­inu.

„Það lenti ein­hver í því í vor að það voru teikn­aðir haka­krossar í rykið á bíl­rúðu og ég hef tekið eftir haka­krossum á ljósastaurum í hverf­inu. Virki­lega ógeðs­legt,“ skrif­aði hún.

Loai Sal Eh sagð­ist hafa lent í sam­bæri­legu atviki fyrir tveimur mán­uðum og að tákn sem líkt­ist haka­krossi hefði verið teiknað á bíl hans.

Hrönn Krist­ins­dóttir sagði skemmd­irnar óþol­andi en bætti við: „Rispur alger­lega óþol­andi, en haka­krossar frekar óhugn­an­legt.“

Ingvar Jónsson lýsti ann­ars konar atviki og sagð­ist hafa orðið fyrir því að skotið væri á bif­reið hans með paint­ball byssu þegar hann ók um Vest­ur­bæ­inn.

„Það var skotið á bíl­inn minn með paint­ball byssu í dag þegar ég keyrði í gegnum gengja­svæðið ykkar í dag,“ skrif­aði hann og hvatti for­eldra til að ræða við börn sín.

Fjöldi íbúa lýsti áhyggjum af stöð­unni og kall­aði eftir við­brögðum. Alfdís Axels­dóttir velti því meðal ann­ars upp hvort tíma­bært væri að boða til íbúa­fundar.

„Er ekki kom­inn tími til að hafa íbúa­fund og ræða þetta af alvöru?“ spurði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi