Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla

„Hér eru börn á ferð á hverjum degi og öryggi þeirra verður að vera í fyr­ir­rúmi“

Þorvaldur Davíð varar við stórhættu við Laugarnesskóla
Þor­valdur Davíð Krist­jáns­son Er borg­ar­full­trúi Mynd: JOHN MACDOUGALL / AFP

Miklar áhyggjur hafa skap­ast meðal íbúa í Laug­ar­nes­hverfi vegna auk­innar umferðar og hraðakst­urs í nágrenni Laug­ar­nes­skóla eftir að fram­kvæmdir hófust á Reykja­vegi. Íbúar lýsa meðal ann­ars atvikum þar sem nærri hafi verið ekið á gang­andi veg­far­endur og kalla eftir taf­ar­lausum aðgerðum.

Þor­valdur Davíð Krist­jáns­son, borg­ar­full­trúi Við­reisnar, vakti athygli á mál­inu í hverf­is­hópiLaug­ar­nes­hverfis. Hann segir fjöl­skyldu sína hafa orðið vara við hraðakstur síð­ustu daga, sér­stak­lega á Gull­teigi og Kirkju­teigi.

„Mig langar að hvetja alla til að gæta vel að hrað­anum í kringum skól­ann. Hér eru börn á ferð á hverjum degi og öryggi þeirra verður að vera í fyr­ir­rúmi,“ skrifar Þor­valdur.

Hann hvetur jafn­framt íbúa til að bregð­ast við verði þeir varir við hraðakstur og minna öku­menn á að hægja á sér.

Vill fá lögregluna í hraðaeftirlit

Margrét Rós Sig­ur­jóns­dóttir, full­trúi Laug­ar­dals í umhverfis- og skipu­lags­ráði Reykja­víkur, tók undir áhyggjur Þor­valdar. Hún segir ábend­ingu þegar hafa verið komið á fram­færi við borg­ina og að hún hafi jafn­framt haft sam­band við lög­reglu.

„Hér þarf að drita upp skiltum eins fljótt og hægt er. Ég sit hérna inni í stofu á Kirkju­teig þegar ég skrifa þetta og ég á ekki orð yfir hvernig fólk keyrir beint fyrir framan skóla,“ skrifar Margrét Rós.

Hún lýsir því meðal ann­ars að hafa séð öku­mann stórs jeppa aka hratt um svæðið á meðan hann var í sím­anum.

„Hvað er að þessu sam­fé­lagi? Risa­stórir jeppar langt yfir hámarks­hraða við skóla­lóð! Sá einn á Dodge Ram í sím­anum brun­andi,“ skrifar hún.

Margrét Rós segir lög­reglu ekki hafa getað brugð­ist strax við en að óskað hafi verið eftir skrif­legum ábend­ingum frá íbúum.

„Við verðum bara að fá lög­regl­una í hraða­eft­ir­lit hingað,“ segir hún.

Að hennar sögn eiga fram­kvæmd­irnar á Reykja­vegi að standa til 10. nóv­em­ber. Hún segir borg­ina jafn­framt vera að skoða hvort hægt sé að grípa til frek­ari ráð­staf­ana til að hægja á umferð.

Börn þurfa að þvera Gullteig

Fleiri íbúar lýsa mik­illi umferð og hættu­legum aðstæðum í hverf­inu. Fram hafa komið frá­sagnir af fólki sem hafi nærri orðið fyrir bílum á göngu um Teigana og af barni sem beið við gang­braut á meðan þrettán bílar óku fram hjá án þess að stöðva.

Katrín Atla­dóttir, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tekur undir áhyggj­urnar og bendir sér­stak­lega á áhrif breyt­ing­anna á skóla­börn.

„Það er búinn að vera gang­braut­ar­vörður við Reykja­veg en nú er búið að færa þessa umferð á Gullteig sem mörg börn þurfa að þvera til að kom­ast í og úr skóla,“ skrifar Katrín.

Íbúar hafa jafn­framt bent á að umferð um Gullteig hafi þyngst veru­lega og bílaraðir mynd­ist við gang­braut­ina hjá skól­anum.

Kallar eftir áberandi skiltum

Rósa Birgitta Ísfeld söng­kona hefur einnig lýst áhyggjum af aðstæðum í hverf­inu. Hún bendir meðal ann­ars á að tveir ljósastaurar við fisk­búð­ina séu óvirkir og að það hafi áhrif á sýni­leika.

„Sá næstum ekki mann þegar ég tók hægri beygju þar,“ skrifar Rósa.

Hún lýsir einnig atviki þar sem öku­maður Teslu tók að hennar sögn hraða beygju inn á Gullteig.

„Mjög slæm umferð tók ein Tesla hraða beygju inn á Gullteig frá skól­anum og ég var inn í þreng­ing­unni. Þessi bíl­stjóri fatt­aði held ég ekki þreng­ing­una,“ skrifar hún.

Birkir Fjalar Við­ars­son, söngv­ari I Adapt og hlað­varps­þátta­stjórn­andi, telur að áber­andi merk­ingar gætu hjálpað til við að draga úr hraða.

„Ég sé t.d. engin sér­stök skilti til að minna þessa nýju nágranna okkar á að þeir eru komnir inn í íbúð­ar­hverfi hvar börnin ráða,“ skrifar Birkir.

Hann segir skilti geta haft meiri áhrif á suma öku­menn en umhverfið sjálft.

„Ég segi skilti af því að margir öku­menn taka meira marka á þeim en raun-umhverfi sínu, því miður.“

Íbúar kalla nú eftir auknum merk­ingum, hraða­eft­ir­liti lög­reglu og frek­ari aðgerðum borg­ar­innar meðan fram­kvæmdir standa yfir. Áherslan er ekki síst á öryggi barna sem þurfa dag­lega að fara yfir götur þar sem umferð hefur auk­ist veru­lega vegna fram­kvæmd­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina