Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Seðlabanka Íslands í morgun af miskabótakröfu Þorsteins Más Baldvinssonar, fyrrverandi forstjóra Samherja, en Morgunblaðið greinir frá þessu.
Þorsteinn höfðaði málið vegna varðveislu og meðferðar bankans á persónuupplýsingum hans sem aflað var við húsleit hjá Samherja árið 2012. Húsleitin tengdist rannsókn á meintum brotum fyrirtækisins á gjaldeyrislögum en ekkert varð úr þeim málatilbúnaði.
Þorsteinn taldi að bankanum hefði verið óheimilt að varðveita upplýsingar hans svo lengi. Gögnin voru enn hjá Seðlabankanum vorið 2020, um einu og hálfu ári eftir að málinu lauk, en voru síðar afhent héraðssaksóknara.































Athugasemdir