Tveir karlar voru í dag í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaðir í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á andláti í Kópavogi í gær samkvæmt tilkynningu frá lögreglu.
Annar mannanna var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. ágúst, en hinn til 17. ágúst. Annar þeirra er íslenskur, en hinn er erlendur ríkisborgari.
Eins og fram hefur komið var tilkynnt um líkamsárás í heimahúsi í Kópavogi um miðjan dag í gær, en maðurinn sem fyrir henni varð var fluttur á Landspítalann og lést þar síðdegis. Hann var erlendur ríkisborgari á fimmtugsaldri.































Athugasemdir