1
Heimur

Kona hoppaði af elleftu hæð til að bjarga lífi sínu

2
Fólk

Lítið kot í sveitarsælu sett á sölu

3
Innlent

MAST varar við brauði eftir að málmbiti fannst í því

4
Innlent

Arion vill fá 14 milljónir frá Hafnfirðingi

5
Minning

Bogi Ísak Nilsson er fallinn frá

6
Innlent

Aðeins þriðjungur umsækjenda stóðst allar kröfur fyrir lögreglunám

7
Heimur

Urðunarsvæði orðið að vinsælum áfangastað ferðamanna

8
Innlent

Faldi sterkan kókaínvökva innvortis

9
Innlent

Alvarlegt mál í Laugardalnum reyndist vera misskilningur

10
Innlent

Innbrotsþjófur gómaður í Árbænum

Til baka

Eigandi parísarhjólsins á höfninni ósammála lögreglu

Hefur áður ratað í fjölmiðla fyrir vafasama starfshætti

parisarhjol2
Hjólið fræga í Reykjavík
Mynd: Reykjavíkurborg

Eigandi Taylor's Tivoli, sem rekur parísarhjólið í Reykjavík, segir að engir gestir hafi verið skildir eftir í sjálfheldu í hjólinu.

Frétt um atvikið, sem birtist í gær, var unnin upp úr dagbók lögreglu. Þar kom fram að tveir gestir hefðu óskað eftir aðstoð eftir að hjólið stöðvaðist og starfsmenn virtust hafa yfirgefið svæðið. Þegar lögregla kom á vettvang höfðu starfsmenn hins vegar þegar losað fólkið.

Kane Taylor, eigandi Taylor's Tivoli, segir við mbl.is að stutt rafmagnstruflun hafi orðið og nauðsynlegt hafi verið að endurræsa kerfi hjólsins. Hjólið hafi því staðið kyrrt í nokkrar mínútur á meðan öryggisferlum var fylgt.

Taylor segir starfsmenn hafa verið við hjólið allan tímann og það aldrei verið yfirgefið eða eftirlitslaust.

Hann leggur áherslu á að öryggi gesta sé í algjörum forgangi og að öllum viðeigandi öryggisferlum hafi verið fylgt áður en hjólið var ræst að nýju.

Íbúar í Hveragerði ósáttir

Mannlíf hefur áður fjallað um Taylor's Tivoli Iceland, en sumarið 2024 komu upp alvarlegar ásakanir á hendur starfsmönnum tívolísins í tengslum við bæjarhátíðina Blómstrandi daga í Hveragerði. Þar voru starfsmenn sakaðir um að hafa ráðist á barn og var málið tilkynnt bæði til lögreglu og barnaverndaryfirvalda.

Mannlíf ræddi þá við nokkra gesti hátíðarinnar sem lýstu samskiptum sínum við starfsfólk tívolísins. Voru viðmælendurnir sammála um að framkoma starfsmanna hefði verið óviðeigandi og einkenndst af dónaskap og skætingi.

Kane Taylor var mjög ósáttur við umfjöllun Mannlífs á sínum tíma og gagnrýndi fréttaflutninginn harðlega. Sagði hann umfjöllunina að hans mati fremur vera skoðun en fréttaflutning.

Taylor greindi blaðamanni jafnframt frá því að lögmaður hans myndi hafa samband vegna málsins. Ekkert varð þó af þeim boðuðu samskiptum við lögmanninn.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Stefnir í lúxushita
Innlent

Stefnir í lúxushita

Sól, sól skín á mig
Þrír einstaklingar stálu ökutæki til nytja
Innlent

Þrír einstaklingar stálu ökutæki til nytja

Þátttakan verið meiri en gert var ráð fyrir
Innlent

Þátttakan verið meiri en gert var ráð fyrir

Aðdáendur sungu með þegar Bonnie Tyler var borin til grafar
Myndband
Heimur

Aðdáendur sungu með þegar Bonnie Tyler var borin til grafar

Rakel verður deildarforseti og stjórnarmeðlimur
Innlent

Rakel verður deildarforseti og stjórnarmeðlimur

Faldi sterkan kókaínvökva innvortis
Innlent

Faldi sterkan kókaínvökva innvortis

„Þú hefur verið kletturinn minn á erfiðum tímum“
Sport

„Þú hefur verið kletturinn minn á erfiðum tímum“

MAST varar við brauði eftir að málmbiti fannst í því
Innlent

MAST varar við brauði eftir að málmbiti fannst í því

E. coli-gerlar í vatni á Borgarfirði eystra
Landið

E. coli-gerlar í vatni á Borgarfirði eystra

Aðeins þriðjungur umsækjenda stóðst allar kröfur fyrir lögreglunám
Innlent

Aðeins þriðjungur umsækjenda stóðst allar kröfur fyrir lögreglunám

Stórtæk kannabisræktun á Vestfjörðum upprætt
Innlent

Stórtæk kannabisræktun á Vestfjörðum upprætt

Arion vill fá 14 milljónir frá Hafnfirðingi
Innlent

Arion vill fá 14 milljónir frá Hafnfirðingi

Urðunarsvæði orðið að vinsælum áfangastað ferðamanna
Heimur

Urðunarsvæði orðið að vinsælum áfangastað ferðamanna

Innlent

Stefnir í lúxushita
Innlent

Stefnir í lúxushita

Sól, sól skín á mig
Faldi sterkan kókaínvökva innvortis
Innlent

Faldi sterkan kókaínvökva innvortis

Eigandi parísarhjólsins á höfninni ósammála lögreglu
Innlent

Eigandi parísarhjólsins á höfninni ósammála lögreglu

Þrír einstaklingar stálu ökutæki til nytja
Innlent

Þrír einstaklingar stálu ökutæki til nytja

Þátttakan verið meiri en gert var ráð fyrir
Innlent

Þátttakan verið meiri en gert var ráð fyrir

Rakel verður deildarforseti og stjórnarmeðlimur
Innlent

Rakel verður deildarforseti og stjórnarmeðlimur

Loka auglýsingu