1
Peningar

Japis enn og aftur gjaldþrota

2
Innlent

Mollý nú löglegt á Íslandi

3
Minning

Margrét Jónsdóttir er fallin frá

4
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

5
Heimur

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul

6
Innlent

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl

7
Heimur

Ferðamaður lést á Kanarí

8
Heimur

Matt Brown látinn aðeins 43 ára gamall

9
Fólk

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu

10
Innlent

Innkalla hættulegar bílstólafestingar

Til baka

Lögreglan kannast ekki við „tælingargengi” Sigmundar

Forsætisráðherrann fyrrverandi hefur áhyggjur af erlendum glæpagengjum í Reykjavík

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherraEr formaður Miðflokksins.
Mynd: Víkingur

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, fór mikinn í pistli í gær á samfélagsmiðlum.

Var umfjöllunarefni formannsins Reykjavík en hann vill endilega að íbúar höfuðborgarinnar kjósi Miðflokkinn í komandi sveitarstjórnarkosningum sem fara fram þann 16. maí.

Í pistlinum sagði Sigmundur meðal annars að sambærilegur meirihluti hefði stjórnað Reykjavík um fjögur kjörtímabil undir mismunandi nöfnum, en að samkvæmt honum hefði „pólitískur rétttrúnaður“ Samfylkingin verið sameiginlegur þráður stjórnarinnar.

Hann hélt því fram að íslenskum íbúum borgarinnar hefði lítið fjölgað á sama tíma og erlendum íbúum hefði fjölgað verulega og að þeir væru nú um fjórðungur borgarbúa. Þá sagði hann að þróunin hefði skapað aukið álag á húsnæðismarkað, opinbera þjónustu og velferðarkerfi borgarinnar.

Sigmundur Davíð gagnrýndi einnig stöðu grunnskóla í Reykjavík og sagði þá eiga erfitt með að mæta fjölgun tungumála meðal nemenda. Hann lýsti yfir áhyggjum af námsárangri barna, agavandamálum og því sem hann taldi aukna áherslu á pólitísk málefni í skólastarfi á kostnað hefðbundins náms.

Jafnframt gagnrýndi hann fræðslu um kynferðis- og kynvitundarmál í skólum og sagði slíka umræðu hafa gengið of langt gagnvart yngri börnum.

Erlend gengi

Nefndi forsætisráðherrann fyrrverandi einnig umsvif erlendra glæpagengja og sagði svo í kjölfarið:

„Nú birtast vísbendingar um svo kölluð tælingargengi í Reykjavík. Engin borgarvöld mega láta slíkt viðgangast.”

Sigmundur fór hins vegar ekkert nánar út í hvaða vísbendingar hann ætti við.

Mannlíf sendi lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fyrirspurn um þessi meintu tælingargengi. Í svörum hennar segist lögregla ekki kannast við slíkt.

„Þetta hefur ekki komið inn á borð hjá okkur,” sagði Bylgja Hrönn Baldursdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu auglýst laust til umsóknar
Innlent

Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu auglýst laust til umsóknar

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu fer með stjórn lögregluliðs í stærsta lögregluumdæminu
„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl
Innlent

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl

Mollý nú löglegt á Íslandi
Innlent

Mollý nú löglegt á Íslandi

Ofbeldisfullur lögreglumaður rekinn eftir rannsókn
Myndband
Heimur

Ofbeldisfullur lögreglumaður rekinn eftir rannsókn

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul
Heimur

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul

Hundar halda áfram að bíta fólk í Reykjavík
Innlent

Hundar halda áfram að bíta fólk í Reykjavík

Bjarndýr réðst á fólk inn í verksmiðju
Heimur

Bjarndýr réðst á fólk inn í verksmiðju

Innkalla hættulegar bílstólafestingar
Innlent

Innkalla hættulegar bílstólafestingar

Útlendingar mættu ekki fyrir dóm
Innlent

Útlendingar mættu ekki fyrir dóm

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu
Myndir
Fólk

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu

Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

Brynjar Níelsson opnar sig um eigin vinnumáta
„Ég tel að þessar breytingar verði til hagsbóta fyrir lögreglu“
Pólitík

„Ég tel að þessar breytingar verði til hagsbóta fyrir lögreglu“

Inga farin í veikindaleyfi
Pólitík

Inga farin í veikindaleyfi

Kamilla gagnrýnir niðurskurð á Þjóðarbókhlöðunni
Pólitík

Kamilla gagnrýnir niðurskurð á Þjóðarbókhlöðunni

Segir Morgunblaðið vera „málgagn hins neikvæða nöldurs”
Pólitík

Segir Morgunblaðið vera „málgagn hins neikvæða nöldurs”

Gylfi Ólafsson nýr bæjarstjóri Ísafjarðar
Pólitík

Gylfi Ólafsson nýr bæjarstjóri Ísafjarðar

Loka auglýsingu