1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

4
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

5
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

6
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

7
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

8
Heimur

Áratugalöng leit endaði í faðmlagi systkina

9
Peningar

Helgi í Góu verður ríkari

10
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

Til baka

Sérfræðingar efins um ný UFO-skjöl Pentagon

„Ágætis byrjun. Varla meira en það,“ segir Gunnar Dan

Fljúgandi furðuhlutur
Fljúgandi furðuhluturÞessi furðuhlutur var spottaður nálægt Japan
Mynd: Pentagon

Pentagon hefur hafið birtingu skjala um óþekkt loftfyrirbæri, svokölluð UAP eða UFO, og innihalda skjölin meðal annars ljósmyndir, myndbönd og gögn sem safnað hefur verið saman af fjölmörgum bandarískum stofnunum.

Verkefnið er samstarf milli varnarmálaráðuneytisins, NASA, alríkislögreglunnar FBI, Hvíta hússins og fleiri leyni- og rannsóknastofnana Bandaríkjanna.

Í skjölunum eru meðal annars myndir sem teknar voru úr bandarískum herflugvélum og sýna óskýra punkta á himni. Þá eru einnig myndir frá Apollo-geimförunum þar sem ógreinanleg fyrirbæri sjást yfir yfirborði tunglsins.

geimvera
Mynd: Pentagon

Birtingin kemur í kjölfar þess að Donald Trump forseti beindi því til Pentagon og annarra alríkisstofnana að bera kennsl á og birta stjórnvaldsskjöl sem tengjast „geimverum og lífi utan jarðar, óþekktum fyrirbærum í lofti og fljúgandi furðuhlutum“

Áður hafði Pentagon birt skýrslu árið 2021 þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að engar sannanir fyndust fyrir tengslum slíkra fyrirbæra við geimverur.

Pete Hegseth varnarmálaráðherra Bandaríkjanna sagði í yfirlýsingu að skjölin hefðu lengi verið falin undir trúnaðarstimplum og að almenningur ætti rétt á að sjá þau. Hann sagði birtinguna sýna fram á „fordæmalausa skuldbindingu stjórnvalda gagnvart gagnsæi“.

Sérfræðingar efins

Sérfræðingar eru þó efins um að gögnin muni skýra mikið. Sean Kirkpatrick, fyrrverandi yfirmaður rannsóknarskrifstofu Pentagon á óútskýrðum fyrirbærum, segir ekkert óvænt koma fram í skjölunum og telur að skortur á samhengi muni frekar ýta undir samsæriskenningar og vangaveltur.

Rannsakandinn Mick West tók í svipaðan streng og sagði gögnin ekki innihalda neitt sérstaklega áhugavert. „Fleiri punktar, meiri sjónblekking,“ sagði hann.

Aðrir hafa þó fagnað birtingunni. Samtökin Disclosure Foundation kölluðu hana „mikilvægt skref í átt að auknu gagnsæi“.

Í sumum skjölunum eru einnig frásagnir Apollo-geimfara. Þar lýsir Buzz Aldrin meðal annars fyrirbæri sem hann taldi hugsanlega vera hluta af Saturn V-eldflauginni sem notuð var í Apollo-áætluninni.

„Ágætis byrjun“

Gunnar Dan, rithöfundur og einn helsti sérfræðingur Íslands í geimverufræðum, birti myndband á YouTube-rás sinni, Geimsýran, eftir miðnætti í nótt þar sem hann fer yfir fyrstu öldu skjala frá Pentagon. Gunnar viðurkennir að hafa farið of geyst í upphafi en að hann sé kominn niður á jörðina núna. Segist hann hafa skoðað öll skjölin og að hann hafi orðið fyrir nokkrum vonbrigðum en að von sé á fleiri gögnum.

„Niðurstaðan var sem sagt þessi. Þetta var ágætis byrjun. Varla meira en það,“ segir Gunnar í myndbandinu en bendir þó á að það sé ýmislegt fróðlegt að sjá í skjölunum en ekkert byltingakennt, ekki ennþá í það minnsta.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Uppljóstrarinn sem afhjúpaði leyndarmál Manchester City sviptur vitnavernd
Heimur

Uppljóstrarinn sem afhjúpaði leyndarmál Manchester City sviptur vitnavernd

„Staða hans er nú orðin afar alvarleg.“
Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar
Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar

Dularfull innbrot á heimilum finnskra þingmanna
Heimur

Dularfull innbrot á heimilum finnskra þingmanna

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið
Heimur

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi
Myndband
Sport

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum
Innlent

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum
Menning

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir
Myndband
Heimur

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur
Innlent

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína
Heimur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga
Innlent

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike
Heimur

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike

Stórfelldir fíkniefnainnflytjendur handteknir á Laugavegi
Innlent

Stórfelldir fíkniefnainnflytjendur handteknir á Laugavegi

Heimur

Uppljóstrarinn sem afhjúpaði leyndarmál Manchester City sviptur vitnavernd
Heimur

Uppljóstrarinn sem afhjúpaði leyndarmál Manchester City sviptur vitnavernd

„Staða hans er nú orðin afar alvarleg.“
Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike
Heimur

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike

Dularfull innbrot á heimilum finnskra þingmanna
Heimur

Dularfull innbrot á heimilum finnskra þingmanna

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið
Heimur

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir
Myndband
Heimur

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína
Heimur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína

Loka auglýsingu