Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Ólafur Hrafn formaður RÍSÍ: „Væri ekki á lífi í dag nema fyrir Pieta-samtökin – þau björguðu mér“

Fallega gert. Píeta-samtökin eru að gera frábæra hluti.
Fallega gert. Píeta-sam­tökin eru að gera frá­bæra hluti.

„Við hjá RÍSÍ afhentum Pieta-sam­tök­unum – sam­tök sem stunda for­varn­ar­starf gegn sjálfs­vígum – fjóra Secretlab stóla fyrir skrif­stof­una þeirra og starfs­fólk; Secretlab stólar eru allra flott­ustu stólar á mark­aðnum og eiga Píeta sam­tökin bara það besta skilið,“ segir Ólafur Hrafn sem er for­maður RÍSÍ sem er skamm­stöfun á Raf­í­þrótta­sam­bandi Íslands; sam­tök sem voru stofnuð til að vekja athygli á og styðja þróun raf­í­þrótta á Íslandi.

Saga Ólafs Hrafns og til­veru hans er nátengd Pieta-sam­tök­unum.

„Pieta-sam­tökin standa mér mjög nærri; fæstir vita að ég er skjól­stæð­ingur hjá þeim.“

Ólafur Hrafn segir það óum­deilt að „sam­tökin vinna mik­il­vægt starf í sam­fé­lag­inu og standa að for­vörnum gegn sjálfs­vígum og sjálfs­skaða og styðja við aðstand­endur.“

Hann kemur inná umræðu varð­andi nei­kvæð „áhrif tölvu­leikja­spil­unar og þó að því fari fjarri að allir sem spili tölvu­leiki eigi við vanda­mál að stríða, þá getur það vissu­lega gerst og þá oft­ast til að forð­ast annan und­ir­liggj­andi vanda.

Það sorg­lega er að það er oft erfitt fyrir ein­stak­linga í þeirri stöðu að finna hjálp og skiln­ing; þeir eiga bara að hætta þessu tölv­urugli,“ segir Ólafur Hrafn og bendir á „mik­il­vægi Píeta sam­tak­anna: „Þau taka á móti öllum opnum örmum og vinna með ein­stak­lingnum með það að mark­miði að byggja hann aftur upp. Það er ómet­an­legt að við sem sam­fé­lag höfum svona þjón­ustu starf­andi í sam­fé­lag­inu og því finnst mér alltaf gaman að geta styrkt þetta góða starf.“

Ólafur Hrafn segir að „þetta hefur líka per­sónu­lega þýð­ingu fyrir mig; eins og áður sagði er ég skjól­stæð­ingur Pieta-sam­tak­anna, og væri jafn­vel ekki hér í dag, ef ekki væri fyrir þeirra frá­bæra starfs­fólk.“

Hann nefnir að „í því ferli að ýta raf­í­þróttum úr vör kom tíma­bil þar sem erfitt var að sjá til sólar; spari­féð var að klár­ast; styrkir sem aldrei komu juku álagið. Þó ég hafði óbilandi trú á verk­efn­inu og þeirri brýnu þörf sem ég tel vera á því að við náum utan um tölvu­leikja­á­huga­málið í skipu­lögðu starfi, þá hafði ég enga trú á sjálfum mér; fannst ég kom­inn á enda­stöð og mér fannst ég hafa alveg brugð­ist; sjálfum mér – fjöl­skyldu minni og íslensku raf­í­þrótta­fólki,“ og það var „þá sem ég hélt út, óviss hvort að ég vildi snúa aftur heim; það leit allt betur út en að takast á við áskor­an­irnar sem voru í lífi mínu. Sextán tímum seinna svar­aði ég hund­rað­asta sím­tal­inu frá mömmu og nokkrum dögum seinna var ég kom­inn inn hjá Pieta-sam­tök­unum.“

Ólafur Hrafn segir að „frá fyrsta fundi fann ég fyrir umhyggju og hlýju og í fyrsta sinn á minni lífs­leið var ég til­bú­inn að taka við hjálp­inni sem var fyrir framan mig. Í dag hefur mér sjaldan liðið betur né verið sátt­ari með sjálfan mig; það hefur farið mikil vinna í þetta og hún hættir ekki á næst­unni – en ég hef engar áhyggjur vit­andi að ég get leitað til Pieta-sam­tak­anna ef allt fer í skrúf­una aftur.“

Með stóla­gjöf­inni vildi Ólafur Hrafn þakka sam­tök­unum fyrir það í raun og veru að bjarga lífi hans þegar sjálfs­vígs­hugs­an­irnar herj­uðu hvað mest á hann:

„Það hlýj­aði mér því um hjarta­rætur að við gátum gefið þeim þessa stóla í dag,“ segir hann að lokum þakk­látur og með ást í hjart­anu til alls þess frá­bæra fólks sem starf­rækir Pieta-sam­tökin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

„Þú getur treyst barninu sem þú varst. Jesús gerir það“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu