Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Hilmar Garðarsson gefur út ábreiðuplötu: „Hafði verið í miklu tjóni sökum kókaínfíknar“

Hilmar Garðarsson
Hilmar Garð­ars­son

Stöð­firð­ing­ur­inn Hilmar Garð­ars­son gaf nýverið út plöt­una Under The Influence þar sem hann syngur lög þeirra tón­list­ar­manna sem hafa haft hvað mest áhrif á hann í tón­list­inni.

Hilmar Garð­ars­son er nú búsettur í sínum gamla heimabæ, Stöðv­ar­firði fyrir Austan eftir margra ára flakk en hann hefur búið í Reykja­vík, á Egils­stöðum og í níu ár í Oulu í Finn­landi. Hefur hann verið við­rið­inn tón­list ansi lengi, ýmist sem með­limur í hljóm­sveit eða á sól­ó­ferli en hann var aðeins 16 ára gam­all þegar hann var í sinni fyrstu hljóm­sveit.

Hilmar var að gefa út sína þriðju plötu fyrir ekki margt löngu en fyrri plötur hans, Pleased to leave you, sem kom út árið 2004 og White Lotus, sem kom út 2017 vöktu þó nokkra athygli en sú til dæmis hlaut fyrri platan fjórar stjörnur í plötu­gagn­rýni í Morg­un­blað­inu á sínum tíma.

Mannlíf ræddi við Hilmar um nýju plöt­una.

Hvernig plata er Under The Influence?

„Hún er ljúf kassagít­ar­plata tekin upp læf á einum degi af Jónasi Björg­vins­syni í hljóð­ver­inu hans hljod­ver.is með lögum eftir mína áhrifa­valda,“ svar­aði Hilmar í skrif­legu svari.

Hvað varð til þess að þú ákvaðst að gefa út ábreiðu­plötu?

„Þegar að ég heyrði American plöt­urnar frá Johnny Cash fyrir mörgum árum kvikn­aði hug­myndin fyrst um að gera plötu með lögum eftir aðra, einn með kassagít­ar­inn þar sem hægt er að ná skemmti­legri dýpt og ann­ari nálgun með þessu formi. Ég hafði fengið styrk fyrir útgáfu á plötu sem ég var að fara í með eigið efni. En þar sem ég hafði verið í miklu tjóni sökum kóka­ín­fíknar ákvað ég að fresta henni þar sem mér fannst ég verða að lag­færa sumt og semja aðeins meira efni til þess að hafa meira til þess að velja úr og þetta var nið­ur­staðan.“

Hvernig hafa við­brögðin verið?

„Bara virki­lega góð og hafa komið mér á óvart þar sem ég hef ekk­ert verið að fylgja henni eftir.“

En var ekki erfitt að velja lög á plöt­una?

„Já mjög erfitt. Ég kom með 12 lög sem ég hafði skorið niður úr 30 og þau end­uðu sem níu.“

Hvað er svo framundan hjá þér?

„Ég mun verða með tón­leika í haust til að fagna þess­ari plötu og jafn­framt til þess að fagna 20 ára afmæli fyrstu plöt­unnar minnar Pleased to leave you svo er aldrei að vita nema maður taki nokkur gigg.“

En hygg­urðu á frek­ari plötu­út­gáfu á næst­unni? Jafnvel aðra ábreiðu­plötu?

„Það er planið að klára plöt­una sem ég hef verið að vinna með í nokkur ár með frum­sömdu efni en svo langar mig að gera Under The Influence að seríu en nota mis­mun­andi þema til dæmis að sú næsta yrði ein­göngu með lögum eftir konur eða lög frá hljóm­sveitum og jafn­vel að gera dúetta plötu en þetta verður tím­inn að leiða í ljós. Þessi plata er ein­göngu með lögum eftir sólólista­menn þannig að halda ólíku þema væri skemmti­legt.“

Hægt er að hlusta á hina stór­góðu plötu Under The Influence á Spotify.

Hér má hlusta á lag Nick Cave and the Bad Seeds Are You The One That I´ve Been Waiting for:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Menning

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027