Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Margrét stýrir samtökum bænda: „Gegna lykilhlutverki í fæðuöryggi þjóðarinnar“

Mar­grét Ágústa Sig­urðardótt­ir verður framkvæmdastjóri Bændasamtakanna –
Mar­grét Ágústa Sig­urð­ar­dótt­ir verður fram­kvæmda­stjóri Bænda­sam­tak­anna – Mynd: Bændasamtökin

Margrét Ágústa Sig­urð­ar­dóttir hefur verið ráðin sem fram­kvæmda­stjóri Bænda­sam­tak­anna en alls 28 manns sem sóttu um starfið. Margrét tekur við af Övari Þór Ólafs­syni sem tók tíma­bundið við stöð­inni sam­hliða störfum sínum sem fjár­mála­stjóri sam­tak­anna en Margrét hefur störf þann 1. ágúst næst­kom­andi.

Margrét er mennt­aður lög­fræð­ingur frá Háskóla Íslands og Háskól­anum í Lundi en hún hefur und­an­farin sex ár starfað hjá PwC á skatta- og lög­fræðisviði fyr­ir­tæk­is­ins en hún starf­aði þar áður hjá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. 

„Það er afar ánægju­legt að fá Margréti Ágústu til þessa starfs. Ég er ekki í nokkrum vafa um að lög­fræði­leg sér­þekk­ing hennar, m.a. í skatta- og Evr­ópu­rétti, auk tolla­lög­gjafar bæði hér­lendis og erlendis, mun nýt­ast okkur með marg­vís­legum hætti. Stjórn Bænda­sam­tak­anna er stað­ráðin í að taka hraust­lega til hend­inni á næstu miss­erum og árum. Margrét Ágústa á eftir að verða dýr­mætur liðs­auki í þeim verk­efnum,“ sagði Trausti Hjálm­ars­son, for­maður Bænda­sam­taka Íslands, um ráðn­ingu Mar­grétar.

„Frá blautu barns­beini hef ég borið djúpa virð­ingu fyrir bændum og störfum þeirra. Mér þykir því sér­stak­lega vænt um það traust sem mér hefur verið sýnt með þess­ari ráðn­ingu. Engum dylst mik­il­vægi þess að íslenskur land­bún­aður geti áfram staðið vörð um afdrátt­ar­laus gæði og hrein­leika fram­leiðslu sinnar ásamt því að gegna lyk­il­hlut­verki í fæðu­ör­yggi þjóð­ar­innar. Við okkur blasa fjöl­mörg sókn­ar­færi og í þeim efnum geta Bænda­sam­tökin skipt miklu máli með marg­vís­legum hætti. Ég er full til­hlökk­unar að bretta upp ermar og taka kröft­ugan þátt í því mik­il­væga verk­efni ásamt starfs­fólki og stjórn sam­tak­anna. Ekki síður hlakka ég til þess sam­tals og sam­starfs við bændur sem bíður mín í takti við þá áherslu stjórn­ar­innar að gras­rótin stýri ávallt ferð­inni,“ sagði Margrét sjálf um ráðn­ing­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Landið

Landið

Leifar af skála frá land­náms­tíma fund­ust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.
Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Landið

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Landið

Leð­ur­blakan í Fellabæ enn ófundin

Landið

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Landið

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp