Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

„Ömurlegt og sárt að hlusta á ýmsa þingmenn“

Í atkvæða­skýr­ingu nefnir Snorri Másson mögu­leika á notkun ökkla­banda

Eiríkur Rögn­valds­son lýsir lýsir yfir þungum áhyggjum, von­brigðum og harðri gagn­rýni í pistli á Facebook á sam­þykkt nýs frum­varps Alþingis sem heim­ilar vistun barna í lok­uðum brott­far­ar­stöðvum.

„Það var sorg­legt, ömur­legt og sárt að hlusta á ýmsa þing­menn sem ég treysti og hafði trú og álit á greiða atkvæði með frum­varpi sem heim­ilar að börn séu sett í fang­elsi – því að þrátt fyrir sak­leys­is­legt nafn er hin svo­kall­aða „brott­far­ar­stöð“ auð­vitað ekk­ert annað en fang­elsi sam­kvæmt almennum mál­skiln­ingi, staður þar sem fólki er haldið nauð­ugu. Þetta gerðu þessir þing­menn þrátt fyrir skýrt bann Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna við fang­elsun barna, þrátt fyrir vel rök­studda áskorun umboðs­manns barna og ýmissa mann­rétt­inda­sam­taka um að hverfa frá þess­ari fyr­ir­ætlan, og þrátt fyrir ýmsa vitn­is­burði og rann­sóknir sem sýna að varð­hald, jafn­vel í skamman tíma, getur valdið börnum var­an­legum skaða.“

Þeir sem styðja þessi lög hafa lagt áherslu á að vistun í lok­uðu úrræði sé útlend­inga­yf­ir­völdum aðeins ætluð sem hinsta úrræði sem von­andi þurfi aldrei að koma til. Á móti er því teft fram að stjórn­völd hefðu átt að líta til ann­arra lausna. Meðal ann­ars hefur verið bent á raf­rænt eft­ir­lit, líkt og notkun ökkla­banda, sem dæmi um væg­ara eft­ir­litsúr­ræði sem þegar er nýtt við afplánun refs­inga og fram­fylgd nálg­un­ar­banna í íslensku rétt­ar­kerfi.

Ökklabönd til að framfylgja nálgunarbanni

Eiríki er virki­lega ofboðið og segir að „stuðn­ings­fólk lag­anna hefur mörg orð um að þetta sé síð­asta úrræði sem von­andi þurfi aldrei að beita, og auð­vitað má taka undir þá von. En heim­ildin er þarna sem sýnir að stjórn­völd eru til­búin að beita henni og virð­ast ekki sjá aðra mögu­leika sem þó eru til – í atkvæða­skýr­ingu sinni nefndi Snorri Másson mögu­leika á ökkla­böndum þótt hann væri að vísu fremur að hugsa um kostnað en vel­ferð barna. Ef hægt er að nota ökkla­bönd til að fram­fylgja nálg­un­ar­banni eða hafa eft­ir­lit með fólki sem afplánar refs­ingu – eins og lagt er til í málum sem dóms­mála­ráð­herra hefur lagt fram – ættu þau að duga til að fylgj­ast með fólki sem ekki hefur brotið annað af sér en neita að fara til baka í aðstæður sem það telur oft vera óvið­un­andi eða lífs­hættu­legar.“

„Ábyrgð í útlendingamálum“

Lög­fest­ingin þykir sýna mikla stefnu­breyt­ingu hjá stjórn­ar­flokk­unum, þar sem póli­tískir for­ystu­menn höfðu áður lýst því yfir að börn yrðu ekki sett í lokuð búsetu­úr­ræði. Sam­fylk­ingin hefur verið gagn­rýnd fyrir að kynna lögin sem lið í að skapa „breiða sátt í sam­fé­lag­inu um útlend­inga­mál“, en and­stæð­ingar lag­anna telja þá stefnu fremur end­ur­spegla eft­ir­gjöf við kröfur hægri flokka en raun­veru­lega mann­úð­ar­stefnu og benda á að flokk­ur­inn hafi sýnt allt aðra afstöðu á fyrri kjör­tíma­bilum.

Eiríkur heldur áfram að skamm­ast út í for­ystu­flokk­ana, „til að bíta höf­uðið af skömminni hælist Sam­fylk­ingin um á Facebook-síðu sinni að standa fyrir „Ábyrgð í útlend­inga­málum“ með nýjum lögum sem séu til þess ætluð „að vinna að breiðri sátt í sam­fé­lag­inu um útlend­inga­mál“. Eins og ég hef stundum bent á hér merkir klisjan „það þarf að skapa sátt um málið“ sem beitt er við ýmis tæki­færi alltaf „Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þarf að vera sáttur við málið“. Sam­fylk­ingin hefur snúið alger­lega við blað­inu síðan á síð­asta kjör­tíma­bili þegar hún gagn­rýndi fyrri rík­is­stjórn harð­lega – og með réttu – fyrir stefnu í útlend­inga­málum. Að ekki sé talað um utan­rík­is­ráð­herra sem sagði fyrir tveimur árum að „við setjum ekki börn í lokað búsetu­úr­ræði“. Samþykkt þess­ara laga er rík­is­stjórn­inni og Alþingi til skammar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Býður Trump að nefna heil­brigð­is­kerfi eftir sér

Abdul El-Sayed segist tilbúinn að láta forsetann fá heiðurinn af opinberu heilbrigðiskerfi, styðji hann að allir Bandaríkjamenn fái aðgang að þjónustu.
Heimur

Robert Patt­in­son næsti James Bond

Pólitík

Segir Hildi Björns­dóttur beita tvö­földum mæli­kvarða á fjár­mál borg­ar­innar

Heimur

Brand óskaði eftir auka­teppi og sér­sjampói í fang­els­inu

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Innlent

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn

Nefnd um eftirlit með lögreglu hafði ákveðið að aðhafast ekki frekar.
Innlent

Lög­reglan fylgd­ist með ung­linga­drykkju á söng­keppni Verzló

Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

VÍS vildi kenna slös­uðum starfs­manni um en tap­aði fyrir dómi

Innlent

Íslend­ingar flykkj­ast á bóka­söfnin sem aldrei fyrr

Innlent

Verð­munur á bök­un­ar­vörum nær 66 pró­sentum milli versl­ana