Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Segist hafa verið stöðvuð vegna litarhafts: „Fólk trúir því alltaf að lögreglan sé rasisti“

Mynd/Lára Garðarsdóttir
Mynd/Lára Garð­ars­dóttir

Hin 38 ára gamla Irine Finn var væg­ast sagt ósátt með hegðun lög­reglu­manna á Íslandi árið 2004 og ásak­aði þá um ras­isma.

„Þeir komu svona fram við mig því ég er svört,“ sagði Irine Finn í sam­tali við DV um málið árið 2004. Samkvæmt henni var hún stöðvuð vegna þess að hún var með bil­aðan ljósa­búnað og fyrir vera án öku­skír­teinis en lög­reglu­menn­irnir spurðu ítrekað hvort hún væri íslensku rík­is­borg­ari. „Ég spurði hvaða máli það skipti,“ sagði Irine. „Lög­reglu­mað­ur­inn hafði tekið debet­kortið mitt en vildi ekki láta mig fá það nema ég svar­aði spurn­ing­unni. Ég hef átt heima hérna í fimmtán ár og þarf ekki að sanna fyrir neinum að ég sé íslenskur rík­is­borg­ari.Þeir spurðu mig bara af því ég er svört.“

Á end­anum fékk hún þó kortið sitt baka en hún var sektuð um 15.000 krónur. Samkvæmt skýrslu lög­reglu­mann­anna á hún að hafa sýnt mót­þróa.

„Við getum illa ráðið við þetta. Regl­urnar á Schengen-svæð­inu gera það að verkum að eft­ir­lit með landa­mærum er orðið innan landamær­anna. Þannig ber lög­reglu­mönnum að kanna skil­ríki þeirra sem við teljum vera útlend­inga. Þetta er hins vegar veru­leik­inn sem við búum við. Það er erfitt fyrir lög­regl­una að sjá hver er með íslenskan rík­is­borg­ara­rétt og hver ekki. Eina leiðin til að kom­ast að því er að spyrja,“ sagði Geir Jón Þórisson, yfir­lög­reglu­þjónn í Reykja­vík, við DV.

„Við eigum svo erfitt með að verja okkur,“ sagði Geir Jón einnig. „Fólk trúir því alltaf að lög­reglan sé ras­isti og auð­vitað getur okkur orðið á. Við erum samt bara að fylgja þeim reglum sem okkur eru settar og það er erfitt að kom­ast hjá árekstrum.“

Irene vildi að lokum koma eft­ir­far­andi skila­boðum til lög­regl­unnar:

„Ég er sektuð fyrir að vera svört. Það er eins og ég sé hryðju­verka­maður. En þið ættuð að muna hvað kom fyrir banda­rísku fanga­verð­ina í Írak sem pynt­uðu fang­ana í Abu Ghraib. Rasismi verður ekki lið­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni