Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Alexandra flutt út – Gylfi Þór vaktaður allan sólarhringinn

Alexandra og Gylfi Mynd / Instagram
Alex­andra og Gylfi Mynd / Instagram

Alex­andra Helga Ívars­dóttir, eig­in­kona fót­bolta­kappans og lands­liðs­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar, er sögð hafa flutt út af heim­ili þeirra hjóna og því haldið raunar fram að það hafi hún gert nokkrum vikum áður en hann var hand­tek­inn af lög­reglu fyrir helgi. Þessu halda breskir fjöl­miðlar fram en Mannlíf galopn­aði á mál fót­bolta­manns­ins hér á landi.

Á sama tíma og Alex­andra er umvafin fjöl­skyldu sinni á Íslandi segja fjöl­miðlar ytra að Gylfi hafi verið fluttur í öruggt skjól á vegum Everton þar sem hans er gætt allan sól­ar­hring­inn. Breskir miðlar segja að sést hafi til Alexöndru á gangi með föður sínum hér­lendis í fyrra­kvöld.

Sjá einnig: Fjöl­skylda og lög­menn umvefja Gylfa

Allir í sjokki

Enski stuðn­ings­menn Everton eru sagðir slegnir vegna ásakan­ana á hendur íslenska lands­liðs­mann­inum og hið sama á við um leik­menn liðs­ins, liðs­fé­laga Gylfa. Einn leik­mann­anna, sem ekki lætur nafn síns getið, tjáði sig um málið ytra: „Allir í klef­anum eru í sjokki. Það vona allir hér að þessar ásak­anir séu ekki sannar.“

Sjá einnig: Var Gylfi hakk­aður? 

Hið sama má segja um íslenska stuðn­ings­menn Everton sem eru slegnir vegna frétta síð­ast­liðna daga. Stuðn­ings­manna­klúbb­ur félags­ins á Íslandi tel­ur yfir 200 fé­lags­menn og hitt­ast þeir reglu­lega til þess að horfa á leiki, sem þó hef­ur minnkað tölu­vert vegna far­ald­urs­ins. Eyþór Guð­bjarts­son er gjald­keri klúbbs­ins.

„Menn eru bara í sjokki, ég held að það sé al­veg sama hver það er. Auðvitað vona bara all­ir að þetta sé bara eitt­hvað „fake“, að ein­hver sé bara að hrekkja hann. Það er bara leiðin­legt á alla vegu að þetta hafi komið upp enda er maður­inn bara full­trúi unga fólks­ins og hann er bú­inn að vera fyr­ir­mynd fyr­ir svo marga. Það yrði bara öm­ur­legt að þetta hafi gerst,“ sagði Eyþór í sam­tali við Morg­un­blaðið.

Sjá einnig: Slúðrað um Gylfa á sam­fé­lags­miðlum

Gylfi er grun­aður um að hafa brotið gegn ólög­ráða stúlku í Bret­landi á árinu 2017 og þá hafi Gylfi verið 26 ára gam­all. Heim­ildir Mannlífs herma að Gylfi hafi ekki vitað af aldri stúlkunnar á þessum tíma. Nýlega hafi faðir stúlkunnar kom­ist að sam­skiptum þeirra og leitað til lög­reglu sem hafi fram­kvæmt hús­leit í byrjun júlí á heim­ili Gylfa í Bret­landi og síðar hand­tekið hann.

Mannlíf fjall­aði fyrst miðla um málið á sunnu­dag og vís­aði í sögu­sagnir þess efnis að Gylfi væri sá hand­tekni í Manchester borg á föstu­dag. Mannlíf hefur einnig greint frá því að eig­in­kona og nýfætt barn Gylfa hafi flogið heim til Íslands um helg­ina. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs búa þau nú í Garða­bænum í faðmi fjöl­skyldu Alexöndru, eig­in­konu Gylfa. For­eldrar hans munu hins­vegar hafa flogið út til Bret­lands á laug­ar­dag, um leið og ljóst var að Gylfi hafi verið hand­tek­inn og veita honum nú mik­il­vægan stuðn­ing ásamt lög­mönnum Everton.

Mannlíf heldur áfram að fylgj­ast með mál­inu og fjalla um það á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu